25.04.1924
Neðri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (1452)

29. mál, hæstiréttur

Jörundur Brynjólfsson:

Það kann nú að þykja undarlegt, að menn úr allshn. skuli standa upp til að andmæla frsm. nefndarinnar. En jeg hygg þó, að menn furði sig ekki á því, er þeir hafa heyrt alla málavexti. Eins og nál. ber með sjer, leggur nefndin óklofin til, að frv. verði samþykt óbreytt. Nú hefir háttv. frsm. (JK) látið í ljós, að hann sje samþykkur brtt. hv. 4. þm. Reykv. (MJ), og hann á sæti í allsherjarnefnd. Ef sú sætt, sem gerð var í nefndinni, hefði staðið, hefði jeg ekki þurft að kveðja mjer hljóðs nú, enda þótt jeg sje allvíða ósamþykkur nál. Jeg skrifaði undir það af tilhliðrunarsemi og vildi ekki gera ýms ummæli þar að ósamkomulagi, þótt jeg feldi mig ekki við þau. Nú hafa þeir hv. frsm. og hv. 4. þm. Reykv. klofið nefndina. Vjer hinir nefndarmenn erum því lausir allra mála um það, er í nál. stendur og er andstætt okkar skoðun. Jeg er ekki að lasta, að þessi skoðun komi fram, en það hefði verið viðkunnanlegra, að hún hefði komið fram í nefndinni sjálfri heldur en gefa út sameiginlegt nál. fyrst. Það var bæði þinglegra og sýndi, að menn skiftust eftir skoðunum, en um þessa framkomu er alt öðru máli að gegna. — Það atriði í nál., sem jeg vildi ekki taka afstöðu til, var miðdómstigið. Jeg ljet í ljós þegar í nefndinni, að jeg vildi ekki ákveða mig um það, en að jeg vildi þó helst ekki fara þá leið, ef annað væri hægt. Mjer fanst, að eðlilegast væri að samþykkja frv. óbreytt og bíða til næsta þings og vita, hversu það gæfist, en þrátt fyrir þetta skrifaði jeg undir nál. til samkomulags, eins og jeg hefi tekið fram. Jeg varð þess var, að sumir af nefndarmönnum, eins og reyndar má sjá nú, lögðu ekki áherslu á, að málið yrði afgreitt á þessu þingi. Þeir tveir menn, er nú hafa klofið nefndina, hafa því leyst oss úr þeim vanda, er orðalag nál. hefði getað síðarmeir álitist, að maður væri bundinn við, því að vjer teljum oss alls ekki lengur bundna við nál.

Um málið sjálft er það að segja, að það er þrautrætt hjer á undanfarandi þingum. Það hefir ætíð verið borið fram í sparnaðarskyni. Og það hefir jafnan verið álitið, að rjettaröryggið yrði ekki skert fyrir þessa fækkun dómaranna, svo að nein áhrif hefði. Og þetta eru auðvitað höfuðatriðin.

Fyrri ástæðan víkur að landinu sjálfu. Það er ekki óveruleg upphæð, sem spara má ríkissjóðnum með þessu móti, að leggja niður 2 dómaraembætti og embætti hæstarjettarritara að nokkru leyti. Það verður vafalaust nær 30 þús. kr. en 20 þús., sem sparast árlega. Þetta hefir verið og er enn aðalástæðan fyrir þessu máli. Og þar sem nú er ennþá meiri ástæða en áður til að gæta hins mesta sparnaðar, eða menn hafa að minsta kosti miklu gleggri skilning á því nú, ætti þetta að vera miklu þyngra á metunum en áður.

Hin ástæðan snertir einstaklinga þjóðarinnar. Með þessum breytingum er mönnum gert auðveldara og ódýrara að leita rjettar síns en áður. Eftir þeim er opnuð leið til þess að hafa skriflega málfærslu, og verður það miklu ódýrara í framkvæmdinni heldur en það fyrirkomulag, sem nú er.

