26.04.1924
Neðri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2051 í B-deild Alþingistíðinda. (1475)

29. mál, hæstiréttur

Forseti (BSv):

Ef fara skal með hrapaði að afgreiðslu mála, sem eru örlagaþrungin og afdrifamikil fyrir þjóðina, þá ræður deildin því og ber um leið ábyrgðina, sem því fylgir. Forseti hefir ekki vald til þess að neita hv. deild um úrskurðarrjett í því efni, og getur meiri hluti kúgað minni hluta með atkvæðamagni til að slíta umræðum. Ber jeg því framkomna tillögu undir atkvæði.