13.03.1924
Neðri deild: 22. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (1515)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Flm. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil aðeins víkja örfáum orðum að ræðu hv. 2. þm. Reykv. Hann vildi láta líta svo út, að skriður væri kominn á nýbýlamálið. En talsverður munur er á því, hvort menn setjast að þar, sem búið hefir verið áður, eða reisa nýbýli. Og það vissi jeg, að það þótti undrun sæta, er maður í Þingeyjarsýslu setti niður nýbýli þar. En helst gæti það auðvitað komið til greina á þeim stöðum, sem liggja nærri markaðinum.

Þá verð jeg að halda því fram, að þetta sje fyrst og fremst landbúnaðarmál. Og landbn. treysti jeg vel til þess að ráðgast um það við Landsbankastjórnina, hvað tiltækilegt sje fyrir bankann að leggja mikið fje fram í þessu skyni. Og fullviss er jeg um það, að þessi lán yrðu ekki svo ótrygg, að þau gætu haft hættuleg áhrif á fjárhag landsins. Auk þessa má geta þess, að fjhn. mun mjög hlaðin störfum, þar sem öll fjármál og verslunarmál eru þar til meðferðar. Jeg hygg, að til hennar og allshn. berist langsamlega mest af málum. Því myndi það einnig vinnubragðanna vegna vera heppilegast að fela mál þetta landbn. á hendur.