26.04.1924
Neðri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1482)
29. mál, hæstiréttur
Jakob Möller:
Jæja, hæstv. forsrh. (JM) vísaði til þess, sem hann hafði áður sagt, og slíkt hið sama get jeg yfirleitt gert. Hæstv. forsrh. gerði engar tilraunir til þess að hrekja þær staðhæfingar, sem jeg bar fram um þetta mál, sem sje, að með þessu frv. sje fyrst og fremst rýrt rjettaröryggið í landinu og um leið grafið undan sjálfstæðisrjetti þjóðarinnar. Mætti vel svo fara, að með þessu væri jafnvel gatan greidd fyrir stjórnleysi og byltingum í landinu, þegar virðingin fyrir rjettarfarinu og öryggi þess er eyðilagt. Jeg hefi í fyrri ræðu minni lýst því, hvernig fara mundi, ef þjóðin misti trúna á rjettarfarið í landinu, og þessu hefir hæstv. forsrh. ekki andæft með einu orði. Hann játaði jafnvel, að sjer væri fullljóst, að í þessa átt væri stefnt með frv., og hann undirstrikaði það, að hann teldi sjer þetta vel sæmandi. Jeg öfunda hann ekkert af því. Já, það er satt, það er álitamál, hvort þm. vilja kaupa þennan sparnað svo dýru verði. Jeg verð og að líta svo á, að hv. flokkamenn hæstv. forsrh. hafi nokkra afsökun, þótt þeir fylgi honum á þessari leið, sem til glötunar liggur og hann hefir vísað þeim á. Hann hefir og sagt þeim, að þeir geti gengið að þessu með sæmilega góðri samvisku, hann telji þetta „full“-forsvaranlegt sjálfur. Jeg get að vísu fallist á það með honum, að ábyrgðin hvíli á þeim, sem samþykkja þetta; en aðalábyrgðin hvílir þó á honum sjálfum og á þeim hv. þm., sem styðja hann til þess að vera stjórnarformaður, þótt þeir sjái hvert stefnt er með þessu frv., hvort sem þeir samþykkja þetta með honum eða ekki. Það eru þeir, sem sjá, að hjer er verið að halda út í ógöngur, en vilja þó styðja hann eða hvaða stjórn sem er til þess að halda áfram á þeirri leið. — Þeirra er ábyrgðin mest. Jeg segi þetta ekki vegna þess, að jeg vænti, að mjer takist að vekja efasemdir í brjósti hæstv. forsrh. eða þeirra, sem þetta vilja forsvara með honum, heldur til þess að vekja athygli þeirra þm., sem jeg tel bera ábyrgðina á þessu með honum, ef þeir styðja hann áfram til þess að vera við völd.
Það var annars svo lítilfjörlegt, sem hæstv. forsrh. hafði fram að færa sjer til varnar, að það tekur naumast að svara því. — Hann kvað fjölgun dómaranna ekki auka neitt dómarahæfileika rjettarins, en það viðurkendi hann þó í hinu orðinu, er hann gekk inn á það, að dómurinn væri betri eftir því sem fleiri væru í honum. Þetta er nú víst það, sem menn kalla að vera ekki samkvæmur sjálfum sjer. Það er nú svo, að þótt aðeins einn dómaranna undirbúi mál hvert undir dóm, þá kemur þekking hinna einnig til að hafa áhrif á úrslit allra mála. Aðalatriðið er þetta, sem hæstv. forsrh. hefir viðurkent, að það er dregið úr rjettarörygginu, ef dómurunum er fækkað. Það er þetta, sem hv. þm verða að gera upp við sig, hvort þeir vilja vinna það til fyrir þessa litlu upphæð.