01.04.1924
Neðri deild: 39. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (153)
1. mál, fjárlög 1925
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Eins og hv. þdm. hafa sjeð, er fjárlagafrv. eftir 2. umr. afgreitt með 47 þús. kr. tekjuhalla. Það hefir litlum breytingum tekið hjá nefndinni, aðeins hafa verið teknir upp nokkrir stórir liðir, sem geymdir voru þessari umræðu.
Eftir till. nefndarinnar hækkar tekjuhlið frv. nú um 384 þús. kr., en gjaldahliðin um 220 þús. kr. Lækkunin á gjöldunum er 13 þús., og er þá hin raunverulega hækkun þeirra 207 þús., sem gerir, með þeim tekjuhalla, sem var á fjárlögunum við 2. umr., samtals 254 þús. kr. Sjeu nú þessar 254 þús. kr. dregnar frá tekjuaukanum samkvæmt till. nefndarinnar, þá verður tekjuafgangur samkvæmt hennar till. 130 þús. kr.; eða 90 þús. kr., af því að nefndin tekur aftur eina till. sína tekjumegin. Hækkunin á gjöldum samkv. till. einstakra þingmanna nemur 104 þús., ef samþyktar verða. Eins og menn sjá, vega tekjur og gjöld nokkuð salt samkvæmt till. yfirleitt.
Jeg skal nú snúa mjer að einstökum tillögum, og þá fyrst að tekjuhliðinni. Mun jeg þar tala um allar tillögurnar í einu, því þær eru allar af einni rót runnar, sem sje þeirri, að nefndin tók lögin um 25% gengisálagningu á tolla af ýmsum aðfluttum vörum og hækkaði samkvæmt því þá tekjuliði, sem þessi lög snerta, um 12–15%. Mjer hefir síðan skilist, að nefndin hafi farið hjer heldur frekt í sakirnar, því að líkur eru til, að þessi tekjuauki geri lítið meira en að jafna halla á árinu 1924, svo lítið komi yfir á árið 1925. Einnig er við því að búast, að þetta háa gjald hindri heldur innflutning. Þó varð það ofan á, að nefndin tók alt að 15% af þessum 25% og hækkaði tekjuliðina svo sem því svaraði. Þó er þetta ekki nákvæmt, t. d. hvað snertir vörutollinn. Þá hefir nefndinni yfirsjest hvað snertir aukatekjurnar, að hækka þær tiltölulega, þar sem mikið af þeim er heimt hjer innanlands og hækkunin nær því ekki til þeirra. Er sú till. því tekin aftur. Á hinum liðunum er reiknað, eins og jeg hefi tekið fram, hæst með 15% og niður í 12%. Skal jeg svo ekki fjölyrða meira um það.
Næst kem jeg þá að till. um hækkun á lið 7 í 11. gr., fje til yfirskattanefnda. Áður hafa greiðslur vegna skattstofunnar hjer í Reykjavík verið utan fjárlaga, en nefndin hefir nú tekið kostnaðinn við skattstofuna upp í fjárlögin, þar sem hún telur rjett, að sem minstar greiðslur eigi sjer stað, sem ekki eru heimilaðar í þeim. Þessvegna er liðurinn hækkaður. Raunar er það ekki fullkomlega eins mikið eins og skattstofan hefir kostað fyrirfarandi. En nefndin væntir, að sá kostnaður fari minkandi.
Þá er að minnast á hækkun vegna berklaveikislaganna. Eins og jeg gat um við 2. umr., taldi nefndin óhjákvæmilegt að hækka þann lið að miklum mun frá því, sem hann var í fjárlagafrv. stjórnarinnar. Telst okkur svo til, að útgjöldin eftir núgildandi berklavarnalögum geti ekki orðið minni en 350 þúsund. En þar sem frv. er nú á ferðinni, sem gerir ráð fyrir, að nokkuð af þeim gjöldum, sem nú hvíla á ríkissjóði vegna berklavarnalaganna, verði varpað á aðra, þá hefir nefndin ekki áætlað liðinn hærri en 200 þúsund kr. En ekki vill hún fullyrða neitt um það, að þetta nægi, enda ekki víst um afdrif nefnds frv., þar sem það er ennþá ekki komið fram.
