11.04.1924
Efri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (1295)

120. mál, Landhelgissjóður Íslands

Sigurður Eggerz:

Jeg stend hjer upp til þess að taka algerlega í sama streng og hv. 2. þm. S.-M. (IP). Jeg álít það með öllu rangt að skerða landhelgissjóðinn nokkuð, því að það tefur aðeins fyrir því, að við getum sem allra fyrst keypt fullkomið strandvarnaskip. Og vitanlega komast strandvarnirnar ekki í gott horf fyr en við eignumst sjálfir slíkt skip og getum látið okkar eigin menn hafa þær á hendi. Jeg mun marka mína afstöðu til frv. með því að greiða nú þegar atkvæði gegn því, að það gangi lengra. Til skamms tíma hefir það verið eindreginn vilji Alþingis að koma okkur upp strandvarnarskipi, en verði frv. þetta samþykt, þá er spor stigið í öfuga átt, og að því vil jeg ekki stuðla.