30.04.1924
Efri deild: 58. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2188 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)
67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands
Björn Kristjánsson:
Jeg hefi leyft mjer að koma fram með brtt. á þskj. 462, af því að mjer líkaði ekki frumvarpið, og jafnframt af því, að jeg vildi láta það sjást, hvernig jeg teldi heppilegast, að það væri. Annars er jeg fús að verða við þeim tilmælum hv. frsm. (EP) að taka þær aftur, en vildi samt áður með nokkrum orðum skýra, hvað fyrir mjer vakti með þeim.
Jeg skal fyrst taka það fram, að jeg hefi ekki komið fram með brtt. mínar í samráði við bankastjórnina. En jeg álít, að ómögulegt sje að skipa bankastjórninni að lána svona mikið fje með ekki hærri vöxtum en gert er ráð fyrir í frv. þessu, þar sem veltufje bankans er að mestu leyti lánsfje. Annars er mjer alókunnugt um hag bankans, og jeg veit ekki, hvort hann getur lánað svo mikið fje, sem hjer er gert ráð fyrir, því jeg veit, að hann hefir orðið fyrir allmiklum reikningshalla síðastliðið ár af verslunarviðskiftum við útlönd. Gæti því verið varhugavert að skylda hann til að lána slík lán.
Orsökin til 3. brtt. minnar er sú, að jeg vildi reyna að setja 4. gr. frv. í sem mest samræmi við reglugerð Landsbankans sjálfs. Því að jeg kann illa við, að þessi lög sjeu sett þvert ofan í hina vandlega hugsuðu reglugerð frá 1911. Það er og augljóst, að 1% getur ekki einu sinni nægt fyrir rekstrarkostnaði. Liggur því í hlutarins eðli, að bankinn má ekki lána lán þessi nema gegn mjög góðum tryggingum, svo ekki þurfi að gera ráð fyrir tapi á þeim. Og í sambandi við það hefi jeg komið með 4. brtt. mína, þar sem jeg meðal annars ætlast til, að hreppsfjelög sem slík, er gengið hafa í stórar sjálfskuldarábyrgðir fyrir kaupfjelagsskuldum, eins og t. d. hreppar í Dalasýslu hafa gert, skuli ekki sem slík geta talist nægileg trygging fyrir lánum þessum. Geta því menn úr slíkum hreppum ekki átt kröfu á lánum, nema gegn jarðarveði eða öðru veði jafntryggu.
Jeg er á sömu skoðun og hv. frsm., að nauðsyn beri til að koma á lánsstofnun fyrir landbúnaðinn, og sakna jeg í því efni frv. um útgáfu 5. flokks bankavaxtabrjefa veðdeildar Landsbankans, því að jeg taldi það miklu heppilegra en slíka lánadeild, sem hjer er um að ræða, því að bankinn getur átt fulla von um að fá þau inn aftur miklu fljótar, eða jafnótt og brjefin dragast inn. Og svo getur hann sett þau að veði erlendis, sem ekki er hægt að nota hinar tryggingamar til, og lánskjörin gætu orðið alteins góð, þó þessi leið væri valin. Það væri því sá heljarmunur fyrir bankann að veita slík lán, samanborið við þau, sem ætlast er til, að veitt verði samkv. frv. því, sem hjer er til umræðu. Jeg hefði því óskað, að veðdeildarfrv. hefði gengið á undan.
Sem að líkindum ræður, get jeg ekki greitt atkvæði með frv. þessu, þar sem skoðun mín, reynsla og þekking bannar mjer það, enda hygg jeg, að nógir verði til að greiða því atkvæði samt. Annars er jeg efinn í því, að slík lánadeild sem þessi geti komið að gagni, og jeg býst við, að þannig sje ástatt fyrir bankanum, að varhugavert geti verið að íþyngja honum með þessu fyrirkomulagi.
Tek jeg svo till. mínar á þskj. 462 aftur.