01.04.1924
Neðri deild: 39. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í B-deild Alþingistíðinda. (168)
1. mál, fjárlög 1925
Magnús Jónsson:
Jeg hefi gert till. um að tekinn verði upp í fjárlögin styrkur til geitnalækninga. Þessi styrkur hefir verið feldur niður. Var hann 3000 kr., en jeg legg nú til, að hann verði nokkuð lægri, eða aðeins 2000 kr.
Jeg býst við, að allir hv. þm. þekki eða hafi þekt einhvern mann með geitur, og það er alkunna, að þeir sjúklingar eru sannnefndir krossberar. Læknar, sem ekki ofbýður alt og ýmsu eru vanir, hafa sagt, að þeir vorkendu engum sjúklingum eins og þeim, sem hefðu geitur. Þeir geta helst hvergi komið á mannfundi, ekki í kirkju eða á aðra staði, þar sem þeir verða að taka ofan. Á þá er litið með fyrirlitningu, og fólki þykja geiturnar ekki aðeins vanvirða fyrir þá, heldur þjóðfjelagið yfirleitt. Geiturnar eru ekki skoðaðar sem sjúkdómur, heldur miklu frekar sem ræfilsmerki. Auðvitað er þetta fordómur, en hvað sem því líður, verða mennirnir beygðir og kjarklausir. Sjúkdómurinn er smitandi og því er sagt, að hann gangi í ættir. Börn fá hann af foreldrum sínum og börn þeirra svo aftur af þeim. Tvö og þrjú systkini og jafnvel fleiri hafa stundum öll þennan hvimleiða sjúkdóm. Það getur engum dulist, að æskilegt væri að útrýma honum alveg úr þjóðfjelaginu, ekki síst fyrir það, hvað hann er ógeðslegur. Er best að taka sem fyrst upp við hann baráttuna, áður en hann nær að útbreiðast meira. Allir þekkja þá baráttu, sem hjer og í öðrum löndum er háð við berklaveikina og ærnu fje er varið til. En vegna útbreiðslu hennar vinst lítið úr. En þessum sjúkdómi er auðvelt að útrýma alveg, ef rækilega er að verki gengið í nokkur ár, því að nýtísku tæki, sem við höfum einnig við höndina sigrast á honum, þótt vondur sje viðureignar.
Læknafjelag Íslands, sem fyrir margra hluta sakir er ágætt fjelag, hefir tekið að sjer að beitast fyrir útrýmingu þessa sjúkdóms. Hefir það reynt að safna frá læknum skýrslum um það, hve sjúkdómurinn sje útbreiddur, og komist að þeirri niðurstöðu, að 50 sjúklingar sjeu í landinu, sem hafi geitur. En gera má ráð fyrir að læknarnir hafi ekki náð til allra, svo að sjúklingatalan sje eitthvað hærri, ef til vill upp undir 100. Styrkur sá, sem Alþingi hefir veitt til að útrýma þessum sjúkdómi, hefir ekki verið hár, en samt hefi jeg nú farið fram á ennþá minni upphæð, þar sem fjárhagsörðugleikarnir eru tilfinnanlegir. En þar sem Alþingi hefir áður með styrknum sýnt, að það telur nauðsyn á að útrýma sjúkdómnum, vænti jeg þess, að það láti þessu áhugasama fjelagi í tje þessa upphæð. Vona jeg, að allir sjái það, að ilt er að hætta við hálfnað verk, einkum þar eð um smitandi sjúkdóm er að ræða, svo að búast má við, að það, sem gert hefir verið, verði til engra nota, ef hætt er viðleitninni á byrjunarstigi. Nú hafa verið fundnar upp nýjar aðferðir við lækningu sjúkdómsins. Áður var hann læknaður þannig, að tekið var með töng hvert hár út af fyrir sig og reitt upp. Var þetta bæði seinlegt og kvalafult. Varð oft að reita sama hárið aftur og aftur, þar eð í stað þess að