25.04.1924
Efri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (1386)
61. mál, bæjargjöld í Reykjavík
Guðmundur Ólafsson:
Jeg hjelt ekki, að jeg þyrfti að taka til máls við þessa umr. En mjer líst illa á það, að þingið varpi af sjer ábyrgð á lögum, jafnvel á svo virðulegan aðilja sem bæjarstjórn Reykjavíkur. Þetta álít jeg hála braut. (SE: Það er ekki meira en að sýslurnar ráði sinni löggjöf). Gera þær það! Altaf heyrir maður eitthvað nýtt. Jeg þekki hvergi til, að þær geri það. Hæstv. fyrv. forsætisráðherra er þá ekki betur að sjer í lögum en þetta.
Eitt af þeim málum, sem voru til meðferðar í dag, gæti bent okkur á að vera ekki fljótfærir með að semja lög. Það er engan veginn skemtilegt fyrir þingið að þurfa að gera stórfeldar breytingar á lagasmíðum sínum á næsta ári, eða nema lög frá síðasta þingi úr gildi nú, eins og farið er að tíðkast. Jeg vil ekki fá ábyrgð bæjarstjórnar fyrir mínu atkv. En mjer finst ekki mega minna vera en nefndin láti í ljós ákveðið álit um frv.