01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2062 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)
29. mál, hæstiréttur
Árni Jónsson:
Jeg á brtt. á þskj. 464. Eins og hv. þm. hafa tekið eftir, þá eru það tvö aðalatriði, sem haldið er fram í sambandi við þetta mál. Af hálfu fylgismanna þess er það sparnaðurinn, en andstæðingar frv. halda því aftur á móti fram, að fækkun dómenda hafi í för með sjer röskun á rjettarörygginu. Nú hefi jeg viljað bæta úr þessu, án þess að láta það koma niður á sparnaðartilgangi frv., og fer till. fram á það, að hæstirjettur geti kvatt í dóm með sjer 2 prófessorana við lagadeild háskólans, þegar um stór mál eða vandasöm er að ræða. Með þessu fyrirkomulagi. ætti rjetturinn ekki að þurfa að missa neins í af áliti sínu. Hitt er óhjákvæmilegt, að þetta hafi nokkurn aukakostnað í för með sjer. Sje gert ráð fyrir, að þessir 2 prófessorar verði kvaddir til að dæma í tíu málum árlega og fái t. d. 100 kr. hvor þeirra fyrir hvert mál, sem jeg býst við, að myndi láta nærri, þá yrði kostnaðurinn af þessu alls 2000 kr. Ætti þá samt að nást 90% af sparnaðartilgangi frv., ef talið er, að það spari annars 20 þús. kr.
Vil jeg því vænta þess, að hv. þdm. sjái sanngirnina í þessari till. og lofi henni að ganga fram. En jeg tek það fram, að nái brtt. hv. 1. þm. Árn. (MT) eða hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) fram að ganga, þá þarf að breyta orðalagi greinarinnar svo, að í stað „forstjóri rjettarins“ komi: dómstjóri.
Þá er hjer brtt. á þskj. 501. Er það að eins orðabreyting. Svo er nefnilega ákveðið í lögunum, að synodalrjett skipi m. a. þrír hæstarjettardómendur, þeir elstu að embættisaldri. Verði nú dómendunum fækkað um tvo, þá sitja hinir, sem eftir eru, allir í synodalrjetti. Það er því einkennilegt, að mönnum skuli hafa yfirsjest þetta, og er varla vansalaust að það verði ekki leiðrjett.