losna úr pokanum, duttu hárin oft og tíðum sundur í miðjunni. Nú er helt yfir geiturnar Röntgengeislabaði, sem er með öllu kvalalaust, 4–5 sinnum, og eftir nokkurn tíma eru hárin þá öll laus. Þarf þá ekki annað en að binda um kollinn, eins og hvert annað sár, og eftir nokkurn tíma er svo sárið gróið og þykt og sterkt hár vex á ný. En nú eru þessi lækningatæki ekki til annarsstaðar á landinu en hjer í Reykjavík, og verða því sjúklingarnir að koma hingað til lækninga. Er það, eins og gefur að skilja, ofvaxið fátæklingum, sem yrðu að fá sveitarstyrki, ef þeir ættu að fá lækningu. Og flestir þeir, sem hafa þennan sjúkdóm, eru einmitt fátækir. Það er bein afleiðing af því, að sjúkdómurinn beygir menn, gerir þá óframfærna og lokar fyrir þeim leiðunum, sem liggja til velgengni og virðingar í þjóðfjelaginu. Nú hafa þó nokkrir sjúklingar notið þessa styrks, og hefir landlæknir úthlutað honum þannig, að greiddir hafa verið 3/5 kostnaðar. Sumum verður lækningin tiltölulega ódýr, öðrum dýrari. Sumir geta verið undir læknishendi heima hjá sjer, þá er þeir hafa notið hjer Röntgenlækningarinnar; aðrir, sem búa langt frá lækni, þurfa að vera hjer 2–3 mánuði, því að ef þeir eru ekki undir læknishendi þann tíma, má búast við, að sjúkdómurinn taki sig upp aftur, og seinni villan verði verri en hin fyrri.
Jeg skal annars geta þess, að forstöðumaður Röntgenstofnunarinnar hjer hefir ekki fengið einn eyri af þessum styrk, heldur hefir hann nær allur runnið til sjúklinganna. Gunnlaugur Claessen hefir gert þetta að áhugamáli sínu og tekið ekkert fyrir lækninguna. Vona jeg, að háttv. þm. kunni að meta þetta, og samþykki nú þessa till. mína.
Þá kem jeg að till. um aukinn styrk til strandferðaskipsins Esju. Jeg er ekki alveg viss um, að rjett sje að auka styrkinn. Þykist ekki sannfærður um, að það sje heppilegt.
Jeg man ekki, hvort það var á síðasta þingi, sem mesti úlfaþyturinn varð út af ferðaáætlun. samgöngumálanefndar. Hún hafði gert ráð fyrir, að skipið kæmi á færri hafnir en síðan varð að ráði. Þá risu upp hv. þm. hver af öðrum með alla sína hreppapólitík. Hver togaði í sinn skækil, og endirinn varð sá, að skipið var látið koma inn á hverja vík. Mjer er nær að halda, að heppilegra hefði verið að fara að ráði nefndarinnar, láta skipið vera fljótara í förum og koma á færri hafnir í hverri ferð. Má það heita undarlegt, ef fólk kýs ekki heldur að fara lengra til skips og komast svo leiðar sinnar greiðlega með skipinu, heldur en hitt, að fá skipið á næsta vog, en verða svo með ærnum kostnaði og illri líðan að fara inn á vogana til allra annara og komast seint leiðar sinnar. En aðalatriðið fyrir mjer er það, að með þessu móti mundi skipið geta siglt inn meiri peninga, og ef til vill borið sig alveg. En hvað sem þessu líður, held jeg, að rjett sje að áætla styrkinn ekki mjög hátt. Sje hann lægri, er meiri hvöt til að láta útgerðina bera sig sem best. Annars veit jeg það vel, að þessi upphæð er ekki neitt sóunarfje, heldur aðeins áætlunarupphæð; og auðvitað þarf ríkissjóður hvort sem er að bera hallann, sem kann að verða á rekstri skipsins.
