26.04.1924
Neðri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (1472)
29. mál, hæstiréttur
Björn Líndal:
Jeg vil aðeins gera grein fyrir afstöðu minni til málsins. Jeg mun greiða atkvæði á móti frv. og óska, að það verði felt. En þar sem jeg býst samt við, að það nái fram að ganga, mun jeg, ásamt fleirum háttv. þm., koma með brtt. til 3. umr., sem miðar að því að koma í veg fyrir, að frv. skerði svo mjög rjettaröryggi í landinu, sem það óneitanlega gerir eins og það er nú úr garði gert. Mun hún ganga í þá átt, að bætt verði tveim mönnum í dóminn, þegar um er að ræða mál, sem varða líf og æru manna, og þegar föstu dómararnir 3 eru ekki sammála um dómsúrslitin.