15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2248 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)

130. mál, útsvarsálagning erlendra vátryggingafélaga

Frsm. (Magnús Jónsson):

Þegar málið var til 1. umr. hjer í deildinni, var hreyft efasemdum um það, hvort rjett mundi að leggja aukaútsvar á þessi erlendu fjelög. Jeg býst við því, að það sje einróma álit allra hv. þm., að í raun og veru sje það rjett, að erlend fjelög, sem hafa hjer arð, sjeu skattskyld. Efasemdirnar eru því ekki því viðvíkjandi, hvort rjett sje að skattskylda þau, heldur um hitt, hvort það muni vera óhætt. Hafa sjerstaklega verið dregin fram tvö atriði gegn skattskyldunni.

Fyrra atriðið er það, að verði fjelögin skattskyld, muni þau reka vátryggingarstarfsemina á óheppilegri hátt en áður. Þau muni þá aðeins hafa hjer menn, er safni vátryggjendum, en fjelögin sjálf gefi út tryggingarskírteinin erlendis. Nú er svo kjveðið á í lögum frá 1913 um starfsemi vátryggingarfjelaga, að skírteinin skuli gefin út á íslensku, öll nema sjóvátryggingarskírteini, sem einnig megi vera á öðru máli — og að fjelögin skuli hafa hjer umboðsmann og varnarþing. Virðist því með lögum þessum algerlega trygt, að fjelögin geti ekki fært starfsemina í hið óheppilega form, sem óttast er.

Hitt atriðið er miklum mun alvarlegra. Það er það, að ef sett sjeu hjer lög um skatt af vátryggingarfjelögum, sem ekki sjeu í samræmi við slík lög annarsstaðar í nágrannalöndunum, t. d. í Danmörku, þá muni fjelögin taka það illa upp og hækka að mun iðgjöldin. Og í lögum um sama efni frá 1910 er vitnað til þessa og það staðfest. Það þarf því ekki að taka það sjerstaklega fram, að slík fjelög eru háð tekjuskatti eftir lögunum frá 1922. Það er og í þágu þessara fjelaga að fá að starfa hjer, og á því ríkið lögum samkvæmt að setja reglur um tekjur þessara fjelaga, til þess að tryggja það, að þau komist ekki betur af eða standi betur að vígi en innlend fjelög. Í Noregi eru lög um það, að bæjarfjelög geti skattlagt slíka starfsemi auk þess, sem ríkið tekur af þeim skatt. Jeg hefi ekki náð í heimildir um, að til sjeu lög um þetta efni í Svíþjóð, en menn, sem þar eru kunnugir, hafa fullyrt við mig, að þetta sje eins þar og í Noregi. Á Englandi er það allörðugt fyrir erlend fjelög að fá að starfa. Þess er gætt þar, að þau komist á engan hátt betur af en innlend fjelög. Jeg hefi sjeð brjef frá lögmanni einum, sem var spurður um þetta, og er þar bent á, að öll slík fjelög verði að skrásetjast í sjerstökum skrifstofum, sem eiga að gæta hagsmuna landsmanna í þessum efnum og sjá um, að slík erlend fjelög sleppi ekki við að greiða neina þá skatta, sem innlend fjelög verða að greiða, eða komist á neinn hátt of vel af þar í landi. Það er því alveg óhætt fyrir okkur að samþykkja þetta frv. þess vegna, að við göngum í engu framar öðrum þjóðum í þessu. Við erum miklu fremur langt á eftir öllum öðrum þjóðum í þessu. Það eru flestar þjóðir, sem vernda svo vel hag þegna sinna, að þær gæta þess, að erlendir menn eða fjelög geti ekki rekið atvinnu eða neina aðra starfsemi í landinu með meiri rjetti eða betri aðstöðu en innlendir menn.