Þá kem jeg að till. hv. 3. þm. Reykv. (JakM) um uppbót á launum talsímakvenna í Reykjavík. Flyt jeg þar varatillögu, þar sem farið er fram á lægri upphæð. Mega menn ekki líta svo á, sem jeg sje þar að spilla fyrir hærri upphæðinni. Það er öðru nær, og jeg get strax lýst því yfir, að jeg mun greiða aðaltill. atkvæði. En þar sem jeg tel brýna þörf á einhverri uppbót, en er hinsvegar hræddur um, að ýmsum kunni að þykja sú upphæð, er aðaltillagan gerir ráð fyrir, nokkuð há, flyt jeg þessa varatill., ef hún kynni að finna frekar náð í augum hv. þm. Og fer mjer þar sem fleirum, að mjer þykir betri hálfur skaði en allur. Jeg vildi því óska, að allir þeir, sem greiddu till. atkvæði við 2. umr., greiði henni engu síður atkvæði nú, þó að upphæðin sje hærri, því að það er aðeins rjettmæt leiðrjetting, í samræmi við það, að fleiri stúlkur eru teknar með. Tillögu okkar ber að skoða sem virkilega varatillögu, en alls ekki sem fleyg á nokkurn hátt. Allir hv. þm. hljóta að viðurkenna, að þessar stúlkur eru langverst launaðar allra starfsmanna hins opinbera, og hið eina, sem gæti rjettlætt þessi kjör þeirra, er, að þær hafi lífsuppeldi sitt að mestu annarsstaðar frá, t. d. hjá foreldrum sínum og öðrum vandamönnum; en augljóst er, að engin meining er að byggja launakjör þeirra á slíku. Þess vegna vil jeg eindregið mæla með brtt. háttv. 3. þm. Reykv.
Þá langaði mig til að fara nokkrum orðum um brtt. hv. fjvn. viðvíkjandi náms- og húsaleigustyrk háskólastúdenta. Mjer er vel kunnugt um það, hversu styrkur þessi hefir altaf verið ófullnægjandi, þar sem jeg hefi um nokkurt skeið tekið þátt í úthlutun hans. Það hefir altaf vakað fyrir okkur kennurunum að reyna af fremsta megni að veita þeim einkum styrk, sem fátækastir voru og erfiðast áttu uppdráttar, en láta hina heldur sitja á hakanum. En reynslan hefir sýnt, að þetta er afarerfitt, því að langflestir stúdentarnir eru svo illa stæðir fjárhagslega. Þeir gefa skýr vottorð um efnahag sinn, sem eru staðfest af kunnugum, skilríkum mönnum, og þessi vottorð sýna, hversu afarbágborinn efnahagur stúdenta er alment. Það þykir jafnvel gott, þegar þeir verða ekki sjálfir að styrkja aðra — fremur en að þeir fái nokkurn styrk. Að vísu eru til undantekningar frá þessu, en niðurstaðan verður altaf sú, að styrkurinn murkast niður milli flestallra stúdentanna og munar engan neinu verulegu, sem æskilegt væri.
Nú er, samkv. till. hv. fjvn., ætlast til þess, að sáttmálasjóður háskólans leggi fram á móti ríkissjóði fje í þessu skyni, til styrktar stúdentum. Jeg fyrir mitt leyti er hræddur við þetta ákvæði. Jeg er að vísu kannske ekki vel kunnugur stjórn sjóðsins, en hjer virðist mjer upp vakið gamalt stífnismál af hálfu Alþingis, að velta yfir á sjóðinn sem mestu af námsstyrk stúdenta. Jeg veit sem sagt ekki, hvernig stjórn sjóðsins kann að taka undir þessar óskir, en mjer sýnist ljóst, að sjóðurinn hafi ekki neitt fje aflögu í þetta.
