11.04.1924
Neðri deild: 48. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2245 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)

130. mál, útsvarsálagning erlendra vátryggingafélaga

Fjármálaráðherra (JÞ):

Mjer virðist þetta frv. athugavert að ýmsu leyti. Í fyrsta lagi er mjer ókunnugt um það, hvaða venjum er fylgt annarsstaðar um það að leggja útsvör á tryggingarfjelög þar, sem þau aðeins hafa umboðsmenn. Og mjer þykir ekki líklegt, að okkur haldist uppi að hafa aðra reglu í þessu efni en tíðkanlegt er meðal annara þjóða. En um álögur slíkra stofnana, sem hjer ræðir um, munu gilda almenn ákvæði milli þjóða.

Í öðru lagi get jeg ekki sjeð, hvaða hlunnindi keppinautar þessara fjelaga hjer á landi mundu hafa af þessum ákvæðum. Ekki mundi útsvar Sjóvátryggingarfjelags Íslands lækka neitt við það, svo ekki bætti þetta hag þess í neinu, nema ef það yrði til þess, að iðgjöld hækkuðu; því alkunnugt er, að það er samkomulag meðal allra þessara fjelaga að taka sömu iðgjöld. En ef lögin yrðu til þess að hækka iðgjöldin, þá er hagurinn hæpinn af þeirri lagasetningunni. Enn má geta þess, að Reykjavíkurbær hefir gert samning um brunatryggingu húsa í bænum við tvö erlend brunatryggingarfjelög, og verða þau að sjálfsögðu undanþegin opinberum gjöldum, en jafnframt hefir fengist samkomulag við öll hin önnur fjelög, sem hjer annast brunatryggingar á lausafje, um að þau lækki iðgjöld sín um 10%. Veit jeg ekki, hvort frv. er samrýmanlegt þessum samningum. Held jeg, að rjett væri, að borgarstjóri og bæjarstjórn fengju að segja álit sitt um frv. áður en það kæmist lengra. Vil jeg því skjóta því að nefndinni, að hún athugi þetta áður en frv. kemur til 2. umr. og endanlegra úrslita í deildinni.