16.04.1924
Neðri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2239 í B-deild Alþingistíðinda. (1644)
109. mál, skattgreiðslu hf Eimskipafélags Íslands
Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Það má vel vera, að nægur styrkur sje til þess að koma frv. fram. En þó að allmörgum deildarmönnum hafi verið smalað saman til þess að flytja þetta frv., hefir þó komið í ljós, að veilur hafa fundist í málinu, þar sem hv. deild hefir samþykt allvíðtækar breytingar á frv. Það er svo um sum þau mál, sem allmörgum hv. þm. hefir verið safnað saman utan um, til þess að tryggja sjer atkvæði þeirra, að því fremur er þá ástæða til að gagnrýna þau. Það er oft eins og menn finni, að málstaðurinn sje ekki sem ágætastur, og vilja því bæta það upp með því að standa því fleiri saman.
Jeg þakka það ekki svo mjög, þó að hv. deild hafi fallist á brtt. meiri hl. allshn. við 2. umr. og samþykt, að Eimskipafjelagið skyldi greiða mjög lágt útsvar af gróða sínum. Það eru samt skertir þeir tekjustofnar, sem Reykjavíkurbæ eru heimilaðir samkvæmt lögum, sem sje að leggja á menn eftir efnum og ástæðum, og fjelagið er sett öðruvísi en önnur hlutafjelög í bænum. Hjer er að ræða um óvenjulega undanþágu, og hefir ekkert komið fram, er geri það rjettmætt að veita fjelaginu þessi hlunnindi.
Jeg vil enn á ný mótmæla því, að Reykjavíkurbær hafi lagt ósanngjarnlega hátt útsvar á Eimskipafjelagið á undanförnum árum. Skýrsla borgarstjóra sýnir, að útsvar fjelagsins hefir verið mjög sanngjarnt. Það hefir haft ákaflega mikinn gróða sum árin, — og hvað á þá að leggja á, ef ekki það? Hv. deildarmönnum eru málefni sveitarfjelaga svo kunn, að þeir ættu að geta skilið, að ekki er rjett að gera stórgróða skattfrjálsan.
Þó að brtt. hafi komið á síðustu stundu, er þess að gæta, að engin dagskrá var lesin upp á síðasta fundi, þegar þetta mál var til 2. umr., svo að þá var ekki unt að vita, að 3. umr. yrði nú. Þá fóru 2 helgidagar í hönd, en síðastliðinn laugardag afhenti jeg skrifstofunni þessar brtt. Þó að þeim hafi ekki verið útbýtt fyr en nú á fundinum, hygg jeg, að þær sjeu ekki svo flóknar, að hv. deildarmenn geti ekki áttað sig á þeim og sjeð rjettmæti þeirra, ef nokkra á að breyta um útsvarsálagningu á Eimskipafjelagið. Með þeim er tilganginum náð, sem vakti fyrir flm. frv., að gera fjelaginu auðveldara að komast yfir erfiðleikana, sem búist er við, að það eigi að stríða við á árunum 1925–1928.