02.05.1924
Efri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2265 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)
130. mál, útsvarsálagning erlendra vátryggingafélaga
Frsm. meiri hl. (Eggert Pálsson):
Allsherjarnefnd hefir athugað þetta litla frv. og meiri hl. hennar leit líkt á það og borgarstjóri virðist hafa litið á það. Meiri hl. ljet prenta brtt. við þetta frv., en hefir nú fallið frá þeim. Eins og þá stóðu sakir hafði nefndin ekkert á að byggja nema eitt brjef, brjefið frá borgarstjóra. Nefndin hefði viljað eiga tal við formann Sjóvátryggingarfjelags Íslands um þetta mál, en það var ekki hægt, sökum þess að hann var ekki í bænum. Nefndin hafði því lítið af góðum heimildum um málið, en meiri hl. hugði, eins og borgarstjóri tekur fram í brjefi sínu, að ef lagt væri útsvar á líftryggingarfjelög, þá mundi það verða til þess að iðgjöld hækkuðu, og það kæmi því aðeins niður á viðskiftamönnum þeirra. En nú hefir nefndin fengið nýjar upplýsingar, sem sýna, að það er engin hætta á slíku, því slík fjelög greiða alla venjulega skatta og álögur í öðrum löndum, og geri því ráð fyrir að gera það eins hjer sem annarsstaðar. Það er því komin hjer ný ástæða fram, sem sýnir, að það er sjálfsagt fyrir okkur meiri hl. að taka brtt. okkar aftur. Og þegar svo er ástatt, sje jeg ekki, að við brjótum nokkuð odd af oflæti okkar með því. Jeg sje aðeins eftir pappírnum, eins og maðurinn sagði, pappírnum, sem hefir farið í þetta allítarlega nefndarálit. Nefndin mælir því með því, að frv. þetta sje samþykt óbreytt.