25.04.1924
Neðri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2024 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)

29. mál, hæstiréttur

Pjetur Ottesen:

Það þarf ekki að leita vel eða vandlega til að sjá þörfina hjá okkur á því að spara; hún er öllum skynbærum mönnum augljós. Það er þessi þörf, sem kemur fram og liggur til grundvallar fyrir þessu frv. Og það er ekkert undarlegt, að þegar verið er að reyna að draga eitthvað úr útgjöldum ríkissjóðs, þá sje gripið niður á þeim stofnunum, sem settar voru á laggirnar á þeim tímum, sem einna lausast var haldið á fje landsins. Hjer ræðir um eina þeirra stofnana, sem komið var á fót, þegar einna gálauslegast var farið með fje ríkisins, þ. e. árið 1919. Jeg er ekki hjer með að halda því fram, að rangt hafi verið að stofna hjer hæstarjett, eða á því ári. Það er síður en svo; það var alveg í samræmi við þá atburði, sem þá höfðu nýlega gerst, og auk þess hefði þetta vel mátt fyr hafa skeð; en jeg held því fram, að vel hefði mátt fara varlegar í útgjöldin við stofnun hæstarjettarins en þá var gert. Á þessum árum var aðeins mjög lauslega tekið tillit til kostnaðarhliðarinnar á þeim málum, sem þá voru efst á baugi. Reynslan hefir og sýnt það, að hjer er rjett á þetta litið af mjer, því hæstirjettur hefir haft mjög lítið að gera. Árið 1920 komu fyrir rjettinn 34 mál, næsta ár á eftir 26 mál, eða að meðaltali 30 mál hvort árið, en þau tvö árin, sem síðan eru liðin, hefir málunum að vísu fjölgað dálítið, og þar með hafa auðvitað störf rjettarins aukist að nokkrum mun; en þrátt fyrir það að störfin hafa aukist vegna málafjölgunar, er sú aukning enganveginn svo mikil, að ekki væri forsvaranlegt að sameina dómarastörfin í hæstarjetti við einhver önnur störf, eða þau sje ofætlun færri mönnum að leysa af hendi, ef dómendum yrði fækkað í rjettinum. Þetta varð þegar ljóst árið 1922. Það ár fluttum við 3 þm. frv. í þessari hv. deild um það að láta hæstarjettardómarana hafa á hendi lagakensluna við háskólann. Þetta álitum við þá mjög hallkvæmt og vel samrýmanlegt. Sparnaðurinn við þetta, eftir því sem þá horfði við um laun, hefði orðið um 33 þús. kr. á ári, ef frv. okkar hefði fundið náð í augum þingsins og strax komið til framkvæmda. Jeg hefði því helst viljað ráða þessu máli nú til lykta á þeim sama grundvelli og til var ætlast með frv. 1922, og teldi jeg þessu máli þannig best skipað og haganlegast fyrir komið, ef það fyrirkomulag hefði verið upp tekið. Það atriði, sem einkum og sjer í lagi var fært til foráttu sameiningu dómarastarfanna við lagakensluna, var, að öryggi dómsins væri skert með því að láta dómarana hafa önnur störf, t. d. lagakensluna, á hendi. En jeg held