01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2067 í B-deild Alþingistíðinda. (1492)
29. mál, hæstiréttur
Frsm (Jón Kjartansson):
Jeg get verið stuttorður. Jeg sje það altaf betur og betur, að allshn. hefir gengið fulllangt í samkomulaginu um þetta mál.
Jeg lýsti því þegar yfir í fyrstu ræðu minni við 2. umr., að jeg skrifaði í rauninni undir nál. með þeim sama fyrirvara og hv. 4. þm. Reykv. (MJ), að ekki mætti skerða hæstarjett fyr en miðdómstigi hefði verið komið á. Jeg hjelt líka, að það væri vilji allrar nefndarinnar, en jeg hefi þar misskilið 2 hv. nefndarmenn, sem ekki leggja aðaláhersluna á þetta atriði. Jeg skal ekkert við því segja; við höfum bara misskilið þá í nefndinni og þeir, að því er mjer virðist, misskilið nál., sem þeir skrifuðu undir fyrirvaralaust.
Það er alveg rjett hjá hv. 2. þm. Árn. (JörB), að nefndin kom sjer saman um að flytja enga brtt. við frv. En jeg bjóst þá fastlega við því, að hæstv. stjórn og hv. deild myndu taka vel í miðdómstigið. Og jeg lagði ríka áherslu á það frá upphafi, að rjettaröryggi væri betur borgið með því að hafa dómstigin þrjú, þó aðeins væri einn dómari í miðstigi, heldur en nú er með ófullkomnu frumstigi og hæstarjetti, enda þótt þar sjeu 5 dómarar. Þessari skoðun hefi jeg altaf haldið.
Jeg er samdóma hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) um það, að jeg vona, að hv. deild eða hið háa Alþingi vilji ekki á neinn hátt raska öryggi hæstarjettar, og því er rjett, að þeir hv. þm., sem sjá, hvernig málinu er komið, reyni að bæta úr því. En þær brtt., sem hann og aðrir bera fram, voru talsvert ræddar í allshn., og voru þar skiftar skoðanir um þær. Og af því að mín aðaltill. hefir verið feld við 2. umr., lýsi jeg því yfir, að jeg þykist hafa óbundið atkv. um þessar till. Hinsvegar verð jeg að segja, ef hv. þm. Ísaf. hefir meint það, að rjett væri að setja aldurstakmarkið 60 ár, þá er það ekki rjett meðan það er bundið við 65 ár á stjórnarskránni. Því þegar stjórnarskráin segir, að veita megi dómurunum lausn, er þeir sjeu orðnir 65 ára, felst vitanlega í því, að ekki má setja þá af fyr, nema fyrir sjerstakar sakir. Jeg skal svo ekki orðlengja um málið frekar, en viðvíkjandi brtt. hv. 2. þm. N.-M. (ÁJ), sem útbýtt var hjer í dag, þá sje jeg ekki, að nefndin sje lastvert, þótt hún hafi ekki komið með þá orðabreyting. Því það er ómögulegt að misskilja þetta í lögunum, þó að það sje ekki leiðrjett. En mjer virðist málið komið út á slæma braut, þar sem bæði háttv. deild og hæstv. stjórn álíta, að miðdómstigi verði ekki komið á að svo stöddu, jafnvel ekki með einum manni, sem þó mikið myndi bæta úr skák. Vona jeg því, að hv. þdm. reyni að bæta frv. eftir því sem kostur er, ef það á að ganga fram.