07.04.1924
Neðri deild: 44. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2299 í B-deild Alþingistíðinda. (1709)
84. mál, aukaútsvör ríkisstofnana
Jakob Möller:
Jeg stend upp vegna þeirra orða, að minni hl. allshn. væri sjerstaklega að flytja mál Reykjavíkurbæjar. Jeg get ekki fallist á, að þetta sje rjett, enda fylgir hv. 2. þm. Reykv. (JBald) meiri hlutanum, og ef þingmenn Reykvíkinga eru tvískiftir í máli þessu, þá eru þeir einnig þrískiftir, því að jeg er mótfallinn frv. breyttu eða óbreyttu. Það er að mínu viti bygt á röngum skilningi á lögum og aðstöðu þessara fyrirtækja gagnvart sveitarfjelögunum. Virðist mjer þessi stefna geta orðið mjög hættuleg framvegis, og það á fleiri vegu en einn.
Það er ekkert vafamál, enda er frv. þetta tvímælalaus játning á því, að öll þau fyrirtæki, sem rekin eru í gróðaskyni, eru að lögum útsvarsskyld til sveitarsjóðs, án tillits til þess, hver er eigandi þeirra. Með þessu frv. er nú verið að koma gróðafyrirtækjum ríkissjóðs undan því að greiða lögmælt gjöld til sveitarsjóðs eftir sömu reglum sem önnur fyrirtæki. Jeg benti á það við 1. umr., að stofnun þeirra fyrirtækja ríkissjóðs, sem hjer um ræðir, væri byrjun á þjóðnýtingu, og hvað af því gæti leitt, ef þeirri stefnu væri haldið áfram. Þá hlyti að koma að því, fyr eða síðar, að bæjar- og sveitarfjelög gætu ekki risið undir útgjaldabyrði sinni, ef þeim væri ekki sjeð fyrir tekjum af þessum fyrirtækjum til þess að greiða útgjöld sín. Ef sósíalisminn verður framkvæmdur, verður hið opinbera, ríkissjóðurinn sjálfur, að taka á sig rekstur bæjar- og sveitarfjelaga, alveg eins og rekstur ríkisins, og greiða kostnaðinn af ágóðanum af atvinnufyrirtækjum sínum.
Með þessu er yfirleitt verið að rýra skattstofna bæjar- og sveitarfjelaga. Ekki einungis Reykjavíkurkaupstaðar eins, og er jeg því samdóma hv. þm. Ísaf. (SigurjJ), að önnur sveitarfjelög, sem þessi atvinnufyrirtæki eru rekin í, eigi alveg sama rjett sem Reykjavík til gjalds í sjóði sína. Löggjafarvaldið skipar bæjar- og sveitarfjelögum gjaldstofna, sem viðlit er, að geti nægt þeim, og það verður að taka fult tillit til þessa í skattalöggjöf sinni. Enda hefir löggjafarvaldið viðurkent þetta berlega, þar sem það leyfir í tekjuskattslögunum að draga útsvar til sveitarsjóðs frá skattskyldum tekjum, eins og rjettmætt er. Með því hefir það rýrt fyrir sjer þann tekjustofn, sem er skattskylda einstaklinganna. Hvað er þá á móti því, að það rýri einnig þennan tekjustofn sinn, ágóðann af verslunarrekstri, til hlunninda fyrir sveitar- eða bæjarsjóð! Með þessu ákvæði tekjuskattslaganna er fengin viðurkenning löggjafarvaldsins á þörf bæjar- og sveitarfjelaga á því að halda tekjustofnum sínum óskertum af ágangi ríkissjóðs. En þegar ríkissjóður tekur einhverja atvinnugrein til rekstrar í ágóðaskyni, er það ágangur á bæjar- eða sveitarajóð, ef sá atvinnurekstur á að vera skattfrjáls.
Það er og mjög stórvægilegt atriði í þessu máli, að þetta skattfrelsi þjóðnýttra fyrirtækja ríkisins er beinlínis notað sem blekking, til þess að þvæla mönnum lengra inn á þjóðnýtingarbrautina með því að sýna falskan ágóða af fyrirtækjunum. Það er bent á hinn feikilega ágóða af fyrirtækjunum, en hvergi minst á, að þau eru algerlega skattfrjáls. Það mundi verða ekki alllítið skarð fyrir skildi, ef frá ágóðanum væri dreginn tekjuskattur og sveitarútsvar að rjettri tiltölu, og er ekki víst, að eins margir yrðu þá ginkeyptir fyrir þessum ríkisrekstri. Eins og nú stendur, eru skýrslur verslunarinnar að þessu leyti falskar, þar sem hvergi eru dregin frá þau gjöld, er samskonar rekstur einstakra manna verður að bera. Þetta er svo notað til þess að teyma asnann á eyrunum lengra inn á þessa braut, bent á hve tekjurnar eru miklar, en ekki um það getið, að jafnmiklar tekjur gætu komið á annan hátt með skynsamlegum rekstri.
Af þessum tveim ástæðum, sem jeg hefi greint, er jeg andvígur frv. í hvaða mynd sem er. Jeg vil, að þessi fyrirtæki sjeu gjaldskyld til bæjar- og sveitarfjelaga á sama hátt sem einstaklingar. Það eru þau vafalaust eftir gildandi lögum, og sje jeg enga ástæðu til að breyta því. En finnist löggjafarvaldinu einhver stórhætta að því að eiga undir bæjar- og sveitarfjelögum, hvernig þau nota aðstöðu sína gagnvart atvinnufyrirtækjum ríkissjóðs til þess að leggja á þau, þá er hægurinn hjá að setja ákvæði, er tryggi ríkissjóð gegn óhæfilegum álögum.