29.04.1924
Efri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

61. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Eggert Pálsson:

Mál þetta snertir eingöngu Reykvíkinga og ekki aðra. Er augsýnilegt, að það er töluvert hitamál hjer innanbæjar.

Hv. 2. þm. G.-K. (BK) hjelt því fram í ræðu sinni, að breytingin á þessu gjaldi mundi koma mest niður á fátæklingum bæjarins. Benti hann, því til sönnunar, meðal annars á eitt dæmi, sem sje, að á manni, sem hefði 10 kr. útsvar, hækkaði gjaldið um 134 kr. Maður þessi virðist óneitanlega, eftir útsvarinu að dæma, vera í flokki fátæklinga bæjarins, þótt hann kunni eigi að vera í flokki þeirra allra fátækustu.

Hv. 1. landsk. þm. (SE) hjelt því hinsvegar fram, að með því að breyta gjaldinu þannig, þá yrðu þeir allra fátækustu betur úti en ella. Þetta getur ekki verið rjett. Þeir allra fátækustu bera vitanlega ekkert útsvar, og geta þar af leiðandi ekki grætt við breytinguna. Hinsvegar ber þess að gæta, að við þetta aukna húsa- og lóðargjald hlýtur húsaleigan að hækka, og það kemur niður á þeim fátækustu, sem verða að leigja sjer húsnæði.

Það er í raun og veru ekki okkar utanbæjarmanna að kveða upp dóm um það, hvor málstaðurinn er rjettari eða hagkvæmari. En hinsvegar, úr því að við erum til þess kallaðir að leggja dóm á málið, þá finst mjer skynsamlegra fyrir okkur að fara varlega í sakirnar. Jeg gat þess við 2. umr. málsins, að jeg hefði skrifað undir nál. með þeim fyrirvara, að ef till. kæmi fram um að lækka gjaldið, þá myndi jeg greiða henni atkvæði. Jeg lít sem sje þannig á, að ef reynslan sýnir Reykvíkingum, að þeir hafi hitt á heppilega leið með þessu gjaldi, þá megi altaf hækka það, en ef hún aftur á móti leiðir hið gagnstæða í ljós, þá er hægra að bæta úr vandanum og sleppa gjaldinu aftur, því lægra sem það hefir verið sett í byrjuninni. Held jeg því, að best sje að greiða brtt. atkvæði. Hvort það verður málinu að fótakefli, að þær verða samþyktar, fer eftir því, hvernig hv. Nd. tekur í málið. Ef hún vill, að málið nái fram að ganga þrátt fyrir brtt., þá er henni það innan handar að koma því í gegn; en vilji hún láta breytingarnar á frv. verða því að falli, þá er það hennar sök.