25.04.1924
Neðri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2023 í B-deild Alþingistíðinda. (1459)

29. mál, hæstiréttur

Forsætisráðherra (JM):

Jeg held, að jeg þurfi nú engu við það að bæta, sem jeg sagði áðan. Það hefir enn ekkert komið nýtt fram í málinu fyrir utan spurninguna um miðdómstigið. Það er ekki misskilningur hjá mjer, að það yrði minni sparnaður, ef það ætti að stofna miðdómstig um leið og fækkað yrði dómurum í hæstarjetti. Það kynni að verða einhver sparnaður. En jeg get ekki hugsað mjer, að í miðdómnum yrðu aðeins tveir dómarar, heldur þrír. Um hitt er jeg hv. frsm. (JK) sammála, eins og jeg hefi sagt áður, að það mætti hugsa sjer, að bæjarfógetinn í Reykjavík sæti í þeim dómi. Hann gæti þá fengið hjálp hjá meðdómendum sínum í embætti sínu, eins og komið hefir til orða í hv. Ed.

Þá er brtt. hv. 2. þm. N.-M. (ÁJ) um það, að ávalt skuli birta ágreiningsatkvæði í hæstarjetti. Þetta held jeg að sje óþarft, og nóg sje að ákveða um það á þann hátt, sem frv. gerir, því það, sem hv. þm. (ÁJ) var að tala um, að æskilegt væri, að við færum í þessu efni að dæmi Norðmanna, þá gildir þetta þar ekki aðeins um ágreiningsatkvæði, heldur líka forsendur, sem geta verið öðruvísi hjá einum dómara en öðrum. Jeg vil því ekki mæla með þessari brtt.

Um miðdóm hygg jeg, að það verði fyr eða síðar gert að setja hann, og það jafnvel hvort sem dómurum í hæstarjetti verður fækkað eða ekki.