11.04.1924
Efri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1834 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)
120. mál, Landhelgissjóður Íslands
Jóhann Jósefsson:
Það voru aðeins örfá orð út af ræðu háttv. 1. landsk. (SE). Hann sagði, að þar sem jeg hefði minst á strandvarnaskipin, að þau þyrftu ekki að vera mjög hraðskreið, þá væri það vegna Þórs. Ekki þarf það að vera. En jeg veit það, að þó að engu verði eytt úr landhelgissjóðnum, þá á það langt í land, að komið verði upp nýtísku varðskipi. Það getur að vísu verið, að því verði komið fyr upp en ella vegna þess að sektirnar hækka nú. En jafnvel þó að við eignumst eitt slíkt skip, þá geri jeg ráð fyrir, að kröfur þjóðarinnar um landhelgiseftirlit fari vaxandi, eftir því sem líður. Jeg ber engan kvíðboga fyrir Þór, þegar þjóð og þing hefir lært að meta starf hans við landhelgiseftirlitið að verðleikum og það, sem hann gæti gert, ef hann væri notaður eins og má nota hann. Er jeg ekki hræddur um, að hann yrði ekki notaður til gæslu, þó að nýtt skip yrði keypt. Vegna þess að hv. 1. landsk. mintist á Þór, þá þykir mjer rjett að geta þess, að jeg er sannfærður um, að þeir hv. þm., bæði hv. 1. landsk. þm. og aðrir, sem hafa kunnað að meta Þór rjettilega, munu síst hafa vansæmd af því í framtíðinni, þegar þjóðin fer að skilja þýðingu landhelgisgæslunnar eins og vera ber.