28.04.1924
Efri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

56. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar við alþingiskosningar

Frsm. (Jónas Jónsson):

Þetta mál hefir verið nokkra stund hjá allshn., og hefir hún rætt það allmikið. Tveir nefndarmennirnir hafa þó skrifað undir með fyrirvara, en jeg geri samt ráð fyrir, að sá fyrirvari sje ekki þess eðlis, að þeir ætli að leggjast á móti frumvarpinu.

Skal jeg þá með nokkrum orðum skýra það, sem vakti fyrir nefndinni, er hún leggur til, að frv. þetta verði samþykt. Eins og kunnugt er, voru á síðasta þingi samþykt lög, sem áttu að gera sjúkum eða gömlum mönnum kleift að neyta kosningarrjettar síns, þó að þeir gætu ekki mætt á kjörstað. Var þetta að sönnu samkvæmt anda kosningalaganna, að byggja stjórn landsins á vilja kjósendanna, og var gert ráð fyrir, að þetta yrði aðallega fyrir sveitirnar. En nú í þingbyrjun komu 4 menn í Nd. fram með frumvarp um að nema þessi lög úr gildi. Menn þessir voru úr ýmsum hjeruðum landsins og úr tveimur stærstu flokkum þingsins. Málið sigldi svo hraðbyri gegnum neðri deild. Af þessum ástæðum hefir svo allshn. efri deildar lagt til, að frv. þetta, sem nemur lögin frá í fyrra úr gildi, verði samþykt, þó að tveir nefndarmanna hafi að öðru leyti dálitla sjerstöðu.

Það, sem valdið hefir þessum veðrabrigðum hjá þinginu í þessu máli, er, að það reynist ókleift að búa tryggilega um kjörgögn með því að fá fjölda manna þau í hendur, því að þó aldrei nema margir af þeim, sem kosninguna eiga að hafa með höndum, geri það samviskusamlega, eru það þó ekki nærri allir. Þetta er því varhugaverðara, sem hver einasti hreppstjóri og sýslumaður fær heila hrúgu af seðlum og umslögum, sem hann getur farið með heim til þeirra, sem ekki geta eða þykjast ekki geta sótt kjörfund. Á þessu atriði er því óánægjan aðallega bygð, því að sú leynd, sem ætlast er til, að sje um kosninguna, er á þennan hátt óframkvæmanleg, með því að fá svona mörgum mönnum kjörgögn í hendur, sem sumir hverjir fara ekki eins samviskusamlega með sem skyldi.

Um þetta atriði er bæði meiri og minni hluti allshn. sammála, og leggur nefndin því til, að frv. það, sem hjer liggur fyrir, verði samþykt, þrátt fyrir sjerstöðu um ýms önnur atriði.

Þó að það komi þessu máli ekki beinlínis við, vil jeg geta þess, að hjá allshn. liggur nú frv. um breytingu á kosningalögunum. Og þó að jeg búist ekki við, að það verði samþykt nú, heldur vísað til stjórnarinnar, er rjett að geta þess, að í því eru tvö atriði, sem gera hægara fyrir að komast af án heimakosninga. Fyrra atriðið er að færa kjördaginn yfir á mildari árstíma, en hið síðara, að gert er ráð fyrir, að skifta megi hreppunum í tvær eða þrjár kjördeildir, eftir því hve stórir þeir eru. Er með þessu fallin, að minsta kosti að nokkru leyti, sú ástæða, sem var fyrir frv. í fyrra.