05.04.1924
Neðri deild: 43. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2132 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Jón Baldvinsson:

Við l. umr. þessa frv. hjer í deildinni hreyfði jeg nokkrum athugasemdum um einstök atriði þess, sem jeg óskaði, að hv. landbn. tæki einkum til yfirvegunar. Þannig þótti mjer það ekki nægilega skýrt fram tekið í frv., að fje skyldi lánað til þess að stofna nýbýli. Að vísu var það nefnt, en ekki svo ákveðið, sem jeg taldi nauðsynlegt; og óskaði jeg eftir því, að nefndin sæi sjer fært að kveða ríkar að um þetta. Nú flytur hv. landbn. frv. fram án þess að hafa breytt því í þessu efni, nema ef væri til hins verra, með því að fella úr 1. gr. frv., svo sem hún leggur til, að gert sje. En jeg álít mest um það vert, að reynt sje að stofna nýbýli og gefa atvinnulausu fólki úr kaupstöðunum kost á því að taka land til ræktunar, til þess að það fólk bjargist betur en nú. Jeg get ekki tekið undir með þeim hv. þm., sem hafa látið það á sjer skilja, að það vantaði reynslu í þessu efni. Jeg veit ekki betur heldur en að stofnuð hafi verið nýbýli víða, bæði við sjó og til sveita, undanfarin ár og gefist sæmilega. Það kunna að vera einstöku undantekningar, en yfirleitt hefir þetta gefist forsvaranlega, og mönnum hefir tekist að bjargast af á jarðrækt og kanske lítilsháttar aukaatvinnu. Þetta er eitt hið alvarlegasta atriði. Og þegar hv. frsm. landbn. (ÁJ) var að bera saman efnahag verkamanna og bænda, og vildi telja hvoratveggja öreiga, þá held jeg nú samt, að þó bændur eigi við þröng kjör að búa, þá sjeu þeir þó betur staddir heldur en hinir. Það er líka skiljanlegt, þegar þess er gætt, að verkamenn hafa ekki atvinnu nema mjög lítinn hluta ársins og ekkert annað til að bjargast á; en það hefir meiri hluti bænda, sem betur fer. Þetta hefir hv. landbn. ekki tekið til athugunar. Jeg held, að það sje þá rjettara að kippa burtu ákvæðinu um lán til nýbýla úr öðrum lið 3. gr. frv. Þar er um svo lítinn stuðning að ræða, að jeg held, að bankarnir fengjust frekar til þess að veita sjerstök lán í þessu augnamiði, ef ákvæði þetta væri alveg felt úr hjer. Mjer er kunnugt um það, að bankastjórar Landsbankans hafa tekið vel í það að veita lán til stofnunar nýbýla í stærri stíl hjer í námunda við Reykjavík.

Þrátt fyrir þessar athugasemdir mun jeg ekki greiða atkvæði á móti frv., nú, hvað sem jeg kann að gera við 3. umr.

Að lokum vil jeg taka það fram, að jeg tel ekki rjettmæt þau ummæli hv. frsm., er hann ljet falla um álit Reykvíkinga á landbændum. Jeg hefi ekki orðið þess var, að hjer sje um þá talað með neinni lítilsvirðingu. Þvert á móti hefir mjer fundist, að allur þorri manna hjer hafi sveitalífið í hávegum. Það gefur líka að skilja, þar sem mikill meiri hluti fólksins er kominn hingað úr sveit á síðustu árum. Það getur vitanlega verið, að heyrst hafi orð í þessa átt, en jeg fullyrði, að þau ummæli sjeu undantekningar og ekki eins niðrandi og ummæli sumra þingbænda um „fiskiverin sunnanlands“, eins og komist hefir verið að orði.

Annars held jeg, að ef þetta mál er fram flutt til þess að bjarga landbúnaðinum, vegna þess að bændur sjeu svo illa staddir og þurfi lán, þá sje enn meiri þörf á því að hjálpa fólki við sjávarsíðuna. Það lifir ekki fremur á munnvatni sínu og guðsblessun en sveitafólkið. Og jeg vænti þess, úr því hv. landbn. ætlar að taka málið til yfirvegunar til 3. umr., þá ætti hún líka að athuga það, hvað hún geti gert til þess að útvega mönnum í kaupstöðunum lán til þess að stofna nýbýli, þar sem þeir gætu bjargast af. (ÁJ: Það er gert hjer). Það er gert hjer, segir hv. frsm. En jeg hefi bent á það, hve lítið gagn mundi að frv. verða í þessu efni, ef því verður ekki breytt.