11.04.1924
Efri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)
120. mál, Landhelgissjóður Íslands
Sigurður Eggerz:
Jeg er sammála hæstv. forsrh. (JM) um það, að mjög er óheppilegt, að sjóður þessi skuli vera horfinn inn í ríkissjóðinn. En þá á ekki að halda áfram sömu braut, heldur er miklu betra að snúa inn á hina leiðina, að draga sjóðinn út úr ríkissjóði svo fljótt sem mögulegt er. Strandgæslumálið er eitt af okkar allra stærstu málum og það er á allra vitorði, að nú sem stendur er strandgæslan fram úr hófi ófullkomin. Og þó að talsvert hafi verið gert hin síðari árin til þess að bæta hana, þá verður hún aldrei fullkomin fyr en við höfum fengið til þess okkar eigið skip. Það eru til áætlanir og teikningar af slíku skipi, og mun það ekki kosta minna en 1 miljón kr. nú sem stendur.
Frv. þetta stefnir í þá átt, að hætt verði að safna í landhelgissjóðinn, í stað þess að leggja ætti fast að ríkissjóði að endurgreiða sjóðinn sem fyrst, svo að hægt verði að kaupa skipið.
Þeir, sem vilja marka stefnu í máli þessu, eiga því tafarlaust að greiða atkvæði á móti frv., en í þess stað heldur að krefjast endurgreiðslu á sjóðnum úr ríkissjóði.