Eins og kunnugt er, eru 20% af ársvöxtum sjóðsins lagðir við hann árlega, og álít jeg það næstum því óforsvaranlegt, að við skulum kvelja okkur þannig fyrir niðjana, en þó er það nú svo, að af þeim 50 þús. kr., sem vextirnir nema, eru 10 þúsundir lagðar við höfuðstól sjóðsins. Og þá verður ekki mikið eftir, þegar þess er gætt, að sjóðurinn á að standa straum af mestallri vísindastarfsemi landsins, og mætti ríkissjóður illa við því nú, á þessum erfiðu tímum, að bæta á sig þeim útgjöldum, og má því vel við una, að sáttmálasjóðurinn geri það, að svo miklu leyti, sem hann megnar.
Eins og menn vita, er sjóðnum markaður þrenskonar tilgangur: 1) Að styrkja hið andlega samband milli Íslands og Danmerkur, 2) að styðja íslenska vísindastarfsemi og 3) að styrkja íslenska námsmenn. Nú hefir sú regla verið upp tekin, að hlíta þriðja ákvæðinu á þann hátt, að kandídatar eru styrktir til utanferða að afloknu embættisprófi til frekara náms. Þetta er því nauðsynlegra, sem segja má, að jafnvel eini ókostur háskóla hjer heima sje hættan á því, að við einangrumst um of. Það er hætt við einangrun, þegar við höfum ekki lengur fjölda háskólagenginna manna, sem fengið hafa mentun sína erlendis. Úr þessu hefir stjórn sáttmálasjóðsins viljað bæta, með því að veita 4–6 efnilegum kandídötum styrk úr sjóðnum til framhaldsnáms erlendis, og má fullyrða, að nú þegar hafi áunnist mikið í þessu efni. Jeg sje, að á síðustu áætlun um gjöld sjóðsins eru áætlaðar 10 þús. kr. í þessu skyni.
Þá er tveimur háskólakennurum veittur utanfararstyrkur árlega. Liggja til þess hinar sömu ástæður og með kandídatana. Vísindalífið hjer heima er ekki svo fjörmikið eða líflegt, að hætta er á því, að menn „forpokist“, sem kallað er, ef þeir fá ekki tækifæri til þess að kynnast hinum nýju straumum í vísindalífi nágrannaþjóðanna, og auk þess er það oft og einatt beinlínis nauðsyn fyrir vísindamenn að sækja til útlanda heimildir, sem hjer eru ekki til. Með því að veita aðeins 2 kennurum utanfararstyrk árlega er nokkuð lengi verið að komast yfir þá alla. Mun láta nærri, að hver kennari geti að jafnaði farið einu sinni utan á þennan hátt, en það fer auðvitað nokkuð eftir því, hversu lengi þeir starfa við skólann.
Þá styrkir sjóðurinn að nokkru bæði mötuneyti stúdenta og lesstofu þeirra. Nokkuð gengur líka til áhaldakaupa handa læknadeildinni, samkv. 2. lið 2. greinar stofnskrár sjóðsins. Og nú er mjer kunnugt um, að háskólaráðið hefir fullan hug á að veita úr sjóðnum einhverja upphæð til fyrirhugaðs stúdentagarðs, en til þess þarf helst að fá breytt stofnskrá sjóðsins, og heyrðist mjer á hæstv. forsrh. (JM), að góð von væri um, að svo mætti verða.
