10.04.1924
Neðri deild: 47. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1874 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

61. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Jeg býst nú við, að jeg og hv. samþingismaður minn (JBald) gætum lengi deilt um stefnuatriðið í máli þessu, en kæri mig hinsvegar ekki um að fara út í slíkar deilur, því að niðurstaðan verður venjulega sú, að hver jetur sitt. En jeg vildi þó nokkuð minnast á þær ástæður, er hv. frsm. minni hl. (JBald) færði fyrir rjettmæti lóðarskattsins. Hann sagði, eins og jeg líka gat um, að verðhækkunin væri bæjarfjelaginu að þakka, og það er auðvitað að sumu leyti rjett, því eftir því, sem bærinn hefir aukist, hafa menn sjeð sjer fært að kaupa hærra. En hvernig kemur þetta gjald niður á þeim, sem hafa keypt lóðir með hinu háa verði? Þeir, sem hafa selt lóðirnar með hinu háa verði og notið hagnaðar af því, sleppa, en þeir, sem hafa keypt lóðirnar með til finnanlega háu verði, verða að gjalda skatta af þeim. Eina ráðið til að gera þennan skatt rjettlátan, er að leggja hann á strax og bærinn fer að láta til sín taka. Með því er loku fyrir það skotið, að hann geti komið svo ójafnt niður, sem þessi skattur gerir.

Ef það er nú svo, að það á að skattleggja þessar eignir vegna þess, að þær hafa hækkað í verði fyrir tilverknað bæjarins, mundu þá ekki eigendur geta gert kröfu til skaðabóta, ef þær skyldu nú lækka í verði af bæjarins völdum? Slíkt gæti mjög vel komið fyrir, t. d. fyrir stórfeld mistök bæjarstjórnar eða önnur óhöpp. Jeg býst við, að tvær grímur mundu renna á menn, ef slíkt kæmi fyrir, enda þótt þeir telji þennan skatt sjálfsagðan.

Að mínu áliti er sú stefna, er frv. byggist á, ekki rjett. Hvað sem hver segir, er ekki hægt að neita því, að með þessum lögum er verið að taka eignarnámi af mönnum. Það hefir verið talað um, að þetta myndi lækka lóðaverð. En eru slík afskifti af eignum manna í samræmi við hugsunarhátt vorn og þjóðskipulag?

Þá kom frsm. minni hl. með ástæðu, sem mjög hefir verið hampað í máli þessu, að óbygðar lóðir þenji bæinn gegndarlaust út, og verði því gatnagerð og viðhald og allar leiðslur óhæfilega kostnaðarsamt. Til þessa er því fyrst að svara, að það getur verið bæði kostur og löstur, að bærinn þenjist út. Í sumum bæjum er kvartað um það, að hvergi sje andrúmsloft, bæirnir þjappist of mikið saman, ef ekkert er að gert. Í öðrum bæjum eru því gerðar sjerstakar ráðstafanir til þess að fá opin svæði. Það er því ekki ókostur að öllu leyti, að bærinn þenjist út.

En nú er það svo, að hátt lóðaverð miðar að því að þrengja bæina. Það er víða orsök þess, að bæirnir þjappast saman; altaf er bygt á hæðina og hvergi skilinn eftir auður reitur. Aftur getur lækkun á lóðaverði orðið til þess, að bærinn þenjist út. Sú verðlækkun lóða, sem frv. fer fram á, getur því haft öfug áhrif við það, sem hv. frsm. minni hl. ætlast til.

Það er heldur ekki heppilegt að neyða menn til að byggja. Afleiðingin af því yrði bersýnilega sú, að legið verður á byggingarnefnd og bæjarstjórn um leyfi til að reisa óvandaða og ódýra hjalla á lóðunum, til þess að geta náð einhverju upp í kostnaðinn með leigu. Þessi skýli yrðu aldrei til frambúðar, en bænum til mikillar óprýði og til margfalds skaða fyrir fjelagið.

