26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

1. mál, fjárlög 1925

Klemens Jónsson:

Jeg hafði varla búist við því að þurfa að taka til máls aftur við þessa umræðu. Jeg bjóst ekki við því, að orð mín í gær þyrftu að vekja nokkrar deilur. En sökum ýmsra ummæla sem fram hafa komið við þessar umræður, get jeg ekki annað en tekið til máls, og skal jeg vera eins stuttorður og mjer er frekast unt. Jeg tek málin eftir þeirri röð, sem jeg hefi „nóterað“ þau niður undir umræðunum.

Jeg gat þess í gær, að mjer kom það nokkuð á óvart, að hv. fjvn. leggur til, að 25000 kr. verði varið til fjárkláðalækninga. Mjer er ekki kunnugt um, að neinar raddir hafi heyrst um það, að fjárkláði væri að aukast í landinu eða að þörf væri á mikilli fjárveitingu í þessu skyni. Hæstv. atvrh. (MG) gat þess, að það hefðu verið nýjar upplýsingar fyrir fjvn., að aðeins hafi verið varið nokkrum hundruðum króna til fjárkláðalækninga síðastliðið ár. Þessu furða jeg mig á, því jeg hjelt nú satt að segja, að nefndin hefði leitað sjer upplýsinga í þessu máli, og hefði hún viljað fá slíkar upplýsingar, þá þurfti hún ekki annað en að síma til ríkisbókara og spyrjast fyrir um þetta atriði hjá honum. Úr því ekki þurfti að verja nema nokkrum hundruðum króna til fjárkláðalækninga síðastliðið ár, þá eru litlar líkur til þess, að svona mikið fje þurfi til þess næsta ár. Jeg held því, að þessi upphæð sje óþarflega há hjá háttv. fjvn. Hæstv. atvrh. gat þess, að gott væri að hafa upphæðina nógu háa, ef á þyrfti að halda, því það fje, sem afgangs yrði, sparaðist þá. En það mætti nú segja um svo marga liði í fjárlögunum, að gott væri að hafa þá sem hæsta, þó ekki væri víst, að á öllu fjenu þyrfti að halda. Hv. frsm. fjvn. mintist líka á þetta atriði og gat þess, að árið 1922 hefðu baðlyf verið keypt fyrir 57 þús. kr. En þetta er misskilningur hjá hv. frsm. Allur fjárkláðakostnaðurinn var það ár 57 þús. kr. Jeg veit ekki nákvæmlega, hvað mikið var keypt af baðlyfjum það ár, en það var ábyggilega ekki eins mikið og hv. frsm. fjvn. hjelt fram, en reyndar fór mikið fje til baðlyfjakaupa. Hv. frsm. hjelt því fram, að baðlyfin hefðu verið látin liggja hjer í Reykjavík, en það er ekki rjett. Þau voru sennilega mest seld hjer, en þau voru líka, eins og jeg áður hefi tekið fram, til sölu úti um alt land. Hv. frsm. hjelt því fram, að baðlyfin hefðu reynst illa, en jeg held, að það sje ekki mikið á þeim sögum að byggja, sem um það hafa heyrst. Sumstaðar er sagt, að þá hafi reynst illa, en aðrir segja aftur á móti, að þau hafi reynst ágætlega. Háttv. frsm. gat þess, að þau hefðu reynst illa í Eyjafirði, og það má vel vera. En jeg veit með vissu, að þau reyndust annarsstaðar ágætlega, t. d. í Árnessýslu. Það hefi jeg frá bestu heimild. Hv. frsm. gat þess, að heyrst hefðu raddir víðsvegar af landinu um það, að þörf væri á kláðaútrýmingu. En jeg fyrir mitt leyti hefi ekki heyrt, að nein brögð væru að fjárkláða nú, nema ef vera skyldi í Dalasýslu og Vestur- Húnavatnssýslu. Jeg vil ekki beinlínis mótmæla þessari fjárveitingu, en ef ekki er þörf á að verja svona miklu fje í þessu skyni, þá finst mjer engin ástæða til þess að veita það.

