15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2263 í B-deild Alþingistíðinda. (1670)
130. mál, útsvarsálagning erlendra vátryggingafélaga
Magnús Torfason:
Eftir því sem mjer skilst, myndi rjetta leiðin í þessu máli vera sú, að skattskylda sum af þessum erlendu fjelögum, en önnur ekki. Hinsvegar býst jeg ekki við, að það þurfi að óttast, að níðst verði um of á þessum fjelögum. Aðalaðsetur flestra þessara fjelaga er í Reykjavík, og á þá Reykjavík mest á hættu um að hækkuð yrtu iðgjöldin, ef farið væri að sýna þeim ósanngirni. Og þar sem flestir íslenskir botnvörpuskipaeigendur munu tryggja skip sín hjá erlendum fjelögum, þá hygg jeg, að þeir menn með öllu sínu fylgiliði sjeu svo ríkir og áhrifamiklir, að bæjarstjórn og niðurjöfnunarnefnd myndu taka tillit til þeirra í sínum tillögum, ef sú yrði raunin á, að þrengt væri kosti þeirra með of háum skatti á fjelögunum, sem þeir tryggja skip sín hjá. En þyki þetta ekki næg trygging gegn yfirgangi bæjarstjórnar, mætti koma að brtt. við frv. þetta við 3. umr., þess efnis, að samþykki atvinnumálaráðuneytisins þurfi til þess, að skatt megi leggja á þessi fjelög. Annars er jeg í öllu meðmæltur stefnu frv., þeirri, að styðja innlend fyrirtæki, og tel hverja slíka viðleitni góðra gjalda verða.
Loks er eitt atriði, sem jeg vildi minnast á áður en jeg lýk máli mínu. Hjer hefir mikil áhersla verið lögð á það, hverjir væru erlendir siðir í þessum efnum, og má vel vera, að það sje mjög gott til leiðbeiningar. En hvers vegna var ekki á þetta minst í öðru máli, sem hjer hefir nýlega verið til umræðu og snerti mjög mikið hag ríkissjóðs! Jeg veit nefnilega ekki til, að nokkursstaðar hafi verið sá háttur upp tekinn að skattleggja ríkisstofnanir, og átt hefi jeg tal um það við kunnuga menn, og vita þeir heldur ekki til, að slíkt viðgangist nokkursstaðar. En þegar það mál var hjer á döfinni, þá var ekki verið að spyrja um, hvort það væri útlendur siður eða ekki.