13.03.1924
Neðri deild: 22. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Sigurjón Jónsson:

Eftir því, sem jeg fje sjeð, þá er grundvöllurinn undir frv. því, sem hjer liggur fyrir, beint fjárhagsmál, þar sem það byggist á því, að Landsbankinn leggi fram fje til útlána, alt að ½ milj. kr. fyrstu árin, til þeirra framkvæmda, sem frv. tekur yfir. Því finst mjer, að beinast liggi við, að málið verði látið ganga til fjhn. Vandkvæði munu líka reynast á frv. með tilliti til þess, hversu mikið hægt er að bjóða bankanum að lána út til sjerstakra framkvæmda og atvinnugreina. Einnig gerir frv. ráð fyrir 4% vöxtum af útlánsfjenu, en nú munu bankarnir greiða 5% af innstæðufje. Alt eru þetta atriði, sem í eðli sínu heyra undir fjhn., og því virðist rjettast að vísa málinu til hennar.