01.04.1924
Neðri deild: 39. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (169)
1. mál, fjárlög 1925
Árni Jónsson:
Það er með hálfum huga, að jeg stend upp til þess að mæla með brtt. minni á þskj. 261, undir lið LI, um að ríkissjóður ábyrgist 25 þús. kr. lán handa Borgarfjarðarhreppi, gegn endurábyrgð sýslunnar. Jeg segist standa upp með hálfum huga vegna þess, að mjer hefir heyrst, bæði á hv. frsm. (ÞórJ) og hv. 2. þm. Eyf. (BSt), að ekki bljesi byrlega fyrir slíkum till. hjer í þessari hv. deild.
Það lítur líka út fyrir, að bæði þessi till. og önnur svipuð, sem hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) flytur, hafi komið nokkuð óþægilega við háttv. fjvn. og henni orðið svo mikið um, að hún lætur sjer nú ekki nægja að aðhyllast ekki þessar till., heldur hefir hún einnig kipt að sjer hendinni og vill láta fella niður ábyrgðarheimild fyrir Bessastaðahrepp, sem þó var samþykt hjer við 2. umr. með 19 shlj. atkv.
Það má vel vera, að ótti þessi hafi við nokkuð að styðjast, að hjer sje verið að ganga inn á varhugaverða braut, en þessir hreppar eiga einskis annars úrkosta en að koma til þingsins í vandræðum sínum.
Sá hreppur, sem hjer um ræðir, Borgarfjarðarhreppur, skuldaði um síðastliðin áramót nálægt 23 þús. kr. Eignir átti hann að vísu á sama tíma nokkrar á pappírnum, en þær yrðu sumar hverjar harla lítils virði, ef krefja ætti þær inn. T. d. átti hreppurinn útistandandi um 12500 kr. í dýrtíðarlánum frá stríðsárunum. Var það mestmegnis hjá mönnum, sem síðar hafa orðið styrks þurfar úr sveitarsjóði, og því vonlaust, að greiðist nokkurn tíma.
Hreppur þessi er mjög lítill, íbúar aðeins um 400, en þó er hitt aðalatriðið, að fátækt hefir aukist þar mjög á síðustu tímum. Nú eru gjaldendur í hreppnum um 170, og er jafnað niður á þá um 130 kr. að meðaltali, og er það mjög mikið, þegar tekið er tillit til efnahags þeirra.
Fátækraframfærslan ein nam síðastliðið ár 8500 kr., og hefir stöðugt farið vaxandi, svo það má búast við, að hún aukist einnig framvegis, og til þess liggja ýmsar orsakir. Fyrst og fremst hefir dýrtíðin haft sínar illu afleiðingar þar eins og annarsstaðar, en þar við hefir bæst ilt árferði og óhagstæð verslun.
Hjerumbil helmingur íbúa þessa hrepps býr í kauptúninu, og þeir hafa litla atvinnu aðra en að stunda sjóróðra á opnum bátum. En síðastliðið sumar var mjög óhagstæð veðrátta á þessum slóðum bæði til lands og sjávar, því þegar votviðri eru og óþurkar þar eystra, þá fylgja því venjulega óhagstæð veður til sjósóknar. Það fiskaðist því mjög lítið á þessum slóðum síðastliðið sumar, og þar við bættist, að fiskverð var lágt. Heyskapur var nokkuð mikill hjá mönnum, en heyin nýttust svo illa, að lítil not urðu að þeim. Óþurkarnir voru jafnvel svo miklir, að menn gátu ekki þurkað eldivið sinn. Af þessu öllu saman er gjaldþol hreppsbúa svo lamað, að hreppurinn treystir sjer ekki til að standa í skilum við lánardrotna sína, nema því aðeins að hann fái einhverja hjálp.
Verslun sú, er starfar í þessari sveit, hafði um undanfarin ár borið allra útgjaldanna, og veitti þar að auki mörgum mönnum atvinnu, en nú hefir hún orðið að draga svo saman seglin, að umsetning hennar er aðeins við það, sem áður var. Það hefir raunar risið upp kaupfjelag þarna, en á það er ekki hægt að leggja, nema aðeins fasteignir þess, en þær eru litlar. Af þessu öllu saman hefir svo leitt það, að fólkið hefir farið burt úr þessari sveit, og allir þeir, sem eitthvað eiga, eru óðfúsir að komast burtu eitthvað þangað, sem útgjaldabyrðin er ljettari.
Hv. frsm. fjvn. gat þess í framsöguræðu sinni, að Húsavíkurhreppur hefði ekki getað fengið styrk til vatnsveitu sökum þess, að umsóknarskjal það frá hreppnum, sem lá fyrir þinginu, hefði borið það með sjer, að hreppurinn hefði ekki leitað nægilega fyrir sjer með lán annarsstaðar, t. d. hjá sýslunni. En þetta er ekki rjett. Hreppurinn fór fram á að fá 10 þús. kr. lán hjá sýslunni í fyrra og fjekk 5 þús. Og þetta lán var svo óhagkvæmt — borgunarskilmálar svo vondir — að óhjákvæmilegt er, að ríkið hlaupi undir bagga. Og jeg get ekki sjeð annað en hreppurinn hljóti að verða gjaldþrota, ef honum verður ekki hjálpað.
Jeg held, að jeg þurfi svo ekki að fjölyrða frekar um þetta. Jeg vona, að hv. deild sýni þessari till. fulla sanngirni og greiði henni atkvæði sín.
