08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
56. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar við alþingiskosningar
Magnús Torfason:
Jeg get vel fallist á, að það sje rjett, sem hæstv. forseti segir, en þó sný jeg ekki til baka með það, að of mikið er að því gert að ræða málin alment við 2. umr. Hjer stóð svo á, að engin brtt. lá fyrir og frv. fór fram á að fella úr gildi heilan lagabálk. Einkum var lítil ástæða til umræðna nú, þar sem lýst var yfir því, að frv. yrði látið ganga til 3. umr. Orð hv. 3. þm. Reykv. (JakM) um þetta eru því tóm vindhögg. Það má vera, að þingsköpin sjeu óheppileg í þessu efni, en það verður að fara eftir þeim, þangað til þeim verður breytt.