nú, að reynslan hafi einkum og sjer í lagi sýnt það síðan, að þetta hefir aðeins verið til sem ástæða í orði, því í framkvæmdinni hefir algerlega verið breytt gegn þessu. Eins og kunnugt er, var einn hæstarjettardómaranna settur kennari í lagadeild háskólans árið 1922, og nú er einn af kennurunum við lagadeild háskólans settur dómari í hæstarjetti, auk þess sem ýmsir aðrir lagakennarar háskólans hafa í viðlögum verið settir dómarar í hæstarjetti. Það er og kunnugt, að einn hæstarjettardómaranna hefir um langt skeið kent kristinrjett við guðfræðideild háskólans. Þetta er því látið viðgangast í framkvæmdinni samkv. ráðstöfun stjórnarinnar, og hefir það hvergi heyrst, að rjetturinn hafi við þetta tapað áliti sínu eða orðið þetta að meini á annan hátt. Þetta sýnir betur en nokkuð annað það, sem við hjeldum fram 1922, að það mátti samrýma dómarastörfin háskólakenslunni, án þess að öryggi dómanna yrði skert, og að við þetta mundi hafa náðst meiri sparnaður en við margar aðrar tillögur, sem á prjónunum hafa verið síðan, og þar á meðal má telja þetta frv., sem hjer er til umr. Nei, þetta þótti ekki fært 1922, og vegna þeirra undirtekta, sem þetta mál fjekk þá, hefir ekki þótt fært að taka þetta mál upp aftur í þeirri mynd. Nú liggur það fyrir, að fækkað verði dómendum í rjettinum um tvo og að draga úr kostnaðinum við hæstarjett að því leyti, sem unt er, t. d. með því að leggja niður að mestu leyti 3. embættið við rjettinn, þ. e. ritaraembættið. Það má og í sambandi við það, sem jeg tók fram áðan um sameining kenslunnar í lagadeild háskólans við dómarastörf í hæstarjetti, benda á það, að bæði hæstv. forsrh. (JM) og hv. 4. þm. Reykv. (MJ), sem báðir lögðust fast á móti frv. 1922, hafa nú lagt það til, að það gæti komið til mála að láta lagakennarana vera dómara í miðdóminum. Jeg vil þó benda á það, að þó að gert sje ráð fyrir, að miðdómurinn verði ódýr dómstóll og öllum verði gert auðvelt að leita þar rjettar síns, held jeg þó, að þetta verði á annan veg í framkvæmdinni en ráð er fyrir gert nú. Þrátt fyrir það, að þessi dómstóll eigi að verða mjög ódýr, hygg jeg, að hann verði úrslitadómstigið á allmörgum málum, vegna þess að margir munu þá verða búnir að ganga svo nærri gjaldþoli sínu, að þeim verði ekki fært fjárhags síns vegna að halda málum sínum lengur til streitu og munu verða að sætta sig við úrslit málanna í miðdómnum. Sje jeg því ekki frekara öryggi í því að láta lagakennarana skipa dómarasæti í miðdóminum, því það, að vera að benda fjelausum mönnum á það, að þeir geti skotið málum sínum til hæstarjettar, er hið sama og að ráðleggja manni, sem er að deyja úr þorsta, að fá sjer vatn, sem þó er hvergi að finna.