Af öllu þessu má sjá, að sáttmálasjóðurinn hefir nóg á sinni könnu, og er jeg því hræddur um, að ef þessi brtt. hv. fjvn. verður samþykt, þá sje það sama og að færa styrkinn niður í 10 þús. kr. Annars er óviðkunnanlegt að setja slík skilyrði fyrir styrkveitingum úr ríkissjóði. Það er sama og ef maður kæmi til Alþingis og bæði um 2000 kr. utanfararstyrk og fengi það svar, að þingið skyldi veita honum 1000 kr., ef t. d. Landsbankinn veitti honum 1000 kr. lán. Það er leiðinlegt, að Alþingi skuli á þennan hátt vera að vísa á fje, sem það hefir í raun og veru ekkert yfir að segja. Í þessu efni er till. hv. fjvn. betri nú heldur en hún var upphaflega. Jeg skal að lokum geta þess, að jeg hefi engan íhlutunarrjett um stjórn sáttmálasjóðsins, því dócentar hafa, eins og kunnugt er, ekki rjett til að sitja í háskólaráðinu.
Þá vil jeg minnast á brtt., sem jeg á við 22. gr., um að veita Jóh. Reykdal ábyrgð ríkissjóðs fyrir alt að 50 þús. kr. láni til þess að koma upp verksmiðju til að vinna fóðurmjöl úr fiskúrgangi. Jeg geri nú ráð fyrir því, að það hafi litla þýðingu að mæla með slíkri till.; að ekki sje um annað að gera en að slá striki yfir allar slíkar ábyrgðarheimildir, og ef svo verður gert, þá mun jeg una því, að þessi fari sömu leiðina. En benda vil jeg á það, að það er varhugavert að spara svo mjög, að af hljótist hinn versti ósparnaður, eins og hv. þm. Dala. (BJ) kemst stundum að orði? Og það er hinn versti ósparnaður að spila illa úr því, sem við öflum. Nú er það kunnugt, að í veiðistöðvunum kringum landið fer ákaflega mikið verðmæti í súginn, vegna þess að framtakssemi vantar — og rjett tæki — til þess að færa sjer það í nyt. Jeg á hjer við allskonar fiskúrgang, hausa og hryggi o. s. frv., sem væru nokkurra miljóna virði, ef rjettilega væri með farið.
Þar sem verstöðvarnar eru dreifðar, er að vísu ekki gott að koma því við að nota þennan úrgang, svo að það svari kostnaði. En nú vill svo vel til, að margar stærstu verstöðvar landsins liggja skamt hvor frá annari, t. d. hjer við Faxaflóa, og þar er tiltölulega hægt að koma slíkum notum við.
Það hefir líka verið athugað, hversu mikið fjelli til af fiskúrgangi þessum hjer við Faxaflóa, og mönnum hefir talist svo til, að það væri nálægt 1000 tonn, eða svo hyggur Reykdal, sem hefir allra manna mest rannsakað þetta mál. Hann áætlar einnig, að hvert kíló sje 12 aura virði, og þykir oft muna um minna. Mundi jafnvel borga sig fyrir útgerðarmenn að halda mann, sem ekkert hefði annað að gera en að hirða þennan fiskúrgang, þurka hann og gera nothæfan, einn mann fyrir hvern bát t. d.
Aðferðin að koma þessu í verð er sú, að fyrst er úrgangurinn þurkaður, en síðan malaður í verksmiðju og gert úr honum fóðurmjöl. Þar er blandað saman við hann öðru efni, sem er enn ódýrara, en hefir þó ágætt næringargildi, en það er þang. Slíkt mjöl mun nú vera seljanlegt fyrir 30–35 aura hvert kíló hjer innanlands, en með því að flytja það út, mun mega fá ca. 30 aura nettó fyrir kílóið. Sjá nú allir, að ef framleiðsla þessi er rekin af kappi og sæmilegt verð fæst fyrir mjölið, þá er hjer um verulega tekjugrein fyrir landið að ræða, eða sem svarar, eftir áætlun Reykdals, 300–350 þús. kr. framleiðslu fyrir þennan hluta landsins einan. Jeg er að minsta kosti viss um, að öllum þætti miður, ef slík framleiðsla fjelli niður, þegar hún einu sinni væri komin á fót.
