01.04.1924
Neðri deild: 39. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (160)

1. mál, fjárlög 1925

Magnús Torfason:

Jeg ætla mjer ekki að koma nærri þeim eldi, sem orðið hefir hjer í háttv. deild, og því fremur, sem jeg lít svo á, að þær umræður hefðu ekki átt að fara fram hjer á þingi. Því að þetta var blaðamál, og hinn rjetti vettvangur þess var því í blöðunum. En eitt atriði, sem kom þar fram og snertir mig persónulega, verð jeg að minnast á; því hefir sem sje verið haldið fram, að þingið 1919 hafi átt upphaf hins mikla tekjuhalla, sem verið hefir á búskap þjóðarinnar æ síðan. Á þingunum 1917 og 1919 lýsti jeg yfir þeirri skoðun minni, að óhægir og erfiðir tímar myndu koma eftir ófriðinn, eins og ætíð hefir átt sjer stað eftir slíkt ástand. Og varaði jeg mjög við þessum tímum. Jeg get ekki tekið það til mín, að jeg hafi átt þátt í að auka útgjöldin 1919, því að jeg var á móti jafnvel mjög rjettlátum útgjöldum, af því að jeg bjóst við, að árgæska væri ekki framundan.

Það, sem neytt hefir mig til að tala, er, að jeg er bendlaður við þrjár brtt. á þskj. 261. Er hin fyrsta um, að styrkurinn til Grímsneslæknishjeraðs verði hækkaður úr 3 þús. kr. upp í 6 þús. kr. Við þingmenn Árnesinga höfðum ákveðið að koma ekki fram með tillögu þessa, beinlínis vegna hagsmuna ríkissjóðs, ef engar aðrar tillögur í þessa átt hefðu komið fram, en nú hefir sú reyndin ekki á orðið, og því berum við brtt. þessa fram.

Það var farið fram á að fá 1/3 byggingarkostnaðarins endurgreiddan, eins og venja er til, að veitt sje í slíkum tilfellum. Þessari beiðni var synjað, af því að talið var að hjeraðið hefði haft svo mikinn hag af kaupum á Geysishúsinu. Þetta atriði hefir nú verið rannsakað, og hefir niðurstaðan orðið sú, að hagurinn hafi orðið býsna lítill. Einn háttv. þm. hjelt því fram í fyrra, og aftur nú, að hagnaðurinn af húsakaupum þessum hefði orðið mikill fyrir læknishjeraðið, alt að 1500 kr. Og annar þingmaður, núverandi hæstv. fjrh. (JÞ), telur leitt, hve lítinn hag hjeraðið hafi haft af kaupum þessum, og er það þó maður, sem vel ber skyn á slíka hluti. Þó gengið væri nú út frá því, að ágóðinn af húsakaupum þessum hefði orðið 1500 kr., ætti þó hjeraðið rjettlætiskröfu á að fá 7500 kr., en við höfum viljað fara þarna meðalveg, og sett því upphæðina 6000 kr.

Það, sem aðallega hefir tafið fyrir þessu máli, er það, að sala Geysishússins hefir verið notuð sem árásarefni á þann ráðherra, sem seldi húsið; hefir því verið gerður úlfaldi úr mýflugunni. En það er engin ástæða til að láta þetta bitna á hjeraðsbúum, því það er að hengja hund fyrir kött. Þegar þess er ennfremur gætt, að árangurinn af árás þessari varð hinn glæsilegasti, þar sem viðkomandi ráðherra baðst lausnar og fór úr embætti, væri miklu frekar ástæða til að láta hjeraðið njóta þess, að svo lítil þúfa gat velt svona stóru hlassi.

Við 2. umr. fjárlaganna hjelt jeg því fram, að þetta væri skuld, sem ríkissjóður stæði í við hjeraðið, en háttv. frsm. taldi það fjarstæðu. En það er mesti misskilningur hjá háttv. frsm. (ÞórJ), því að sjúkraskýlið á beinlínis heimtingu á að fá greiddan 1/3 kostnaðar, eins og önnur sjúkraskýli að öðrum kosti er það beitt hreinum og beinum misrjetti.