Um þetta frv. er það að segja, að jeg mun ljá því mitt fylgi, úr því að ekki er hægt að koma fram því fyrirkomulagi, sem jeg hjelt fram 1922 og sem jeg tel allra heppilegast. Jeg greiði þessu frv. atkvæði mitt vegna þess, að jeg vil koma fram sem róttækustum sparnaði þar sem hægt er, og það því fremur, sem jeg tel öllu óhætt um það, að öryggi dómsins sje ekki þar með skert, og get jeg í því efni skírskotað til ummæla hæstv. forsrh., sem er reyndur dómari og þektur sem skarpvitur lögfræðingur. Hann telur, að öryggi dómsúrslitanna í hæstarjetti sje ekki það skert með þessu frv., að ekki megi vel við una.

Í lögunum um stofnun hæstarjettar er svo um þetta búið, að þar er gert ráð fyrir, að ekki verði aðrir menn skipaðir í dómarasæti rjettarins en þeir, sem reyndir eru að því að vera góðir embættismenn og rjettlátir og samviskusamir dómarar, og eru þær skyldur lagðar með þeim lögum stjórninni á herðar að sjá um, að þessum reglum verði framfylgt, er menn eru skipaðir í þessi embætti.

En þegar litið er á hina hlið þessa máls, hversu dýrt það er að skjóta málum til hæstarjettar, þá fæ jeg ekki sjeð, að það skifti miklu um kostnaðinn við málafærsluna þar, hversu margir dómarar sjeu í rjettinum. En það hefir verið bent á, að það mætti draga úr kostnaðinum við málfærsluna þar með því að hafa hana skriflega, en nú keyrir kostnaðurinn við málafærslu við hæstarjett svo úr hófi, að það virðist vera mjög nauðsynlegt að finna einhverja ódýrari aðferð en þá, sem nú er þar viðhöfð. Jeg trúi ekki á það, að ódýrari yrði málareksturinn hjer á landi við það, að stofnað yrði þetta miðdómstig, og ef málin verða látin ganga gegnum öll 3 dómstigin, tekur það miklu lengri tíma að ráða þeim til lykta, auk þess, sem kostnaðurinn verður auðvitað miklu meiri en áður. En út af því, sem talað hefir verið um öryggi dómsins, get jeg ekki gengið framhjá orðum hv. 2. þm. N.-M., er hann taldi þetta mundu draga úr áliti rjettarins út á við; það færi ekki eftir fólksfjölda, hversu marga dómendur þyrfti í rjettinum, heldur eftir því, hversu lögin væru flókin. Skýtur þetta nokkuð skökku við ummæli hæstv. atvrh., sem mjer skildist, að bygð væru á orðum eins af hæstarjettardómurum Dana (í hæstarjettinum í Kaupmannahöfn), að þar væri það ekki venja, að allir dómararnir rannsökuðu hvert mál til hlítar, heldur væri það falið aðeins nokkrum dómendum í rjettinum. En mjer skilst, að málafjöldinn, sem líklegt er að komi fyrir rjettinn, hljóti að fara mjög eftir fólksfjöldanum í landinu, og eftir því ætti dómaratalan að fara allmikið eftir fólksfjöldanum og því, hversu margra mála væri von, sem rjetturinn yrði að leggja úrslitadóm á. Eftir því finst mjer að dómararnir í rjettinum ættu að vera fleiri eða færri. Og þegar borið er saman við dómafjöldann í öðrum löndum, hygg jeg, að rjettarfarinu í okkar ríki ætti að vera fullvel borgið með 3 dómurum í hæstarjetti.

Hv. frsm. allshn. (JK) undraðist mjög yfir því, að nál. hefði verið misskilið af þessari hv. deild, og eins og nál. liggur hjer fyrir á þskj. 387, er þetta máske á rökum bygt, er nál. er undirritað af öllum nefndarmönnum, en þegar tekið er tillit til orða og ummæla hv. nefndarmanna sjálfra um þetta frv., fer þetta alt að verða skiljanlegra, og með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að leyfa mjer að lesa hjer upp nokkur orð úr nál., sem allir nefndarmenn hafa skrifað undir:

„Er þess vegna öll nefndin sammála um að skora á ríkisstjórnina að athuga það og undirbúa til næsta þings, að stofnað verði miðdómstig án tilfinnanlegra útgjalda fyrir ríkissjóð; leggur nefndin áherslu á þetta.“

Jeg sje ekki annað en að í þessu felist áskorun á hæstv. stjórn um að leggja fyrir næsta þing frv. um að stofna þetta miðdómstig. Skoðanamunurinn milli hv. nefndarmanna, háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) og ýmsra annara, er aðeins sá, að hv. 4. þm. Reykv. vill lögfesta þetta nú þegar, sem hinir vilja láta fresta til næsta þings. Hann vill láta gera það í dag, sem hinir vilja fresta til morguns. En nú er það komið í ljós, að þetta er í rauninni ekki meining annara en hv. frsm. (JK) eins. Hv. 2. þm. Árn. (JörB), sem líklega má nú telja frsm. meiri hl. nefndarinnar, vill þetta alls ekki og telur hina nefndarmennina vera sjer samþykka í því að vilja samþykkja frv. óbreytt eins og það liggur hjer fyrir, og þvær hann algerlega sínar hendur af því, sem hann reyndar hefir þó sett nafn sitt undir, að hann vilji nokkuð hafa með þennan miðdómstól að gera, hvorki nú nje síðar. Undir þetta get jeg tekið með hv. 2. þm. Árn. og þeim, sem honum fylgja, og mun greiða atkvæði þessu frv. vegna þess sparnaðar, sem af því leiðir, sparnaðar, sem jeg ætlast til, að ekki verði þegar jetinn upp með stofnun nýrra embætta, sem vel má án vera. Jeg álít rjettarfarið í landinu fullkomlega örugt án þess að miðdómstigið verði stofnað. Ennfremur er útlit fyrir, að þessum sparnaði megi ná að sumu leyti strax og að sumu leyti mjög bráðlega; því nú er aðeins settur maður í einu dómaraembættinu, en ekki skipaður, og auk þess er einn dómaranna orðinn aldraður maður, og því er útlit fyrir, að hann verði þess vegna að láta mjög bráðlega af embætti. Með þessum skilningi á þessu máli greiði jeg atkvæði með frv. því, sem hjer liggur fyrir.