Af þessum 2 ástæðum ættu menn að geta fallist á frv. óbreytt, þar sem það er skoðun þeirra manna, sem kunnugir eru þessum málum, að öryggi rjettarfarsins yrði ekki skert í neinum verulegum atriðum. Jeg skal geta þess í þessu sambandi, að hæstirjettur hefir dæmt 10 mál frá áramótum, og er jeg alveg viss um, að þó að hann væri ekki skipaður nema 3 mönnum, þá myndi honum hafa fullkomlega unnist tími til að íhuga ekki fleiri mál svo gaumgæfilega, að dómarnir gætu verið rjettir. Jeg efast um, að 5 menn komist altaf að rjettari niðurstöðu en 3, þó að mjer komi ekki til hugar að staðhæfa það.

Þess ber og að gæta, að hjá oss er ekki svo fjölbreytt atvinnulíf, að kunnugum mönnum með mikla lífsreynslu eigi ekki að veitast auðvelt að kynna sjer nógu vel málin, er koma til hæstarjettar, til þess að geta kveðið upp rjetta dóma. Ef vjer berum oss í þessu efni saman við aðrar þjóðir, þá er æðsti dómstóll vor ekki ver skipaður með 3 mönnum en t. d. Bandaríkjanna með 9 dómurum, sem, á að leggja lokaúrskurð á mál 120 miljóna manna. Auðvitað hefir fólksfjöldinn ekki eingöngu áhrif á málefni þau, sem koma fyrir dómstólana, heldur miklu fremur hinir margvíslegu starfshættir þjóðanna og atvinnulíf, og þá mun það ljóst, að í Bandaríkjunum muni 9 menn hafa fult eins miklu að sinna og erfiðari aðstöðu að komast að rjettri niðurstöðu en 3 dómendur hjá oss.

Jeg hygg, að jeg hafi með þessum atriðum, sem jeg vjek nú að, bent nokkuð í þá átt, að fyrir þessar sakir sje óhætt að láta frv. ganga fram óbreytt. En ef svo virtist síðar, að rjettarfarið væri ekki nægilega örugt, mætti tala um það þá og gera þær ráðstafanir, sem henta þætti.

Verði brtt. hv. 4. þm. Reykv. (MJ) samþykt, sje jeg ekki, að nokkuð sje í raun og veru eftir af frv. Ef fækkun dómara í hæstarjetti á ekki að komast á fyr en miðdómstig er sett, þá er algerlega óvíst, að menn geti orðið sammála um að samþykkja þetta dómstig. Þá fellur fækkunin niður af sjálfu sjer og frv. er orðið að engu, og væri þá betur, að menn hefðu sparað sjer fyrirhöfn og kostnað af þessu máli hjer í þinginu. Það kann að vera um þá, er vilja ekki láta málið ganga fram á öðrum grundvelli en þeim, að miðdómstig verði sett, að þeir telji fækkun dómenda óheppilega frá fleiri sjónarmiðum. T. d. munu þeir, er þykjast geta gert sjer vonir um dómarasæti í hæstarjetti, ekki telja það heppilegt, að embættunum verði fækkað. Og málaflutningsmenn munu varla óska skriflegrar málfærslu, því að það mundi varla auka tekjur þeirra. En hv. deild getur ekki lagt mikið upp úr slíkum ástæðum.

Það má minna á í þessu sambandi, að nú stendur alveg sjerstaklega vel á í hæstarjetti til þess að koma breytingunum í framkvæmd. Eitt sæti í rjettinum er laust, og má búast við því áður en líður á löngu, að annað sæti losni líka. Tel jeg því einmitt nú vel til fallið að gera þessar breytingar.

Niðurlagsorðum hv. frsm. (JK), um nauðsynina á því, að rjettarfarið sje örugt, er jeg alveg samdóma, en jeg geri ekki eins mikið úr því og hann, að það sje miklum mun öruggara með 5 en 3 dómurum.

Jeg þarf svo ekki að fjölyrða frekar um þetta. En það vil jeg þó segja að lokum, að mjer þykir miður, þegar nefnd hefir unnið að einhverju máli og tekið ákvörðun um það í sátt og samkomulagi að gera engan ágreining, að einstakir nefndarmenn skuli gera slíkan klofning, þegar inn í deildina kemur, eins og nú hefir komið í ljós.