Líka er á það að líta, að ef ein slík verksmiðja væri komin á fót og gæfist vel, þá má búast við því, að víðar um landið risu upp aðrar samskonar og landinu yrði að þeim enn meiri tekjugrein.
Annars má geta þess, að verksmiðjurekstur þessi er ekki með öllu óreyndur hjer á landi. Þessi sami maður, sem nú sækir um stuðning ríkisins, gerði fyrir nokkrum árum tilraun með samskonar verksmiðju í Sandgerði. En þar rak hann sig á ýmsa örðugleika, sem altaf vilja sitja um hverja byrjun, hverja nýja tilraun og draga úr viðgangi hennar. Menn sýndu honum þar ýmist skilningsleysi eða mótþróa og jafnvel óvild, sem tafði mjög fyrir honum, svo að hann sá þann kost vænstan að hætta rekstrinum og afsala sjer verksmiðjunni, sem þó hafði gengið vel meðan hann rak fyrirtækið. Auk þess mun nokkuð hafa spilt fyrir þessari tilraun, að vjelarnar voru ekki sem bestar, svo að mjölið hafði þann ókost, að það var stundum ekki alveg laust við leifar af önglum og öðru slíku, sem ekki þykir hentugur fóðurbætir. En þessi hætta er alveg útilokuð, ef fullkomnustu tæki eru viðhöfð.
Öll byrjun er erfið og oft þarf ekki nema litla hjálp, ef hún kemur á rjettum tíma. Það er meira virði en mikil hjálp, sem kemur of seint. Það þarf segul til þess að draga menn að hverju fyrirtæki í upphafi, og í þessu tilfelli á sá segull að vera hjálp ríkissjóðs, sem ekki þarf að kosta hann einn eyri, heldur verður honum miklu fremur margfaldur gróði, ef hann með því að ganga í hættulitla eða hættulausa ábyrgð gæti orðið þess valdandi, að arðvænleg hagnýting yrði hafin á því, sem nú er fleygt í sjóinn. Þegar fyrirtækið er komið upp — og það kemur upp innan skamms og skal þá ganga vel, — þá verður það ekki lengur hjálparþurfi; þá þyrpast menn að því. En hjálp ríkissjóðs getur komið fyrirtækinu fyr á fót og hjálpað því yfir tómlæti manna og skilningsleysi, og gott ef ekki fjandskap gegn þessari nýbreytni. Annars hefir forgöngumaðurinn helst hug á því að stofna hlutafjelag í þessu skyni, einkum til þess að tryggja hlutdeild þeirra í fyrirtækinu, sem það þarf mest við, og gæti ríkissjóðsábyrgðin þá frekar dregið menn að fyrirtækinu, auk þess sem hún gerði því auðveldara að fá nauðsynlegt lánsfje.
Jeg þykist vita, að hv. fjvn. og ýmsir aðrir hafi það á móti þessari till., að fyrirtækið sje of lítið undirbúið, þar sem ekki liggja fyrir teikningar og áætlanir. Þetta er að nokkru leyti rjett, en þó hefir forgöngumaðurinn gert nokkrar kostnaðaráætlanir, þó að kannske megi segja, að þær sjeu ekki strangvísindalegar. Hann hugsar sjer, að bygt verði nokkurn veginn vel vandað hús úr steini yfir vjelarnar og fóðurmjölið, og svo annað óvandaðra yfir hráefnin. Gerir hann ráð fyrir, að hús þessi kosti með öllum vjelum nálægt 60 þús. kr. En ástæða þess, að málið er ekki betur undirbúið, er sú, að forgöngumaður þess hefir hingað til verið vanur að brjótast áfram af eigin rammleik, og var það af hendingu, að hann fór að hugsa um að fá þessa ríkissjóðsábyrgð nú fyrir skömmu, sem sjá má af því, að umsókn hans er svo seint fram komin, ef vera mætti, að mönnum yrði það hvatning að sinna fyrirtækinu, ef hann fengi eitthvern bakhjarl þar sem ríkið væri.