Næst kem jeg þá að styrknum til strandferðaskipsins Esju. Framkvæmdarstjóri Eimskipafjelags Íslands, sem hefir útgerð skipsins með höndum, skrifaði nefndinni og skýrði fyrir henni málið. Kvað hann tap á rekstrinum í fyrra, fyrstu þrjá ársfjórðungana, hafa verið 130 þús. kr. Nú, þennan ársfjórðung, kvað hann mega búast við, að hallinn yrði meiri, minst 45 þúsund krónur. Auk þess mætti gera ráð fyrir, að viðgerð og klassaskoðun á skipinu í þurkví erlendis mundi minst kosta 20 þúsund krónur. Eins og allir sjá, er þetta ærin upphæð, en þar sem nefndin gerði jafnvel ráð fyrir, að ekki væri fyllilega að marka reynslu fyrstu ársfjórðunganna og viðgerð og skoðun mundi tæplega ná 20 þús. kr., rjeð hún af að leggja ekki til, að veitt væri hærri upphæð en 180 þús. kr.
Eins og hv. þm. vita, tók nefndin við 2. umr. út brtt. um styrk til háskólastúdenta, vegna þess, að rektor háskólans og hæstv. forsrh. fóru fram á það, þangað til háskólaráðið hefði haldið fund um málið. Síðan hefir nefndin fengið brjef frá háskólaráðinu, þar sem henni er bent á, auðvitað með kurteisum orðum, að hún eigi engan íhlutunarrjett um úthlutun fjár úr sáttmálasjóði. Þetta vissi nú nefndin vel. En henni var líka kunnugt um, að í stofnskrá þess sjóðs er kveðið svo á, að nokkuð af því fje, sem veitt sje úr sjóðnum, renni til styrktar stúdentum. Nefndin hefir því nú orðað athugasemd sína við liðinn þannig, að hún ætlist til, að varið sje úr sáttmálasjóði til styrktar stúdentum 12500 kr., samkvæmt 2. gr. 3. lið í stefnuskrá sjóðsins, og væntir hún, að þetta verði síður til að ergja háskólaráðið.
Nefndin hefir heyrt nokkuð um það, hvernig sjóðnum sje varið, og telur hún að ekki sje betur á haldið en þó að styrktir væru íslenskir námsmenn. Að undanförnu hafa verið veittar 16000 kr. til þess að verðlauna vísindalegar ritgerðir, t. d. í árbók háskólans. Eftir lengd þeirra ritgerða að dæma, virðist þar hafa verið rúm fyrir talsvert fje, og þó að gott sje að þjappa ekki ofmikið saman vísindaritgerðum, sem eru ætlaðar almenningi, þá má þó eyða í slíkt of miklu. Annars væntir nefndin þess besta af háskólaráðinu og býst við, að það leggi fram eitthvað móti ríkissjóði til styrktar stúdentum.
Þá er húsaleigu- og námsstyrkur íslenskra stúdenta erlendis. Var sá liður tekinn út við 2. umr. í því skyni að nefndin aflaði sjer frekari upplýsinga. Nú hefir nefndin fengið að vita, að 25 íslenskir stúdentar sjeu við erlenda háskóla. Þar af eru 5 að verða búnir, svo að í vor verða einungis 20 eftir. Af þeim hafa 9 aðeins verið einn vetur. Nú lítur nefndin svo á, að ekki sje unt fyrir landið að greiða öllum þessum stúdentum 1200 kr. styrk. Þykir henni því rjett, að einungis þeir 11, sem komnir eru langt á leið, njóti hans. Enda er sú raunin, að ýmsir þessara stúdenta nema fræði, sem ekki má ætla, að gagn verði að fyrir okkur Íslendinga. Er því óhætt að segja, að við höfum ekki fje til að styrkja menn að námi, sem setjast síðar í embætti erlendis. Mun það og sannast mála, að svo margir eru komnir að prófi eða búnir að taka próf, að ekki mun skorta lærða menn hjer á landi fyrst um sinn. Vona jeg, að deildin samþykki liðinn eins og hann er.
