01.05.1924
Efri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2242 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)
109. mál, skattgreiðslu hf Eimskipafélags Íslands
Frsm. (Eggert Pálsson):
Þetta frv. er þess efnis að veita h/f Eimskipafjelagi Íslands undanþágu frá tvenskonar útgjöldum, sem sje að veita því í 5 ár undanþágu frá tekju- og eignarskatti, og undanþágu frá aukaútsvari í 4 ár. Eins og kunnugt er hefir Eimskipafjelagið lent í allmikilli fjárþröng, og það svo mikilli, að það hefir ekki getað greitt hluthöfum neinn arð af hlutafje sínu nú síðustu árin. Sú fjárþröng fjelagsins stafar af ýmsum ástæðum, en þó fyrst og fremst af því, að þegar fjelagið byrjaði starfsemi sína, varð það að fá erlent lánsfje. Lánið var tekið í Hollandi, en þar hefir gengið verið mjög hátt nú síðustu árin, og það hefir því þurft miklu meira fje í vaxtagreiðslur en við var búist þegar lánið var tekið. Útgjöld fjelagsins hafa því aukist mikið af þessum ástæðum. Fjelagið hefir líka lent í mikilli samkepni, sem hefir orðið því allerfið.
Fjelagið hefir heldur reynt að vera fyrir neðan önnur fjelög. Þetta hefir þingið sjeð og viðurkent, og hefir ætíð verið meira og minna fúst til að rjetta þessu óskabarni sínu hjálparhönd. M. a. er því í fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir þinginu, ætlaður 45 þús. kr. styrkur. Þar sem nú svo er ástatt, að ríkissjóður leggur fjelaginu beinan styrk, og hinsvegar má telja víst, að engir óski eftir að leggja á það tekjuskatt og eignarskatt, er styrkurinn úr ríkissjóði orðinn tvöfaldur, þá virðist það óviðfeldið og alls ekki rjettmætt, að bæjarfjelög eða sveitarfjelög fari að leggja á það aukaútsvör, sem myndu þá í eðli sínu vera útsvör á þennan styrk, sem ríkissjóður veitir fjelaginu. Að losa það undan allri útsvarsskyldu hefir engum komið til hugar, en menn fara fram á takmörkun, þannig, að ekki megi leggja meira á fjelagið en 5% af nettóágóða.
Frv. hefir gengið greiðlega gegnum hv. Nd., og vona jeg, að það þurfi ekki að stranda hjer í hv. deild. Vil jeg eindregið mæla með því, að frv. gangi í gegn óbreytt, eins og allshn. leggur til. Með því að svo er áliðið þingtímans, myndu breytingar á frv. að öllum líkindum hefta framgang þess á þessu þingi. Jeg veit, að allir hv. þm. bera þann huga til þessarar stofnunar, að þeir óska henni að blómgast áfram og að ekki fari fyrir þessu byrjunarfyrirtæki okkar til bættra samgangna á sjó eins og hefir farið fyrir Færeyingum, sem hafa orðið að gefast upp við sitt fjelag. Jeg veit, að menn vilja fúsir rjetta Eimskipafjelaginu hjálparhönd á þessum erfiðu árum, og þar á meðal einnig með því að samþykkja þetta frv.