01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2085 í B-deild Alþingistíðinda. (1501)

29. mál, hæstiréttur

Magnús Torfason:

Það er út af orðum hæstv. forsrh. (JM) um brtt. 443, sem jeg neyðist til að segja nokkur orð. Það stafar líklega af því, að hann var hjer ekki viðstaddur, er jeg mælti fyrir þessum brtt. við 2. umr., að hann álítur, að jeg sje á móti þessu máli. En það er hinn mesti misskilningur. Jeg er þvert á móti með málinu af hreinum og beinum sparnaðarástæðum, eins og hæstv. forsrh. sjálfur. En ef þessi sparnaður á fram að ganga, vil jeg, að hann komi strax nú. En í 10. gr. þessa frv. finnast þannig löguð ákvæði, að jeg sje ekki, þótt þetta frv. verði samþykt, að sá sparnaður geti komið til framkvæmda á næstu 10 árum. Það gerir einmitt 10. gr. frv. að verkum. Þessi grein varnar því hreint og beint, að stjórnin neyti þeirrar heimildar, sem felst í stjórnarskrá vorri, að víkja megi dómurum frá embættum, er þeir eru orðnir 65 ára að aldri. Með lögunum er þetta vald frá stjórninni tekið, og er jeg í engum vafa um það, að hæstarjettardómararnir muni sitja áfram í trássi við stjórnina. Það er þetta, sem jeg hefi að athuga við þetta frv. Jeg hafði hugsað mjer að koma með brtt. um að setja í lögin sjálf ákvæði um aldurstakmark fyrir setu í dómnum, til þess að auka á öryggi og bæta starfskrafta dómsins. En af því, sem upplýst er hjer af umræðunum, tel jeg þýðingarlaust að bera neitt fram, sem til bóta horfir á dómnum. Því það virðist komið á hjer í deildinni hreint og beint innflutningsbann á brtt., sem bætt gætu um frv. Lög þessi skulu ganga fram, hvernig sem frá þeim er gengið. Út af því, að minst hefir verið á hvatir manna í þessu máli, get jeg ekki stilt mig um að geta þess, að málið er þannig undir komið og flutt hjer á þingi, að jeg tel óvíst, að forbrjótar þess hafi hreinni hvatir en andstæðingar málsins.