08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1842 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)
56. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar við alþingiskosningar
Jakob Möller:
Jeg mótmæli því, sem hv. 1. þm. Árn. (MT) segir, að þó engin brtt. liggi fyrir, megi ekki ræða málið. Hver grein hefir sitt ákveðna efni og því má vitanlega ræða þær, þó engin brtt. sje fyrir hendi. Nú vill svo til hjer, að þetta frv. er svo einfalt að efni, að annaðhvort verður að fella það eða samþykkja. Það getur ekki staðið til, að neinar brtt. komi fram. 2. umr. á að vera aðalumræða um hvert mál, þar sem hver grein er rædd sjer og brtt., ef þær koma fram. Enda er það einkennilegt, að ef deildin er sammála um að fella eitthvert frv., að þá megi ekki ræða það. Nú er heldur engin trygging fyrir því, að það komist til 3. umr., og gæti líka eins farið svo, að það yrði drepið þar. Þessar athugasemdir hv. 1. þm. Árn. (MT) eru því hreinustu fjarstæður, sem ekki hafa við neitt að styðjast.