16.04.1924
Neðri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2181 í B-deild Alþingistíðinda. (1560)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Tryggvi Þórhallsson:

Aðeins nokkur orð út af ummælum hv. þm. V.-Sk. (JK). Jeg lýsi því yfir, að hann fer með fullkomin ósannindi um aðdróttanir til mín í máli þessu. Það er öllum kunnugt, að bankastjórnin er málinu mótfallin. Það má vel vera, að jeg hafi sagt, að jeg byggist eins við, að frv. fjelli í þetta skifti, vegna þeirrar mótspyrnu, en jeg myndi bera það fram alt að einu, og það vil jeg standa við. Ummæli hv. þm. V.-Sk. eru því ekkert annað en tilhæfulausar rangfærslur og ósannindi.