19.03.1924
Efri deild: 23. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (1440)

29. mál, hæstiréttur

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg hefi ásamt fjórum öðrum hv. deildarmönnum leyft mjer að koma fram með brtt. við frv. það, er hjer liggur fyrir, á þskj. 160, er fara í þá átt, að hæstirjettur fái að halda dómstjóra sínum.

Jeg mintist á þetta atriði við 2. umr. þessa máls, og get því verið stuttorður nú.

Frv. það, er hjer liggur fyrir, er borið fram af hv. flm. þess í sparnaðarskyni og til þess að koma í veg fyrir það, að farið verði að sameina hæstarjettardómaraembætti við kenslu í lögum við háskólann. Tilgangur þess næst að því er bæði þessi atriði snertir, þó breyting sú nái fram að ganga á frv. eins og það liggur nú fyrir, sem við förum fram á.

Jeg þykist þess nefnilega fullviss, að sanngjarnt og rjett myndi þykja, að væntanlegur forseti í hæstarjetti fengi einhver laun eða þóknun fyrir þau sjerstöku störf, er á honum hvíla umfram hina hæstarjettardómarana, eins og líka hæstirjettur gengur út frá í álitsskjali sínu, og sú þóknun þarf ekki að vera mikil til þess, að sparnaðurinn við niðurlagningu dómstjórastöðunnar verði hverfandi.

Það getur því ekki verið neitt kappsmál fyrir hv. flm. eða hv. allshn. að halda fast við þessa breytingu, enda lýsti hv. flm. og frsm. nefndarinnar því yfir við síðustu umræðu, að svo væri ekki, þótt ekki vildi hann lofa, að nefndin kæmi fram með brtt. í þessa átt.

Okkur flm. brtt. á þskj. 160 þykir gengið nógu nærri hæstarjetti með breytingum þeim, sem frv. gerir á honum — og sumum alt of langt — þótt hann fái að halda dómstjóra sínum sem sjerstökum embættismanni.

Oss flm. þykir það mundu rýra hæstarjett jafnvel ennþá meira en dómendafækkunin og niðurlagning hæstarjettarritaraembættisins, ef dómstjórinn yrði aftekinn og skiftandi forsetar kæmu í stað hans. Dómstjóri hæstarjettar er höfuð dómarastjettar þessa lands, alveg á sama hátt eins og biskupinn er höfuð kennimannalýðsins, landlæknir höfuð læknanna og forsætisráðherra höfuð framkvæmdarvaldsins, og jeg fyrir mitt leyti álít stöðu hans eins virðulega og þýðingarmikla og stöður hinna. Hver einasti upplýstur maður í landinu veit nú, hver er dómstjóri hæstarjettar, og svo á það að vera, en hver af ykkur, hv. deildarmenn, veit t. a. m. nú, hver er háskólarektor í ár? Jeg veit það að minsta kosti ekki. — Að muna ekki með vissu, hver væri dómstjóri í þeim rjetti, sem landsmenn eiga eiginlega alt sitt undir, þætti mjer næsta óviðurkvæmilegt.

Jeg veit ekki, hvaðan hv. flm. hefir komið hugmyndin um að leggja þetta embætti niður. Þjóðin hefir ekki heimtað það. Jeg hefi að minsta kosti ekki orðið þess var, að þess hafi verið krafist á nokkrum þingmálafundi eða að nokkurt blað hafi minst á, að það væri tiltækilegt, hvað þá heldur nauðsynlegt.

Fyrirkomulag það, sem koma á í staðinn, forsetakosning, get jeg ekki sjeð, að hafi neitt til síns ágætis fram yfir hitt. Jeg fyrir mitt leyti er hræddur um, að dómstjórastörfin yrðu ver rækt, ef sami maður ætti ekki að hafa þau nema eitt eða tvö ár í einu á hendi, og ábyrgðartilfinningin fyrir því, að alt fari vel úr hendi að því er rjettinn snertir, ef hún á aðallega að hvíla á 3 mönnum, í stað eins.

Forsetaval gæti og leitt út í ógöngur og til þess, að rjetturinn yrði höfuðlaus og enginn forseti kosinn.

Hvernig færi t. a. m., ef dómararnir þrír kysu hver annan til forseta, eða segjum, að hver þeirra kysi sjálfan sig. Hver þeirra fengi þá eitt atkvæði og enginn yrði kosinn, ef stífni kæmist í málið, og rjetturinn þá höfuðlaus og óstarffær. Til þessa ætti ekki að stofna að nauðsynjalausu.

Jeg vona því, að háttvirt deild, eða meiri hluti hennar, verði okkur flm. brtt. á þskj. 160 samdóma um það, að enginn nauður reki til að fara að gera þessa breytingu á hæstarjetti, og samþykki brtt. okkar.

4. brtt. gengur í þá átt, að 11. gr. frv. falli alveg niður. Við nánari athugun sjest, að ef fella á frv. þetta inn í lögin frá 1919, þarf að gera fleiri breytingar á þeim, og hæstarjettarlögin eru ekki svo mikið notuð af almenningi, að nauðsyn sje á, að þau sjeu í einu lagi.

Þá hefir hv. frsm. allshn. tjáð mjer, að nefndin mundi bera fram frv. um breytingu á launalögunum, til þess að samræma þau þessu frv., ef það verður að lögum enda er það nauðsynlegt, að minsta kosti að því er hæstarjettarritarann snertir.