05.04.1924
Neðri deild: 43. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2138 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)
67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg vil aðeins segja nokkur orð út af ræðu hv. 3. þm. Reykv. (JakM). Jeg skal ekkert um það fullyrða, hvaða orð eru látin falla í garð landbúnaðarins meðal almennings í bæjunum. En mjer fyndist rjétt að athuga það, sem hv. þm. sagði um þau orð, sem höfð væru um atvinnuvegina á þingi. Jeg hefi hjerna fyrir framan mig ræðu eins hv. fyrv. þm., þar sem hann er að tala um aðalatvinnuvegi landsins. Vil jeg með leyfi hæstv. forseta lesa upp nokkrar setningar úr þessari áður nefndu ræðu. Hann er að tala um tilgang þeirra og starfsemi. Ummælin hljóða svo:
„.... Hann er sá, að láta einn atvinnuveg landsins lifa eins og sníkjudýr á öðrum atvinnuvegum.
Vjer könnumst allir dálítið við sníkjudýr. Það er eðli þeirra og náttúra að lifa á dýrum, sem standa þeim miklu ofar í dýraríkinu. Þau hafa reyndar enga verulega hugmynd um þessi dýr, sem þau lifa á, en eðlishvatir þeirra eru svo ríkar, að þau kunna þá list að sjúga blóð þeirra og líkamssafa og nærast af þeim, verða þeim oft og tíðum að fjörlesti ....“
Jeg ætla þá ekki að fjölyrða um þetta, en mjer finst vel til fallið, að þeir, sem áminna okkur bændurna um að gæta allrar sanngirni í garð bæjarbúa, þá beri þeim eins að gæta orða sinna.