16.04.1924
Neðri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
109. mál, skattgreiðslu hf Eimskipafélags Íslands
Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Það var ekki ástæðulaust, að hv. þm. Ak. (BL) baðst afsökunar á því, að hann hefði ekki haldið sjer við efnið. En þessi hv. þm. kallar oftast fram í, þegar aðrir þm. halda ræður, og biður þá að halda sjer við efnið. En það gerir hann manna síst sjálfur.
Mjer finst það dálítið einkennilegt hjá hv. þm. að halda því fram, að það komi ekkert málinu við, þótt menn hafi reynst óhæfir í stjórn fjelaga. Þeir geti verið jafngóðir fyrir því sem ráðherrar. En jeg held, að sá maður, sem ekki getur reynst sæmilega í stjórn fjelags með öðrum mönnum, sje ekki fær til að vera ráðherra.
Um það skal jeg ekki deila við hv. þm. hvort jeg sje fær til að vera fulltrúi þjóðarinnar. En hann er oft búinn að biðla til kjósenda, og hefir æðioft fengið hryggbrot. (BL: Hvað oft?). Að minsta kosti einu sinni opinberlega og sjálfsagt oft leynilega, og það veit hann best sjálfur.
Í ræðu hv. þm. skaut því upp, hvað fyrir honum vakir fyrst og fremst í þessu máli. Hann vill að Eimskipafjelagið greiði ekki alt útsvarið hjer í Reykjavík, heldur njóti Akureyri af. Þegar fjelagið á að greiða útsvar hjer í Reykjavík, þá eru fjárhagsástæðurnar ekki sjerlega góðar, en eigi það líka að greiða útsvar á Akureyri og annarsstaðar úti um land, þar sem það hefir afgreiðslu, þá er það alt í einu orðið nógu ríkt til að bera útsvar. Þegar þetta er borið saman við fyrri ummæli, fer hugsanaferill hv. þm. að verða dálítið einkennilegur.
Hv. sami þm. las hjer upp úr reikningum fjelagsins fyrir árið 1923. Jeg veit ekki til, að þeir hafi ennþá verið prentaðir og jeg hefi ekki að þeim aðgang. En jeg hefi alla þá reikninga fjelagsins, sem komnir eru út. En jeg hefi ekki getað kynt mjer tölur reikningsins fyrir síðastliðið ár og get ekki hent það á lofti, sem hv. þm. les upp flumósa og eins og hann standi á öndinni. Hann nefndi svo og svo há skipagjöld, sem rynnu öll í bæjarsjóð hjer. Eða hvað? En ætli ríkið og aðrir bæir en Reykjavík fái ekki sinn skerf af þeim? Jeg veit það raunar, að vatnið hjer muni vera betra en annarsstaðar, — en mundi það nú samt ekki t. d. koma fyrir, að skipin tækju við og við vatn á öðrum höfnum ?
Hv. 2. þm. Eyf. mun hafa hlaupið heldur ónotalega á sig, þegar hann vildi setja Eimskipafjelagið undir sama hatt og samvinnufjelögin. Kalla jeg það að slá öllum röksemdum saman. Ef Eimskipafjelagið teldist samvinnufjelag, yrðu yfirleitt öll togarafjelög og önnur hlutafjelög líka að teljast það. Er jeg viss um, að hann gerir flokk sínum ógreiða með þessu, því að hann mun innan flokksins vera einn um þá skoðun, að Eimskipafjelagið sje sama eðlis og samvinnufjelögin.
Í framkomu minni í þessu máli er engin ósamkvæmni. Jeg var með skattfrelsi samvinnufjelaganna, en jeg tel það mál alt annars eðlis en þetta. Og jeg geri glöggan mun á landsverslun, sem er ríkiseign, og Eimskipafjelaginu, sem er hlutafjelag, þótt það sje eign fjölda manna. Mun það og sannast mála, að 25 kr. hlutirnir, sem menn eiga úti á landi, ráði minstu um stjórn fjelagsins. Það munu vera 10 þúsund króna hlutirnir manna hjer í Reykjavík, sem mestu ráða við atkvæðagreiðslur á fjelagsfundum Eimskipafjelagsins.
Að hjer sje okrað á Eimskipafjelaginu lýsi jeg hrein og bein ósannindi, og getur hver athugað það, sem vill. Að á því verði okrað framvegis, er spá út í loftið, sem sprottin hlýtur að vera af miður góðum hvötum, en styðst við engar líkur.
Hv. 2. þm. Eyf. sagði, að jeg hefði skift um skoðun, því jeg hefði greitt atkvæði bæði með samvinnulögunum og lögunum um skattgreiðslu Landsverslunar. En það eru ósannindi hjá honum, að jeg hafi skift um skoðun í þessu máli. Og fyrst hann hefir athugað atkvæðagreiðslur mínar um samvinnulögin og sjeð, að jeg var þar, að hans áliti, rjettu megin, þá ætti hann að athuga fleiri atkvæðagreiðslur mínar, og hann mun þá komast að raun um, að jeg er altaf rjettu megin. Það er regla, sem hann ætti að gefa gaum að.