22.04.1924
Efri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2182 í B-deild Alþingistíðinda. (1564)
67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands
Atvinnumálaráðherra (MG):
Þetta frv. var í Nd. flutt af háttv. þm. Str. (TrÞ). og gekk þar fram sem næst óbreytt, að öðru leyti en því, að vextir af lánum þeim, sem frv. gerir ráð fyrir, voru hækkaðir úr 4 upp í 6%. Stjórn Landsbankans hefir verið spurð um málið og hún hefir ekki getað fallist á, að frv. yrði gert að lögum. Kvað hún það óviðkunnanlegt, að þingið væri að blanda sjer í, hvernig bankinn skyldi verja sínu fje; hefir enda látið í ljós, að hún efaðist um, að bankinn gæti veitt þau lán, sem frv. ræðir um. Jeg verð að segja, að mjer þykir bankastjórnin í þessu efni óþarflega hörundsár, að telja að þingið gangi inn á sitt verksvið, þótt það setji lög um að veita ákveðin lán í ákveðnum tilgangi. Jeg sje ekki betur en að löggjafarvaldið megi ákvarða hina stóru drætti í stjórn bankans, en bankastjórnin hafi með höndum alt, sem snertir hina daglegu stjórn og afgreiðslu.
Frv. gengur ekki út á annað en að heimila að lána í ákveðnum tilgangi alt að 500 þús. kr. á ári í fáein ár. Vitaskuld er ekki þar með sagt, að bankinn sje skyldugur til að lána svo mikið. Verður það að fara eftir því, hvernig hagur bankans stendur. Geti hann fært sönnur á, að honum sje það ekki unt, er hann enganveginn skyldugur.
Verð jeg að leggja til, að frv. sje samþykt, jafnvel þó bankastjórnin hafi ekki sjeð sjer fært að mæla með því. Jeg skoða undirtektir hennar frekar sem varkárni heldur en viljaleysi til að veita lán í þessum tilgangi. Hinsvegar þykir mjer viðurhlutamikið að leggja til, að frv. gangi nefndarlaust gegnum hv. deild, þó áliðið sje þings. En jeg vil þá skjóta því til nefndar þeirrar, sem á að afgreiða málið, að flýta afgreiðslu svo sem unt er, og helst ekki breyta neinu nema hún þykist sjá þess brýna nauðsyn, sem jeg vona, að vart muni verða.
Jeg leyfi mjer að leggja til, að málinu verði vísað til landbn.