26.02.1924
Efri deild: 6. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1971 í B-deild Alþingistíðinda. (1425)

29. mál, hæstiréttur

Jónas Jónsson:

Út af þeim ummælum háttv. 4. landsk. (JM), að ekki væri einhlítt að spara einungis á einstökum liðum, eins og t. d. til hæstarjettar, vil jeg benda honum á fjárlagafrumvarpið fyrir 1925, sem lagt hefir verið fyrir þingið. Ætti honum að vera það kunnugt, eins og öllum háttv. þingdeildarmönnum, að á næsta ári er ekki gert ráð fyrir, að nokkur brú verði bygð, enginn vegarspotti lagður og, í einu orði sagt, ekkert lagt til verklegra framkvæmda. Lengra verður því tæplega komist með sparnaðinn á þeim sviðum. Skil jeg ekki annað en háttv. þm. sjái, að gerð er tilraun til að spara meira en á einum lið. Útreikningur háttv. 4. landsk. um eyðslu til embættismannastjettarinnar var alt of lágur. Sá kostnaður er auðfundinn með því að draga frá gjaldahlið fjárlaganna vexti og afborganir af lánum, eldsneyti til vita og annara bygginga. Verða þá eftir um 6 milj., sem að mestu ganga til starfsmannahalds á ýmsu sviði.

Annars hefði jeg talið best, ef hægt hefði verið að sameina lagadeild háskólans og hæstarjett að nokkru leyti, sem jeg hygg, að vel mætti, því jeg veit t. d. um einn mann í rjettinum, sem með mjög góðu móti gæti og vildi einnig gegna kenslu við háskólann. Sömuleiðis er líka einn af háskólakennurunum, sem nú gegnir dómarastörfum við rjettinn.

Viðvíkjandi því, sem háttv. 4. landsk. sagði, að það væri mikil eyðsla fyrir embættismenn að eyða árunum, sem gengju til námsins, þó aldrei nema þjóðfjelagið gæfi kensluna, er því að svara, að það er einmitt sú eyðsla, sem flestir láta af hendi með gleði. Því að kröfur tímans um aukna mentun eru nú orðnar svo háværar, að ekki allfáir eyða bæði tíma og fje, ekki svo litlu oft á tíðum, sjer til mentunarauka, án þess þeir hafi nokkra ágóðavon af því, aðra en að auka þekkingu sína og hinn andlega sjóndeildarhring. Legg jeg því ekki mikið upp úr þessari miklu fórnfýsi, sem háttv. þm. var að tala um í þessu sambandi.

Jeg er alveg sammála háttv. þm. um það, að stefna samtíðarinnar sje sú, að kasta mönnum ekki á klakann, sem kallað er. En við erum nú ekki komnir svo langt ennþá, að við getum fylgt þeirri stefnu. Við höfum t. d. ekki komið á enn hjá okkur almennum slysa- eða ellitryggingum. Það er t. d. sagt, að sjómennirnir á togurunum endist ekki nema 10 ár við slíka vinnu. Hvað er svo gert við þá þar á eftir? Ekkert annað en þeim er kastað á klakann.

Jeg er ekki að halda því fram, að þetta sje eftirsóknarvert; síður en svo. En úr því tímarnir eru nú einu sinni svona, virðist ekki nema rjettlætiskrafa, að líkt gangi yfir allar stjettir manna í þessu efni.

Jeg sje ekki ástæðu til að vera að blanda mjer inn í deilur fjölskyldunnar, að því er snertir ræðu háttv. 2. þm. G.-K. (BK). Hún var, sem vænta mátti af honum, öll ein vanhugsun. Beindi hann ásökunum sínum helst gegn háttv. 4. landsk. Læt jeg þá því tvo um það, enda hygg jeg flm. (JM) fullfæran að bera af sjer spjótalög þessa samherja hans.