Næst er nýr liður tekinn upp vegna þál. frá 28. febr. 1920 um styrk til læknakandídata til þess að sigla á fæðingarstofnun. Hann er hjer lækkaður, gert ráð fyrir, að hver kandídat fái 500 kr. Býst nefndin. við, að það ætti að vera mjög svo hæfilegt, eftir því sem áður hefir verið.
Næst er Flensborgarskólinn. Styrkurinn til hans var eftir 2. umr. bundinn því, eins og nefndin þá lagði til, að frá Gullbringusýslu og Hafnarfjarðarbæ yrði lögð fram ákveðin upphæð. En þar sem samskonar ákvæði um styrk til ýmsra skóla voru feld við 2. umr., breytti nefndin orðalaginu til þess að koma á meira samræmi um styrkveitingarnar yfirleitt, svo að nú stendur: „annarsstaðar frá“ í staðinn fyrir „frá Gullbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfirði.“ Hefir nefndinni verið sagt, að skólagjaldið við Flensborgarskóla hafi runnið beint í ríkissjóð, en við aðra skóla mun ekki sú hafa verið raunin, heldur að skólamir hafi hlotið það sjálfir, sem ekki eru ríkisskólar. Gerir nefndin ráð fyrir, að svo eigi einnig að vera við Flensborgarskólann, og bætist honum þá upp það fje, sem hann fer á mis við með lækkun styrksins í fjárlögunum.
Þá er nýr liður, sem er til kominn vegna þál. frá 1919, til eftirlits á Þingvöllum. Er upphæðin nokkuð lægri en það fje, sem til þessa hefir farið áður, en þó nægilegt að skoðun nefndarinnar, þar sem fela mætti prestinum á Þingvöllum þetta, líklega fyrir minna gjald.
Þá kem jeg að styrknum til Þórbergs Þórðarsonar. Höfum við fært hann niður í 500 kr. Þó var nefndin ekki óskift um þetta, en meiri hluti hennar lagði til lækkunina. Finst okkur, að ekki sje nein sanngirni í því, að þessi styrkur sje hafður óbreyttur, þegar lækkaður er styrkur Jóhannesar Lynge og styrkur Helga Jónssonar alveg feldur niður. Enda teljum vjer starf Þórbergs ekki það nauðsynlegra en önnur störf, sem styrkur hefir verið veittur til, en nú verið feldur niður eða klipið af.
2. liður þessarar tillögu, 5 þús. kr. með verðstuðulsuppbót til þess að rita sögu Alþingis, er nýr liður. Á hann rót sína að rekja til þál. frá 1922. Er nefndinni kunnugt um, að samið hefir verið við mann um að vinna verkið, svo að þessi upphæð má skoðast sem föst fjárveiting næstu árin.
Þá er næst styrkurinn til búnaðarfjelaganna. Hefir nefndin nú orðað athugasemdina við þann lið þannig, að styrknum skal varið til styrktar sameiginlegri starfsemi innan fjelaganna, og ræður skiftingunni milli þeirra dagsverkatala í öðrum jarðabótum en þeim, er styrks njóta samkvæmt II. kafla jarðræktarlaganna.
Næst er nýr liður, 10 þús. kr. til fjárkláðalækninga. Telur nefndin þessa fjárveitingu nauðsynlega, en hefir þó lækkað hana frá því, sem verið hefir, þar sem upp á síðkastið hefir kostnaðurinn orðið mun minni en áður.
Þar næst er nýr liður, 3 þús. kr. til eftirlits með skipum og bátum. Er upphæðin minni en fje það, sem til þessa hefir farið, en við lítum svo á, að nú, þegar komið er skipulag á starfið, þurfi til þess minna fje en áður, þó að það sje bæði erfitt og vandasamt.