Þá á jeg enn brtt. á þskj. 261, nr. 38, um styrk til bryggjugerðar á Eyrarbakka, alt að 1/3 kostnaðar. Til þessarar bryggju var veitt í fjárlögum 1923 þessi sama upphæð, en aldrei notuð; er þetta því endurveiting. Hjer er ekki aðeins um að tala lendingarbætur í venjulegum skilningi, heldur og til að varna skemdum á fiski. Því að svo er háttað á Eyrarbakka og Stokkseyri, að þar er sandur, sem fiskurinn hefir verið lagður á, og það valdið skemdum á honum. Hefir nú verið bygð bryggja á Stokkseyri, og hefir reynslan orðið sú, að sá fiskur, sem þar hefir verið lagður á land, hefir reynst miklu betri en sá, sem lagður hefir verið á land á Eyrarbakka. Jeg lít því svo á að því er þessa tillögu snertir, að hana beri að samþykkja, ef menn vilja styrkja þá, sem vilja hjálpa sjer sjálfir.

Þá er síðasta brtt. mín, um að veita júbilljósmóður Þórdísi Símonardóttur á Eyrarbakka 600 króna ellistyrk. Þetta er hin mesta sæmdarkona og kvenskörungur, og mætti líkja henni við Þórdísi konu Barkar digra eða Þórgerði konu sjera Páls í Reykholti. Kona þessi er komin yfir sjötugt og mjög biluð og farin að heilsu, sem eðlilegt er, þar sem hún hefir þjónað erfiðu embætti um svo langt áraskeið. Alla æfi hefir hún unnið fyrir mjög lágum launum, mestan hluta æfinnar fyrir 40–60 kr. á ári, þar til nú síðustu árin, að hún hefir fengið um 200 kr. Hún hefir alla tíð staðið prýðilega í stöðu sinni, enda hefir hún hin bestu vottorð þeirra lækna, sem hún hefir starfað með, og fylgja þau með umsókninni. Eru það læknarnir Guðm. Guðmundsson í Stykkishólmi, Ásgeir Blöndal og Gísli Pjetursson, og ber þeim öllum saman um, að hún sje besta ljósmóðirin, sem þeir hafi þekt og ekki hefir lært í útlöndum.

Síðastliðið ár hjelt kona þessi 50 ára afmæli sitt sem ljósmóðir; er því sjerstök ástæða til að veita henni einhvern styrk í tilefni af því, enda er jeg sannfærður um, að margur er á eftirlaunaskrá, sem síður skyldi.

Þá vil jeg snúa mjer að þskj. 260; þar er lagt til, að til ferða með Rangársandi og Vestur-Skaftafellssýslu verði veittar 13 þús. krónur. Jeg lít svo á, að þetta sje alt of lítill styrkur, ef sæmilega á að sjá fyrir ferðunum. Í þessu sambandi vil jeg geta þess, að síðastliðið ár voru veittar 5 þús. kr. til bátaferða hjeðan austur að Stokkseyri og Eyrarbakka, en af því fje voru notaðar 800 kr. til fólksflutninga og vöruflutninga til Eyrarbakka og Stokkseyrar, og fyrir þeim ferðum gekst Jón Sturluson, sá sami sem nýlega var svo lofsamlega minst hjer í blöðunum. Vek jeg máls á þessu til þess, að hv. samgöngumálanefnd geti athugað þetta, og jeg treysti henni til, að hún fari ekki að klípa þessar 500 kr. af styrknum.

Að síðustu vil jeg nota tækifærið til þess að lýsa eftir till., sem mjer finst vanta við fjárlögin, eftir því, sem hæstv. fjrh. (JÞ) fórust orð, er verðtollurinn var til umræðu. Hann vildi þá styðja að betra eftirliti með tollgæslunni en hingað til hefir verið. Jeg bjóst við, að þessi tillaga myndi koma fram við þessa umræðu, en úr því að svo varð ekki, vil jeg minna hann á hana, því að það er enginn vafi á, að slík tillaga verður tekin upp við eina umr. fjárlaganna hjer, ef háttv. Ed. bætir ekki úr.