02.05.1924
Efri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2192 í B-deild Alþingistíðinda. (1579)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ):

Hver sem verða úrslit þessa frv. hjer í hv. deild, tel jeg bera nauðsyn til þess, að málinu verði komið í viðunandi horf til framkvæmda. Og teldi jeg mjer jafnskylt, þótt frv. yrði felt, að undirbúa framkvæmd þessa máls til næsta þings.