Loks kem jeg að till., sem ýmsum mun þykja dálítið undarleg meðan þeir hafa ekki fengið á henni nánari skýringu; það er tillagan um, að ríkissjóður ábyrgist alt að 40 þús. kr. fyrir Húsavíkurkauptún. En því segi jeg, að mönnum muni þykja þetta undarlegt, að samtímis og nefndin leggur til, að þessa fjárhæð sje ábyrgst fyrir Húsavíkurkauptún, leggur hún einnig til, að feld sje niður ábyrgðarheimildin fyrir Bessastaðahrepp. Nefndin sá, að hún var komin inn á hættulega braut, því að strax og frjettist um þessa ábyrgðarheimild, komu tveir hreppar og báðu um ábyrgð. Og þó að þeir hreppar hefðu eigi gert jafnítarlega tilraun til að fá lán hjá sýslunum og Bessastaðahreppur, þá þótti rjett að fella niður ábyrgðarheimildina fyrir hann um leið og þeim var neitað, því að búast mátti við ennþá fleiri hreppum, sem færu fram á þetta sama. En um Húsavíkurhrepp stendur alveg sjerstaklega á. Svo er mál með vexti, að í kauptúninu hefir samfleytt í full 30 ár gosið upp megnasta taugaveiki, og hefir hún ágerst eftir því sem fólki hefir fjölgað í kauptúninu. Og í vetur hefir hún magnast meira en nokkru sinni áður. Hefir eigi aðeins kauptúnið sýkst, heldur og tveir hreppar nærliggjandi, enda þarf sýslan að sækja til Húsavíkur nauðsynjar sínar, þar sem það er eini verslunarstaðurinn. Og þessa taugaveiki segir hjeraðslæknir stafa af vatnsbóli kauptúnsins. Hefir það því sótt um lánsheimild fyrir 50 þús. kr., sem það ætlar að verja til vatnsleiðslu. Hefir landlæknir tjáð, að það væri jafnt skoðun sín og hjeraðslæknis, að lífsnauðsyn væri fyrir kauptúnið að fá vatnsleiðslu, þar sem það og hrepparnir í kring ættu ella sífelt yfir höfði sjer þennan vágest. En þó að svona brýn nauðsyn beri til, þá hefir nefndin eigi sjeð sjer fært að fara lengra en að leggja til, að ábyrgst verði lánsupphæð til vatnsleiðslunnar einnar saman, í stað þess sem kauptúnið fór fram á svo háa ábyrgð, að unt væri bæði að fá lán fyrir vatnsleiðslu og skolpræslu. En eins og jeg hefi gert grein fyrir, var óhjákvæmilegt að leggja til, að þessi ábyrgðarheimild yrði veitt.
Þá vil jeg aðeins fara nokkrum orðum um einn nýjan lið, sem byggist á þál. frá 1913, um vatnsrenslismælingar. Kringum 20 ár hafa verið mældar, og þykir nauðsyn bera til að halda þeim mælingum áfram, með það fyrir augum, að til virkjunar kynni að koma, enda er ekki upphæðin há, um 100 kr. fyrir mælingu hverrar ár yfir árið. Hefir verið varið fje til þessa árum saman og þykir ekki rjett, að mælingamar falli niður.
Þá leggur nefndin til, að veittar sjeu 60 þús. kr. til Eimskipafjelags Íslands eins og í gildandi fjárlögum, með því skilorði, að fjeð verði aðeins útborgað ef þörf krefur. Er nefndinni kunnugt um, að fjelagið á við mikla örðugleika að stríða. Þótt það eigi talsverðar eignir, er það eigi vel stætt, og telur nefndin því varhugavert að neita fjelaginu um þessa fjárhagslegu aðstoð, þar sem það ella mundi verða undir í samkepninni. Þá eru upptaldar brtt. nefndarinnar, en jeg mun leiða hjá mjer nú, eins og við 2. umr. fjárlagafrv., að minnast á brtt. einstakra þm., en mun jafnótt og þær koma til umr. fá tækifæri til að láta uppi skoðun nefndarinnar á þeim. Vil jeg svo beina þeim tilmælum til hv. deildarmanna að hraða umræðunum sem allra mest, til þess að þeim verði lokið á þessum degi og frv. verði afgr. til Ed.