Þá var minst á mann til leiðbeiningar við húsagerð í sveitum. Hæstv. atvrh. (MG) gat þess, að ýmsir bændur hefðu yfirleitt gott álit á þeim manni, sem undanfarið hefir gegnt því starfi, og skal jeg ekki vefengja það. Háttv. frsm. hjelt því fram, að jeg hefði verið of harður í garð þessa manns, en jeg held, að það sje ekki rjett. Jeg fór alls ekki neitt ver með hann en hann átti skilið. Mjer virtist það koma skýrt fram hjá hv. frsm., að hann teldi, að jeg hefði beitt mann þennan harðýðgi, en jeg held, að slíkt verði samt alls ekki með sanni sagt. Þrátt fyrir það, þótt hann gæfi enga skýrslu um gerðir sínar eða hvað hann hefði í hyggju að gera sumarið 1923, heldur dundaði við að byggja hús fyrir sjálfan sig hjer í bænum, þá ljet jeg það afskiftalaust þangað til í desembermánuði í vetur. Þá sagði jeg honum, að þetta gæti ekki gengið svo lengur. Þá heyrðist mjer helst á honum, að honum væri ekki neitt sjerlega sárt um stöðuna. En þrátt fyrir þetta alt vildi jeg ekki svifta manninn stöðunni fyrirvaralaust, heldur tilkynti jeg honum, að það yrði hætt að borga honum út laun hans 1. apríl. Jeg gaf honum því þriggja mánaða frest og tækifæri til þess að leita til þingsins, og slíkt get jeg ekki kallað harðýðgi. Nú hefir þessi maður gefið hv. fjvn. skýrslu um starfsemi sína og lofar öllu fögru, og það má vel vera, að hann efni það.

Hæstv. atvrh. gat þess, að ef brtt. fjvn. yrði samþykt, mundi hann skoða það sem yfirlýsingu þingsins um, að maðurinn skyldi halda styrknum einnig þetta ár, og tel jeg það rjetta skoðun. Annars vil jeg í sambandi við þetta mál geta þess, að jeg veit ekki, hvort það er rjett að hvetja bændur til bygginga á þessum tímum, þar sem bæði efni og kaup er afardýrt. Jeg efast um, að það sje búhnykkur að byggja mikið á þessum tímum.

Hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) mælti mjög með brtt. sinni viðvíkjandi hafskipabryggju á Ísafirði. Það var helst að heyra á hv. þm., að hann áliti, að jeg hefði verið skyldur að taka fjárveitingu þessa upp í fjárlagafrv. stjórnarinnar, og að minsta kosti væri jeg og sá flokkur, sem jeg tilheyri, skyldur að greiða atkvæði með brtt. En jeg get alls ekki fallist á, að þetta sje rjett hjá hv. þm., þó mjer væri kunnugt um þá samninga kaupstaðarins, sem hann nefndi og jeg staðfesti þá. Jeg verð að benda hv. þm. á það, að það er til þess ætlast, að kaupstaðirnir hafi fulla sjálfstjórn í öllum sínum málum, þó þeir eigi að leita samþykkis stjórnarráðsins til ýmsra ráðstafana. Samþykkið er því oft varla annað en formsatriði. Jeg skal nefna eitt gott dæmi því til sönnunar. Meðan jeg var ráðherra var samþykt reglugerð í einum kaupstaðanna og í þeirri reglugerð var ákvæði, sem mjer þótti mjög varhugavert að samþykkja. Jeg sendi því skjölin aftur til hlutaðeigandi bæjarstjórnar og benti henni á þetta og bað hana um að taka þetta til rækilegrar íhugunar. En bæjarstjórnin hjelt fast við sitt áform og vildi í engu breyta reglugerðinni og lagði eindregið til við stjórnina, að hún notaði ekki þann formlega rjett, sem hún hefði til þess að neita reglugerðinni samþykkis, og jeg taldi mjer ekki fært að neita um það, þó jeg teldi ákvæðið mjög óheppilegt, eins og síðar kom á daginn að það var. Jeg get því alls ekki álitið, að þótt jeg sem ráðherra legði samþykki mitt á þessa samninga Ísafjarðarkaupstaðar, þá sje jeg sem þingmaður skyldur til að greiða atkvæði mitt með þessari brtt., og því síður finst mjer flokkurinn geta talist skyldugur til þess. En af því, að telja má víst, að hjer sje ekki um neina útborgun að ræða fyrir ríkissjóðinn, því það mun koma til borgunar dýrtíðarláns, sem aldrei verður endurgreitt hvort sem er, þá get jeg greitt atkvæði með þessari brtt.