Þegar á það er litið, hvernig bærinn er þaninn út, er það að litlu leyti með þeim hætti, sem laga mætti með ákvæðum eins og hjer ræðir um, því þær eru teljandi óbygðu lóðirnar, sem yrðu notaðar fyrir þetta. En bærinn hefir mest þanist út með byggingum, sem reistar hafa verið með fullri heimild og leyfi bæjarstjórnar. Í Skólavörðuholtinu er það t. d. bersýnilegt, að ekki er bygt eftir þeirri reglu að hafa göturnar sem stystar. En það er heldur ekki neitt óheppilegt. Það væri ekki æskilegt að koma bænum í það horf, að hann yrði þjettbýlt hverfi með háreistum húsum. Að vísu mundi gatnagerð verða ódýrari, en það vegur ekki upp á móti lífi og heilsu manna.

Hv. minni hl. ber ekki mikið á milli við meiri hlutann. Að vísu er talsverður stefnumunur, en hann hefir þó verið jafnaður svo, að tillögum nefndarhlutanna ber ekki mikið á milli.

Hv. frsm. minni hl. taldi óheppilegt að færa tvo liði saman í einn, svo sem gert er í 1. brtt. meiri hl. En það er eðlilegt að taka hvorttveggja undir sama staflið, sem jafnhátt gjald er greitt af. Að húseigandi geti fremur velt gjaldinu yfir á leigjandann, ef bæði húsa- og lóðaskatturinn er undir staflið a., heldur en þó að annar skatturinn væri undir sjerstökum lið, sem hjeti b., er alveg fjarstætt. Og þó að það yrði gert, þó að bæði lóðargjald og húsagjald lenti í leigunni, þá er það ekki nema eðlilegt í alla staði. Það er einmitt rjettmætt, að skattar sjeu þannig, að þeim verði dreift út. Hvort sem kostnaður við húseign stafar af lóð eða húsinu sjálfu, er það fje, sem reikna verður með, þegar talað er um, að eignin renti sig. Aftur er órjettmætt að leggja gjöld á óbygðar lóðir, sem eigandinn hefir ekkert upp úr. Það er beinlínis eignarnám. Því er rjett, að menn greiði nokkuð hærri húsaleigu og gjaldi með því í bæjarsjóð það, sem lagt er á fasteignir. En að taka hluta af útsvarsupphæðinni og leggja á nokkra menn, í þeim tilgangi, að þeir geti ekki dreift gjaldinu, er algerlega rangt.

Jeg skal þá víkja nokkuð að ummælum hv. frsm. minni hl. um nál. meiri hl. og brtt. hans. Hann fann nokkuð að setningunni: „— — og auk þess er það ekki nema eðlilegt, að nokkurt samræmi sje milli útsvars og tekjuskatts manna.“

Þetta er þó engin goðgá. Um það hefir verið rætt í fullri alvöru, hvort ekki væri rjett að taka upp tekjuskatt til bæjarsjóðs í einhverri mynd, í staðinn fyrir útsvar. Það er ekki heldur rjett að leggja útsvar á menn án þess að taka tillit til tekjuskattsins. Nú er verið að leita að aðilja, sem heppilegt væri að skjóta til útsvarskærum, og er þá ekki rjettast að taka þann, sem kunnugastur er öllu tekjuframtali í bænum! Sjeu menn óánægðir með útsvar sitt, kemur það til af því, að niðurjöfnunarnefnd og manninum kemur ekki saman um, hvaða tekjur hann hafi haft. Er þá rjett, að úr þessu sje skorið af þeim aðilja, sem engin hætta er á, að telji manninn hafa þessar og þessar tekjur til tekjuskatts, en alt aðrar tekjur til útsvars.

