08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1316)
56. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar við alþingiskosningar
Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):
Hv. meiri hl. virðist hafa afsalað sjer að taka til máls, eins og nefndin hafi ekkert að segja. Jeg þarf ekki að falla frá orðinu fyrir það, en jeg skal ekki vera langorður, en jeg tel það að fara aftan að siðunum að vísa máli umræðulaust til 3. umr.
Það hefi jeg á móti frv., að jeg tel það yfirleitt, eins og jeg hefi ljóslega áður lýst, mjög illa til fundið, að þingið sje sífelt að hringla með löggjöfina, undir eins og menn finna eitthvað að. Ef t. d. veiðast fleiri laxar eitt árið en við var búist, þá þarf endilega að breyta laxveiðalögunum. Og af því að nú kemur í ljós, að gallar hafa orðið á heimakosningalögunum, meðal fjölda annara kosningagalla um alt land, þá þarf nú að fella þessi lög úr gildi. Það er þó vitanlegt, að þessi lög hafa orðið til þess, að mörg hundruð manna hafa getað notað kosningarrjett sinn, sem áttu alveg eins heimting á því og aðrir, sem farið gátu á kjörstað. Því finst mjer, að til þess að breyta þessu þurfi að bera fram fleiri og meiri rök en það, að sagt sje, að lögin hafi verið misnotuð. Jeg veit ekki, hvað vakir fyrir Alþingi, ef það ætlar sjer að setja svo lítilfjörleg lög, að ekki þurfi nema lítil mistök eitt ár til þess að fella þau.
Jeg skal svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en vænti þess, að deildin gangi ekki inn á þá braut að hringla svo með löggjöfina, að nýsett lög sjeu ástæðulaust eða ástæðulítið feld úr gildi, og síst þegar um þörf lög er að ræða.