Þá vil jeg minnast nokkrum orðum á nál. minni hluta samgmn. um strandferðir og styrk til flóabáta. Eins og nál. ber með sjer, höfum við hv. 1. þm. S.-M. orðið sammála um það, að ekki beri að hækka styrkinn til flóabáta upp úr þeim 60 þús. kr., sem stjórnin hefir áætlað. Um skiftingu styrksins milli landshluta höfum við hinsvegar ekki getað orðið algerlega sammála. Jeg skal geta þess að því er Austfirði snertir, að það er ekki rjett, sem margir virðast halda, að sá bátur, sem þar gengur og fær styrk, sje fyrir alla Austfirði. Norður-Múlasýsla hefir yfirleitt engin not af honum, heldur er hann aðeins fyrir Suður-Múlasýslu og að einhverju leyti fyrir Austur-Skaftafellssýslu. (SvÓ: Ætli hann sje nú samt ekki aðallega fyrir Austur-Skaftafellssýslu). Jeg held þó, að það hafi verið svo, að minsta kosti á haustin og vorin, að Suður- Múlasýsla hefir haft mest not af honum. Hann hefir flutt salt og annað, sem útgerðin hefir þarfnast, til Hornafjarðar haust og vor fyrir Sunnmýlinga.
Það er alveg það sama og ef Norðmýlingar fengju styrk til að flytja salt og aðrar vörur til Seyðisfjarðar, svo þeir þyrftu aðeins að nálgast þær þaðan. Jeg er alls ekki að neinu leyti að mæla móti þessum 5 þús. kr. styrk til Austfjarðabátsins, en mjer finst alls ekki rjett, að hann sje notaður til að borga þann kostnað, sem útgerðin þar eystra ætti að rjettu lagi að bera.
Þá hefir verið minst hjer á Esju, og hv. 4. þm. Reykv. (MJ) sagði, að það mundi borga sig betur, ef viðkomustaðir væru hafðir færri. Það getur vel verið, að það borgaði sig betur fyrir skipið, en það borgaði sig ábyggilega ekki betur fyrir landsmenn yfirleitt. Það væri t. d. ekki gott fyrir mig, ef jeg þyrfti að fara til Reykjavíkur, að þurfa að fara frá Vopnafirði til Seyðisfjarðar til þess að ná í Esju. Jeg lít svo á, að þetta skip eigi að vera jafnt fyrir alla landsmenn, og því eigi að gera öllum nokkurnveginn jafnhægt að ná til þess. En fyrir skipið borgaði sig náttúrlega best, að landsmenn væru allir samansafnaðir á nokkrum stöðum á landinu.
Áður en jeg sest niður, verð jeg að minnast á eina brtt., sem jeg er meðflm. að, og það er till. um styrk til ekkju Jóhanns sáluga Sigurjónssonar skálds. Þessi styrkur var upphaflega tekinn með í fjárlagafrv. stjórnarinnar, en fjvn. feldi hann niður. Það var rjettilega tekið fram af hv. þm. V.-Ísf., að þessi styrkur var ekki upphaflega veittur vegna konunnar sjálfrar, heldur vegna rithöfundarfrægðar Jóhanns Sigurjónssonar. Það hafa fáir Íslendingar varpað jafnmiklum ljóma yfir nafn Íslands eins og Jóhann Sigurjónsson. Rit hans eru þekt víða í hinum mentaða heimi. Og þótt hann væri ungur maður, hikuðu menn ekki við að nefnda hann með stærstu skáldum. Því var því vel tekið af öllum þegar Alþingi gekk inn á þá braut að veita ekkju Jóhanns Sigurjónssonar styrk. Jóhann Sigurjónsson var ekki efnaður maður, og því hefir ekkja hans víst haft lítið annað að lifa af en fje það, sem Alþingi hefir veitt henni. Hún var efnuð þegar hún gekk að eiga Jóhann sáluga, en þau efni, sem hún átti þá, gengu til þurðar í sambúðinni við hann, og það voru margir Íslendingar, sem nutu þeirra, því heimili þeirra stóð opið svo að segja öllum Íslendingum, sem vildu. Einkum voru það ýmsir listamenn íslenskir, sem nutu gestrisni þessarar konu. En síðan Jóhann Sigurjónsson dó hefir Alþingi Íslendinga verið eina stoðin, sem hún hefir haft að styðjast við. Nú hefir þessi kona ratað í raunir. Hún hefir hlotið ámæli meðal almennings og mál hennar hefir verið tekið til rannsóknar, en það hefir enginn dómur verið kveðinn upp í því ennþá, svo við vitum ekki nema þetta, sem sagt er, sje tóm lygi frá upphafi til enda.
Sá eini dómur, sem hefir verið kveðinn upp yfir henni, hefir verið kveðinn upp af hv. fjvn., og þann dóm vill hv. nefnd láta Alþingi staðfesta. Landar þessarar konu hafa snúið við henni bakinu. Þeir munu hafa glaðst með henni á meðan henni gekk vel, en nú gleðjast þeir yfir óförum hennar. Eða svo er að minsta kosti að sjá af dönskum blöðum, sem segja frá þessu máli. Það, sem í þeim stendur um þetta, virðist vera sagt með kuldaglotti. Eina athvarf þessarar konu er því Alþingi, og mjer finst það ekki vera þeirri samkomu samboðið að sparka nú í hana, þar sem hún liggur fótumtroðin í sorpinu í öðru landi. Við höfum nú þegar skorið margt niður, en það hefir alt komið niður á löndum vorum. En hjer er um konu að ræða, sem er í framandi landi, og þótt vjer höfum hingað til yfirleitt látið hina köldu skynsemi ráða í meðferð okkar á fjárlögunum, þá vona jeg, að hv. þm. lofi tilfinningunum að tala hjer með og samþykki þessa brtt.