Þess var óskað, að leitað yrði álits borgarstjóra Reykjavíkur um þetta mál, en það er auðvitað, að þess þarf vart að vænta, að hann viti meira en aðrir um þetta mál. Hann hefir brjeflega sent álit sitt um þetta mál og telur það æskilegt fyrir bæjarfjelagið, ef hægt væri að gera þessi fjelög útsvarsskyld. En á hinn bóginn er hann hálfhræddur um þetta sama, sem nú hefir verið á minst og sem sýnt hefir verið, að er ástæðulaust. Er það sýnilegt, að hann hefir ekki rannsakað þetta mál neitt sjerstaklega, en ræður aðeins til, að þetta verði ekki gert nema að vel athuguðu máli. Þetta, sem jeg nú hefi sagt, á jafnt við þessa hræðslu borgarstjóra og þær efasemdir ýmsra háttv. deildarmanna, sem vart varð við 1. umr. þessa máls. Það er vitanlegt, að þau erlend vátryggingarfjelög, sem hjer starfa, óska ekki eftir því að fá að borga þennan skatt. Það er eins með þau og aðra skattþegna, að þeim er ekkert um það gefið að þurfa að greiða mikla skatta. En að hinu er full ástæða til að gá vel, hvort með þessu sje hjer verið að íþyngja um of erlendum fjelögum, sem starfa hjer, svo þau hafi ástæðu til að kvarta undan því eða fái átyllu til þess að reyna að ná sjer niðri á okkur á einhvern hátt.

Í brjefi því, sem jeg áðan gat um, víkur borgarstjóri að því, að þessi erlendu fjelög hafi nýlega lækkað iðgjöldin fyrir brunatryggingar. Þessu má alls ekki rugla saman við skattfrelsi þeirra, því þetta er af alt öðrum rótum runnið. Þegar vatnsveitan komst hjer á, lækkuðu brunabótagjöldin um 20%, og var það ekki vegna minni álaga á fjelögin, heldur af því, að nú varð brunahættan miklu minni, og því minni áhættan við að taka að sjer brunatryggingar. Nú á síðari árum hefir verið gert mjög mikið hjer í bænum til þess að efla slökkviliðið og útvega því betri áhöld, og er það nú orðið svo miklu betra en áður var, að því er ekki lengur saman jafnandi. Þá hefir og vatnsleiðslan verið aukin að helmingi nú alveg nýlega, og sem bein afleiðing af því einu áttu iðgjöldin að lækka að stórum mun, eins og þau nú hafa gert, en þó telja ýmsir, að þau hafi ekki lækkað eins mikið og rjett hefði verið. Þetta er alls ekki að skoða sem ívilnun af fjelagsins hálfu, heldur eiga iðgjöldin ávalt að lækka um leið og brunahættan minkar og tryggingarnar verða áhættuminni fyrir fjelögin. En þessu má alls ekki rugla saman við það, að fjelögin beri ekki þau sjálfsögðu gjöld til bæjar- og sveitarsjóða, þar sem þau starfa.

Jeg býst við, að allir hv. þm. sjái nú, að við göngum hjer ekki feti framar en rjett er og venja er annarsstaðar, og að hjer er alls ekki verið að íþyngja erlendum mönnum eða fjelögum frekar en innlendum. Það er aðeins verið að tryggja það, að hjerlendri starfsemi verði ekki íþyngt svo, að hún standi ver að vígi en það, sem erlent er. Það er t. d. hart, að Sjóvátryggingarfjelag Íslands starfi hjer við erfiðari kjör en erlendir keppinautar þess. Það væri og sjálfsagt sem afleiðing þess, ef ekki fæst leiðrjetting á jafnsjálfsögðu máli og þessu, að fjelagið hætti að starfa, — gæfist upp. Þessu íslenska fjelagi er vel stjórnað og hagur þess er alls ekki slæmur, og gæti því vel staðið sig við að hætta að starfa þess vegna. En ef það á aðeins að skattleggja innlenda starfsemi, er engin von til þess, að menn vilji reyna að fást við slíka starfsemi, ef erlend fjelög — keppinautarnir — eru skattfrjáls. Að öðru leyti er löggjöf okkar á eftir löggjöf annara þjóða í þessu efni. Samkvæmt norskum lögum er hægt að ná í erlend skipafjelög, sem sigla þar með ströndum fram, og skattleggja þau í þágu bæjarfjelaganna, en hjer er þetta ekki hægt. Jeg vonast því til, að þó að menn hafi óttast, að þetta mál hafi að einhverju leyti eitthvað brostið á í undirbúningnum, þá sje nú allur sá ótti í burtu, er það hefir verið sýnt, að þetta hafði ekki við rök að styðjast, og því geta nú háttv. þm. samþykt þetta frv. alveg óhræddir þess vegna.