13.03.1924
Neðri deild: 22. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)
67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands
Jón Baldvinsson:
Það eru aðeins nokkur orð, sem jeg vildi láta fylgja frv. þessu til hv. landbn., ef hún fær málið til athugunar. — Viðvíkjandi tilgangi frv. hefi jeg ekki annað en gott eitt að segja, en á hinn bóginn er það álitamál, hvort frv. fari ekki fulllangt. Því vildi jeg leyfa mjer að skjóta því til hv. nefndar, hvort hún sjái sjer ekki fært að leggja til, að því verði breytt nokkuð frá því, sem það er nú, og þá á þann hátt, að lánin verði eingöngu veitt til að koma upp nýbýlum, og skal jeg fara nokkrum orðum frekar um það atriði.
Eins og kunnugt er, hefir fólk streymt til kaupstaðanna úr sveitunum, og þá sjerstaklega til Reykjavíkur. Af þessu hefir m. a. leitt hið megnasta atvinnuleysi, svo að hina brýnustu nauðsyn ber til þess, að eitthvað verði gert til að útvega því fólki atvinnu til frambúðar. Svo lítur líka út, sem hið háa Alþingi ætlist ekki til, að fólk þetta fái atvinnu við sjávarsíðuna, því það hefir nýlega hindrað atvinnubætur þar, sem öðlast mátti með auðveldu móti, er það feldi undanþáguna frá fiskiveiðalögunum. Þá liggur sú spurning fyrir, hvort ekki sje gerlegt að beina fólksstraumnum aftur til sveitanna og hjálpa því til að komast þar af. Jeg býst nú við, að skiftar geti orðið skoðanir manna um það, hverjar leiðir sjeu heppilegastar að fara, en mín skoðun er sú, að farsælast myndi reynast að útvega efnilegum mönnum land til að stofna nýbýli á og veita þeim hagfeld lán til að koma upp nauðsynlegum byggingum og áhöfn. Og í þessu skyni ættu bankarnir, eftir því sem fært er, að veita lán á svipaðan hátt og í frv. er farið fram á. Varla býst jeg við, að bankarnir sjái sjer fært að taka lægri vexti en sem svarar þeim, sem sparisjóðirnir gefa á hverjum tíma. Jeg hika ekki við að fullyrða, að af þessu mætti hljótast stórmikið gagn. En þar sem það fólk, sem helst myndi verða til þess að stofna nýbýli og helst þarf að hjálpa, hefir lítið fje í höndum, þá þyrftu lánin auðvitað að vera rífleg, og væri þá eðlilegt og sjálfsagt, að einhver skilyrði yrðu sett fyrir umráðarjettinum yfir nýbýlunum, svo menn freistuðust ekki til að selja þessar eignir sínar fyrir stundarhagnað. Þessu vil jeg skjóta til hv. nefndar, því mjer skilst, að í þessu efni kreppi mest að og efa ekki, að þetta geti orðið talsvert til að draga úr atvinnuleysinu, þó það verði ekki nema smátt og smátt.