Hæstv. forsrh. gat þess í ræðu sinni, að jeg gæti ekki annað en haldið með öllum þeim till., sem komu frá fyrv. stjórn. í sambandi við þau ummæli hans vil jeg geta þess, að jeg var alls ekki einráður um alla liði fjárlagafrv. í 14. og 15. grein fjárlagafrv. og víðar eru fjárveitingar, sem alveg heyra undir annan ráðherra. Og þótt samkomulagið milli okkar ráðherranna væri yfirleitt mjög gott við samningu fjárlagafrv., er þó altaf eitthvað, sem hlýtur að bera á milli. Sjerstaklega var einn liður nokkurt ágreiningsefni, og það er styrkurinn til sjera Jóhannesar L. Lynge, sem minst hefir verið á. Eitt sem hæstv. forsætisráðherra sagði í sambandi við þann styrk, get jeg alls ekki felt mig við, og verð því að gera nokkra athugasemd við það. Hæstv. forsrh. sagði, að þessi maður hefði verið tekinn úr embætti sínu til þess að gegna orðabókarstarfseminni. En hver tók hann úr embætti! Jeg held, að hann hafi að minsta kosti ekki verið tekinn nauðugur, heldur hafi það verið gert fyrir þrábeiðni hans af nánasta venslamanni hans einum hjer á þinginu, sem aldrei skyldi verið hafa. Annars finst mjer vera farið fulllangt í lækkun til þessa manns, því úr því hann einu sinni er kominn að þessu starfi, — sem hann vitanlega er ekki vaxinn — álít jeg rjett að láta hann hafa svo mikið, að hann geti dregið fram lífið, en það hygg jeg, að hann geti varla af 4000 kr. með sína stóru fjölskyldu. Jeg hefi því hugsað mjer að styðja, ef til kemur, brtt. við 3. umr. fjárlagafrv., að hann fái 5 þús. kr.

Hv. 2. þm. Árn. (JörB) virtist álasa mjer fyrir að hafa ekki tekið upp í fjárlagafrv. hærri styrk til Þórðar Flóventssonar. Jeg viðurkenni það fyllilega, að þessi maður er mjög duglegur og áhugasamur og hefir unnið þarft verk á ferðum sínum. En mjer skildist á hv. fjvn. í fyrra, að styrkur sá, sem honum var þá veittur, ætti að vera þóknun til hans í eitt skifti fyrir öll, en það væri ekki ætlast til, að hann fengi árlegan styrk. Jeg var því í vafa um, hvort jeg ætti að taka þennan styrk upp í fjárlögin eða ekki. Jeg áleit þó rjett að gefa þinginu kost á að athuga, hvort það vildi veita honum styrk áfram, og mjer finst 600 kr. vera fullsæmileg þóknun til þessa gamla manns fyrir starf hans.

Jeg hefi nú svarað flestu, sem jeg þarf að svara. Viðvíkjandi styrk til markaðsleitar skal jeg taka það fram, að jeg er þeirrar skoðunar, að 5 þús. kr. sje fulllágt. Jeg hefi því afráðið að greiða atkvæði með brtt. hv. fjvn. Hærra finst mjer ekki hægt að fara.

Jeg sje nú ekki ástæðu til að fara út í fleiri brtt., þó ýms ummæli hafi fallið í minn garð, sem jeg hefði ástæðu til að svara, en jeg vil ekki lengja umræðurnar meira, því það er þegar áliðið kvölds og það er meiningin að ljúka þessari umr. í nótt.

Jeg get sagt líkt og hæstv. fjrh., að jeg mun verða með flestum lækkunartillögunum, en móti flestum hækkunartillögunum.