01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2078 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)

29. mál, hæstiréttur

Tryggvi Þórhallsson:

Aðeins örlítil kvittun til háttv. 3. þm. Reykv. (JakM). Hann gerði gust mikinn út af því, að umræður hefði átt að skera niður um daginn, en gat þess þó um leið, að hann hefði sjálfur talað seinast, áður en það átti að gera. Jeg sje því ekki betur en að hann hafi manna minsta ástæðu til að kvarta undan því, þótt umr. væri slitið. Málið hafði þá verið hjer á döfinni 2–3 daga, og menn vildu láta það daga þar uppi. Þessi var ástæðan og engin önnur.

Jeg vildi því næst, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp kafla úr ræðu, er hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) hjelt í Ed. um þetta mál:

„Jeg get verið hv. flm. frv. samdóma um það, að það sje gerlegt, úr því að hag þjóðarinnar er nú svo komið, að spara verður alt það, er spara má, án þess þó að í hættu sje stofnað menningu hennar og sjálfstæði, að fækka dómendum í hæstarjetti úr 5 niður í 3. Jeg er honum einnig samdóma um, að fækkunin sje miklu tiltækilegri en hitt, að hlaða á dómarana öðrum störfum, sem ekkert eiga skylt við dómarastarfið, eins og t. a. m. kenslu við háskólann. Jeg er og í vafa um það, að þjóðin hafi ráð á því, að 5 af hennar allra færustu mönnum, eins og hæstarjettardómararnir eru, hafi ekki annan starfa opinberan á hendi en þann, að kveða upp dóma í 40–60 málum á ári.“

Þetta segir nú sá maður, er manna mest fæst við dóma á landi hjer, og á eftir rekur hann, hvað hann þurfi sjálfur að dæma hjer. Jeg hlýt að telja vitnisburð hans þungan á metunum. Hv. 3. þm. Reykv. og hv. þm. Ak. (BL) töluðu um illar hvatir og slæman ásetning hjá mjer í þessu máli. Ef svo er, þá hefi jeg lengi gengið með þær illu hvatir. Jeg hefi í mörg ár haldið fram þeim skoðunum í blaði mínu á þessu máli, er jeg geri enn í dag. Hv. þm. Ak. tók nú eins og oftar til þess að draga allskonar óskyld mál inn í umr. til að þjóna lund sinni. Í þetta sinn fór hann að tala um steinolíusamningana. Jeg vildi gefa hv. þm. það heilræði, að láta af þessari bardagaaðferð og koma opinberlega og heiðarlega fram á hinum rjetta vettvangi málanna.