Þá þótti hv. frsm. minni hl. ekki heppilegt, að í 1. brtt. meiri hl. eru talin upp þau störf, sem bærinn lætur vinna sem endurgjald fyrir húsaskattinn. Þetta er gert í samræmi við ástæður bæjarstjórnar fyrir 2. gr. Þar segir svo: „Sá hluti fasteignagjaldsins, sem kemur niður á húseignunum, er áætlaður 160 þús. kr., en jafnframt fellur burtu sótaragjald og hreinsunargjald, sem árið 1922 er áætlað 119 þús. kr.“ Er svo sagt, að mismurinn á þessum tölum samsvari þeim útgjöldum bæjarsjóðs, sem stafi beinlínis af húsunum, þ. e. útgjöld við salerna- og sorphreinsun, við rottueitrun og ráðstafanir við tryggingar gegn eldsvoða. Þá kemur það heim, að áætlun skattsins stendst á við áætlun þessa kostnaðar, og er því rjett og sjálfsagt að telja þessi verk upp í lögunum sjálfum. Að nokkur maður muni skilja þetta svo, að bæjarsjóður eigi að greiða iðgjöld fyrir brunatryggingar, er ekki sennilegt. En ef það kynni að koma fyrir, skal jeg lýsa yfir því, að það kemur ekki til nokkurra mála, og geta lögskýrendur þá síðar vitnað í þessi orð mín fyrir hönd meiri hl. nefndarinnar. En ef mönnum sýnist svo, mætti laga þessa upptalningu við 3. umr.

Jeg skal leyfa mjer að geta þess, að í 2. brtt. meiri hl. er prentvilla; þar stendur „3 mánuðir“, en á að vera „3 mánuði“. Í handritinu stóð upphaflega eins og á þingskjalinu, en var leiðrjett, og hefir ekki verið tekið eftir þeirri leiðrjettingu við prentunina. Þetta má því leiðrjetta í uppprentun.

Jeg gleymdi áðan að geta um brtt. undir 2.b. Þegar heimilað er að ganga að útgerðarmönnum um útsvar skipverja þeirra, sem eiga heimili utanbæjar, er ekki nema rjett að skylda niðurjöfnunarnefnd til að tilkynna húsbændunum, hve mikil gjöld þeir eigi að ábyrgjast, svo að þeir geti haldið eftir af kaupi þeirra, sem þeir eiga þannig að bera ábyrgð á gjöldum fyrir. Jeg skil ekki, að þetta muni valda ágreiningi, enda er fyrirhöfn lítil.

Hv. frsm. minni hl. áleit, að málskot um útsvarskærur ætti aðeins að ná til utanbæjarmanna. Jeg tók það fram, að þetta væri aðallega gert vegna þeirra. Það er óviðunandi fyrir utanbæjarmenn, að lagt skuli vera á þá í öðru bæjarfjelagi og úrskurðað um kærur þeirra af bæjarstjórn, sem þeir eiga engan kost á að hlutast til um, hvernig skipuð er. Það hefir jafnvel komið til orða að hafa einn yfirdómstól yfir alt landið, til þess að setja niður misklíðir, sem kynnu að rísa af þessum ástæðum milli sveitarfjelaga og utansveitarmanna. En þar sem hjer er farið fram á að koma þessu á í Reykjavík, verður ekki sjeð, að neitt geti verið því til fyrirstöðu að heimila bæjarbúum sama rjett. Þetta viðurkendi hv. frsm. minni hl. einnig, en taldi, að þessu mundi aðallega verða beitt við hærri útsvörin, og mundu þá þeir hinir lægri gjaldendur verða fyrir misrjetti. En ef þeir, sem gjalda lágt útsvar, telja það ekki ómaksins vert að áfrýja úrskurði bæjarstjórnar, eru þeir engu bættari, þó að enginn annar megi skjóta máli sínu til æðra úrskurðarvalds. Þeir missa ekkert við það og er ekki gert rangt til. Það er altaf talið, að meira sje vert um, að stórar upphæðir sjeu lagðar rjettlátlega á, og ef litið er á, hverjum málum er oftast skotið til æðri dómstóla, þá eru það stórmálin, sem frekar eru reynd til þrautar, þau málin, sem meira veltur á. Hjer er því fullkomið samræmi við það, sem er á öðrum sviðum viðskiftalífsins.

