16.04.1924
Neðri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2231 í B-deild Alþingistíðinda. (1637)

109. mál, skattgreiðslu hf Eimskipafélags Íslands

Frsm meiri hl. (Bernharð Stefánsson):

Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) sagði, að sig hefði undrað, er hann heyrði ræðu mína áðan. Hann kvaðst ekki hafa fundið betur en jeg væri með henni að slá niður röksemdum flokksbræðra minna, er þeir hefðu fært fyrir samvinnulögunum. En til þess gaf jeg honum ekki neina ástæðu, enda eru niðurstöður hans fullkomlega rangar í þessu atriði. Jeg er hjer í fylsta samræmi við minn flokk. Sjálfur hefir hann fylgt rjettu máli tvisvar hjer í þessari hv. deild. Í annað skiftið er hann fylgdi fram samvinnulögunum, og í hitt skiftið er deilt var hjer um aukaútsvör ríkilstofnana. En nú lætur hann hagsmuni kjördæmisins ráða fyrir sjer.

Ríkisverslanirnar, Eimskipafjelagið og Samband íslenskra samvinnufjelaga eiga öll eitt sameiginlegt, sem greina þau frá fyrirtækjum einstakra borgara og atvinnurekenda. Verslunarstofnanir ríkisins eru sameign allrar þjóðarinnar; Eimskipafjelagið er sameign manna úti um alt land, og það er S. Í. S. líka. Ef nú Reykjavík er látin leika lausum hala í því að leggja gjöld á þessar stofnanir, sem hún sýnist altaf fá meiri og meiri tilhneiging til að gera, þá stefnir að því, að ljett verði gjöldum af borgurunum með því að leggja óhæfilega hátt gjald á þessar stofnanir. Það er sama, hver þessara stofnana á í hlut, vegna þess að þessi gjöld koma ekki fyrst og fremst niður á bæjarbúum,. heldur landinu í heild. Þess vegna er jeg hjer í fullu samræmi við sjálfan mig, er jeg gengst fyrir þessu frv. Jeg hefði greitt atkvæði með samvinnulögunum, ef jeg hefði þá setið á þingi, og jeg greiddi atkvæði með takmörkun á útsvarsskyldu ríkisstofnana. Og í þessu öllu er fylsta samræmi.

Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það kæmi ekki málinu hið minsta við, hvað fjelagið hefði gert við arð sinn. Jeg get ekki fallist á það, að sama sje, hvort fjelagið borgar hluthöfum arð eða afskrifar verð eigna sinna. Öðru máli gegndi, ef fjelagið afskrifaði meira en nauðsyn krefur. En þegar það er ekki nema 3%, þá er það ekki einu sinni fyrir því, sem skipin og eignirnar ganga úr sjer. Þetta er sá eiginlegi arður. Og því er útsvar Eimskipafjelagsins í hlutfalli við rjettan arð miklu meira en gefið er upp í brjefi borgarstjóra.