26.02.1924
Efri deild: 6. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1969 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)

29. mál, hæstiréttur

Björn Kristjánsson:

Jeg get ekki að því gert, að mjer er það dálítil ráðgáta, hvernig á því stendur, að komið hafa fram frv. til breytinga á stjórnarskránni, — og svo að þetta frv. er nú fram komið.

Jeg sætti mig svo vel við þá niðurstöðu, sem mál þetta fjekk á síðasta þingi, og jeg feldi mig mjög vel við nál., sem þá kom fram á þskj. 344; en það skýrir frá áliti hæstarjettardómaranna, sem allir voru á móti breytingunni. Og nefndin mælir heldur ekki með henni þá — síður en svo. Hún leggur til, að málinu sje vísað til stjórnarinnar, sem heldur ekki vill sinna því.

Hið eina, sem nefndin segir frá eigin brjósti, er, að ekki sje vert að hrapa að breytingum, og er jeg því mjög samþykkur.

Jeg hefi altaf verið á þeirri skoðun, að ekki beri að breyta lögum þessum, og síst hrapa að því, og engar nýjar upplýsingar, sem hrekja þessa skoðun, hafa komið fram svo jeg viti til.

Dómstóllinn hefir nú náð trausti þjóðarinnar, og því trausti má engan veginn glata. Og rjett er það, sem dómararnir í hæstarjetti segja, að „betur sjái augu en auga“, enda töldu 4 þeirra það „allsendis óráðlegt“ að fækka dómurum rjettarins, en hinn fimti telur það því aðeins gerlegt, að dómstigin yrðu höfð þrjú, sem ekki myndi verða til sparnaðar, heldur þvert á móti.

Það er því ekki furða, þótt nefndin og fleiri vildu ekki hrapa að því að veikja hæstarjett. Og dómararnir hafa eflaust líka haft það á bak við eyrað, að val dómara í hæstarjetti er sjaldnast alveg ósnortið af hinum pólitísku flokkum í landinu, og því skaðlegri geta þau áhrif verið, er dómaraskifti verða, sem dómararnir eru færri. Það verða altaf flokkspólitískir ráðherrar, er „innstilla“ hæstarjettardómara, eins og aðra embættismenn, er konungur skipar.

Jeg hefi orðið þess var, að sumir álíta, að dómurinn þurfi ekki að vera svona margmennur, af því að þjóðin sje svo smá. En jeg sje ekki betur en að þó að þjóðin sje fámenn, þá eigi hún engu að síður rjett á því, eins og stærri þjóðir, að tryggja sjer rjettdæmi — og til þess má síst spara.

Að vísu er fjárhagurinn þröngur, og það hefir hann oft verið, en aldrei, fyr en síðustu árin, hefir verið ymprað á því að veikja dómstólana í landinu í sparnaðarskyni. Það er nýi tíminn, hinn hlífðarlausi nýi öfgatími, sem gengur þá braut.

Jeg er sparnaðarmaður og hefi altaf verið, en jeg vil þó ekki fara út í neinar öfgar, og jeg veit, að sparsemin getur leitt mann það langt, að maður sje að spara skildinginn, en fleygja dalnum. En í þessu tilfelli myndi svo fara. Að sjálfsögðu vil jeg þó lofa nefnd enn á ný að íhuga mál þetta, en býst þó ekki við, að jeg fái þær upplýsingar nýjar, sem geri mjer fært að greiða frv. atkv. mitt.