Annars er sá varnagli sleginn í tillögu minni, að ekki komi til ábyrgðarinnar fyr en fyrirtækið sje fulltrygt, að dómi hæstv., stjórnar, og þó að ekki sje beint tekið fram, hverjar tryggingar fyrirtækið skuli setja fyrir láninu, þá segir það sig sjálft, að altaf, þegar ríkissjóður ábyrgist lán á þennan hátt, þá skuli lántakandinn setja fullar tryggingar fyrir láninu. Þær tryggingar, sem jeg hefi hugsað mjer fyrir láni þessu, eru ábyrgð sýslufjelags, þar sem fyrirtækið verður rekið. Sje jeg ekkert því til fyrirstöðu, að sú ábyrgð verði veitt. Annars þykir mjer sennilegt, að krafist verði að minsta kosti 1. veðrjettar í eignum fyrirtækisins fyrir láninu, en þetta atriði verður vitanlega gefið í vald stjórnarinnar.
Loks er eitt atriði, sem mjer finst oft ekki tekið nægilegt tillit til, þegar verið er að veita slík lán eða ábyrgðir, og það er, hver standa á fyrir fyrirtækinu. Jeg hefi oft orðið var við, að menn líta á alt nema þetta mikilvæga atriði. Það er alkunna, að veittar hafa verið láns- eða ábyrgðarheimildir mönnum, sem ekki var hægt að bera neitt sjerstakt traust til. Þó væri það einkennilegt, að allir, sem reka stór fyrirtæki, leggja afarmikið kapp á það að fá sem allra hæfasta menn til þess að veita þeim forstöðu, ef það væri ekki besta tryggingin, að því tilskildu auðvitað, að fyrirtækið geti borið sig að öðru leyti. Nú er það einróma álit allra, sem til þekkja, að hjer sje um sjerlegan dugnaðar- og heiðursmann í hvívetna að ræða, sem er allra manna líklegastur til þess að geta plægt í gegnum hina erfiðu byrjun, sem hjer um ræðir, svo að vel fari. Jeg vonast eftir því, að hv. þm. athugi einnig þetta atriði, þegar þeir greiða atkv. um till.
Eins og jeg tók áður fram, þá má vel vera, að engin slík ríkissjóðsábyrgð verði samþykt að þessu sinni, en jeg vil treysta því, að hv. þm. líti með jafnmikilli sanngirni á þessa till. mína og aðrar svipaðar, og mun jeg sætta mig við þau úrslit, sem þá verða.
Að síðustu vil jeg minnast örlítið á þá brtt. að veita stjórninni heimild til þess að greiða h. f. Eimskipafjelagi Íslands 60 þús. kr. styrk, ef þörf krefur. Jeg get ekki neitað því, að mjer finst farið í öfugan enda á öllu þessu með Eimskipafjelagið. Það fær styrk til strandferða; það er í ráði að veita því skattfrelsi um nokkurt skeið að minsta kosti, og nú á að veita því þennan fátækrastyrk ofan á alt þetta. Menn mega vara sig á því, að þeir baki fjelaginu ekki meira tjón á þennan hátt en þeir vinna því gagn. Það er ekkert sem getur skaðað slík fjelög eins mikið og þetta eilífa styrkfálm. Jeg efast ekki um það, að Eimskipafjelagið ekki aðeins þurfi, heldur og sje þess maklegt, að ríkissjóður reyni eitthvað að hlaupa undir bagga með því. En það á ekki að gerast á þennan hátt, ekki í þessu fátækrastyrksformi. Væri miklu nær að veita fjelaginu t. d. verulega háan styrk til strandferða. Að vísu er ekki hægt að breyta þessu nú við þessa umr., en jeg óska þess, að styrkveiting þessi verði færð í aðgengilegra form áður en fjárlögin verða afgreidd til fullnustu frá þinginn.