16.04.1924
Neðri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2180 í B-deild Alþingistíðinda. (1559)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Bernharð Stefánsson:

Jeg vil aðeins með nokkrum orðum leiðrjetta misskilning hv. 4. þm. Reykv. (MJ) á orðum mínum. Jeg sagði, að á meðan Landsbankinn ætti þetta fje inni í Íslandsbanka, sem hann á, þá væri það bankans að sanna, að hann geti ekki lagt fjeð fram, en ekki vort að sanna, að hann geti það. Því er engin ástæða til að skoða ummæli hv. 4. þm. Reykv. og hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) sem neitt goðasvar. Mjer þótti næsta einkennilegur samanburður hv. 4. þm. Reykv. á atvinnuvegunum, og hefði gaman af að vita, við hvað hann hefði miðað. Ef hann hefir miðað við útflutning, sem jeg get best trúað, hefði hann átt að gæta að því, hve mikið landbúnaðurinn leggur af mörkum til neyslu innanlands.