08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1914 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)

61. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):

Það væri ekki ástæðulaust að setja ákvæði um utansveitarmenn, sem hafa atvinnu í bænum, þótt ekki sjeu nema 1 eða 2 nú. Það er að rísa upp þorp rjett við bæjarmörkin, og hafa 80 hússtæði verið auglýst til sölu þar. Er því full ástæða til að leggja á þá menn, sem ætla á þennan hátt að skjóta sjer undan útsvarsgreiðslu í Reykjavík, en njóta allra hlunninda bæjarins.