Það má einnig segja, að minni trygging sje fyrir óhlutdrægum úrskurði í bæjarfjelagi, þar sem bæjarstjórn hefir æðsta úrskurðarvald, heldur en í sveitum, þar sem úrskurðarvaldið er hjá sýslunefndum. Þar jafnar hreppsnefnd niður, en svo má skjóta gerðum hennar til sýslunefndar, en hún er í raun og veru minni aðili í málinu heldur en bæjarstjórn í bæjum. Þar eiga sæti menn úr mörgum hreppum, og sá hreppur, sem er aðili málsins, á þar aðeins einn fulltrúa. Því er dómur sýslunefndar fremur viðunandi en bæjarstjórnar. Þetta segi jeg að bæjarstjórnunum ólöstuðum, og má alls ekki skilja það svo, sem jeg sje að bera þeim á brýn, að þær hafi beitt menn ranglæti.

Þá er í brtt. sleginn tvöfaldur varnagli við því, að menn misnoti þessa heimild til áfrýjunar. í fyrsta lagi verður útsvarið að muna 10% frá því, sem dæmist rjett að vera, til þess að menn fái nokkra leiðrjettingu, og í öðru lagi verður áfrýjandi að greiða málskostnað, allan, ef hann tapar málinu, en hálfan, ef hann vinnur það. Get jeg ekki sjeð, að bæjarmönnum sje gert of hátt undir höfði, þó að þeir megi áfrýja úrskurði bæjarstjórnar með þessum skilmálum.

Hvort gjalddagi eigi að vera einn eða tveir, skal jeg ekki leggja neitt ofurkapp á. En mjer hefir fundist tekjuskattur og útsvar koma ónotalega við mig og aðra, vegna þess hve stór upphæð er krafin þar í einu lagi. Þar sem hv. frsm. minni hl. sagði, að bærinn mundi þá þurfa að taka lán í bili, til þess að fleyta sjer áfram, getur það ekki átt við, ef alt kæmi inn á gjalddaga, því að útgjöldin koma ekki öll yfir í einu; þau koma smátt og smátt. En ógæfan er, að útsvörin heimtast ekki öll á gjalddaga. Og er þá þess að vænta, að betur gangi að innheimta helmingi meiri fjárhæð á gjalddaga heldur en hingað til? Hjer er og ekki farið fram á að dreifa greiðslunni, því að nú eru gjalddagar tveir á útsvörum. Aftur eru nú lögð há viðurlög, sje gjaldið ekki greitt á rjettum tíma. Hingað til hefir greiðslan verið dregin von úr viti, og hefir bærinn því orðið að taka lán til þess að greiða aðkallandi gjöld. En nú eru þau viðurlög, að gjaldandi verður að greiða bænum vexti, og ætti það að stuðla mikið til þess, að menn greiði á rjettum tíma. En geri þeir það ekki, þá fær bærinn uppborinn kostnað sinn við lántökuna og ríflega það, frá óskilamönnunum sjálfum. Og ef þetta yrði til þess, að útsvörin yrðu að mestu leyti greidd á gjalddaga, þyrfti ekki að koma til þess, að bærinn yrði neyddur til að taka lán, af því að gjalddagar væru tveir. Auðvitað kostar það nokkuð meira að krefja tvisvar inn útsvarið, en þar sem útsvörin eru há, mundi það reynast mjög óvinsælt, ef alt væri krafið í einu. Og reynslan yrði sú, að menn mundu vilja borga eitthvað af, til þess að kaupa á sig frið, og mundi það verða samþykt af bæjarins hálfu. Meiri hlutinn telur því heppilegra, að gjalddagar sjeu tveir, án þess að hann leggi þó sjerstakt kapp á það.