07.04.1924
Neðri deild: 44. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2302 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

84. mál, aukaútsvör ríkisstofnana

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Jeg sje ekki, að það sje til mikils gagns að karpa um þetta mál. Það má lengi deila um svona atriði, þegar sitt sýnist hverjum. Býst jeg við, að þótt menn leiði rök á báða bóga, þá sje það engu nær, því að hver verður jafnsannfærður um sinn málstað eftir sem áður. Jeg skal aðeins taka það fram, út af dæmi hv. frsm. minni hl. (MJ), hvernig jeg mundi líta á, ef 100 kr. væru teknar af mjer og skift jafnt á milli margra manna, og jeg fengi minn hlut, að þetta er engin röksemd. Ef fjeð væri tekið af mjer, þá væri ráðist á eign mína, en það, sem hv. frsm. tók til samanburðar, var óinnunnið fje. En það skal jeg játa, að ef jeg hefði setið einn að einhverri krás, og fleiri kæmu svo og vildu njóta hennar með mjer, þá kynni mjer að vísu að þykja rjettur minn skertur, en alt annað er það þó heldur en taka eign manns.

Hv. fram. minni hl. (MJ) gerði fullmikið úr tekjumissi Reykjavíkurbæjar. Jeg vil ekki mótmæla því að öllu leyti, en aðeins benda á, að önnur stærri kauptún verða fyrir því hinu sama. En jeg ætla, að jeg hafi tekið það fullljóst fram áðan, að þar sem jeg vilji ekki heimila öðrum sveitarfjelögum tekjur af þessum fyrirtækjum ríkissjóðs, þá sje það af því, að jeg vil ekki koma á slíkum eltingaleik, og hinsvegar vegna þess, að þessi starfsemi sje ekki meiri en svo í öðrum kauptúnum, að hún sje þolandi án þess að þau hafi tekjur af. En í Reykjavík er þessi starfsemi ríkisins stórfeldari og gefur ríkissjóði meiri arð, og er því ekki nema sanngjarnt, að Reykjavík fái á einhvern hátt bættan þann tekjumissi sinn, sem hún kann að hafa orðið fyrir. Á því einu byggist það, að jeg get fallist á, að ríkisverslanirnar greiði eitthvað í bæjarsjóð Reykjavíkur, en hefði svipað staðið á í Reykjavík sem í öðrum hjeruðum, hefði jeg verið því algerlega mótfallinn.

Þá mintist hv. frsm. minni hl. á Eimskipafjelag Íslands, og taldi það sönnun þess, hve langt þyrfti að fara í skattaálögum hjer í bæ, að fjelagið hafi orðið að greiða 45 þús. kr. í útsvar síðastliðið ár. Þetta dæmi sannar lítið. Hvaða tekjur hyggur hv. þm., að Reykjavík muni fá af fjelaginu, ef ríkissjóður hlypi ekki undir bagga með því og það yrði að hætta vegna fjárskorts! Ef fjelagið legðist niður, gæti bærinn ekki tekið af því útsvar. Að Reykjavík geti skattskyldað þessa stofnun, þó að hún beri sig ekki og ríkissjóður verði að leggja stórfje til þess að halda henni uppi, nær engri átt, og veit jeg, að jafnglöggur og sanngjarn maður sem hv. frsm. minni hl. (MJ) muni sjá það. Það má telja þessa stofnun alþjóðareign, og þó að hún hafi aðsetur hjer, er ekki sanngjarnt, að Reykjavík sje heimilt að gera henni svo þungar álögur, að hún geti ekki risið undir.

Jeg hygg annars, að hv. frsm. minni hl. tali ekki fyrir hönd bæjarbúa í þessu máli. Tel jeg rjettmætt, að bærinn fái einhver gjöld af þessum stofnunum, en að upphæð þeirra sje komin undir geðþótta þeirra manna, er ráða í það og það skifti, tel jeg óheppilegt, og er fylsta ástæða til þess, að Alþingi geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir það.

Jeg þarf ekki að svara hv. 3. þm. Reykv. (JakM) miklu. Hann gerði að umtalsefni sömu atriðin sem hv. frsm. minni hl., nema hvað hann lagði ríkari áherslu á, að með þessum fyrirtækjum væru skertir hagsmunir bæjar- og sveitarfjelaga. Jeg hygg það orðum aukið, að nokkuð aukaútsvar hafi verið lagt á Steinolíufjelagið í öðrum kauptúnum landsins, en þori þó ekki að staðhæfa um það. Olíuverslunin er samkvæmt frv. og tillögum meiri hl. ekki undanskilin skattgreiðslu til Reykjavíkur, en þar sem sáralítið eða ekkert hefir áður verið goldið af henni annarsstaðar, þá er engin breyting frá því sem var, þó að skattskyldan nái til Reykjavíkurbæjar eins.

Hv. 3. þm. Reykv. komst nokkuð freklega að orði, þegar hann var að tala um falskan ágóða og falskar skýrslur um stofnanir ríkisins. Hygg jeg, að hv. þm. hafi þar tekið sjer meira í munn en hann getur staðið við, og færst meira í fang en hann er maður til. Því að þótt hann haldi fram, að rjett sje að draga frá ágóðanum fyrir hæfilegum skatti, þá er það ekkert fals, þó að svo sje ekki gert, meðan enginn skattur er goldinn. Það væri varlegar komist að orði, að verslunin sýndi meiri ágóða en rjett væri, ef skattar væru dregnir frá.

Hv. þm. kvaðst andvígur frv., og er það skiljanlegt frá sjónarmiði hans, þar sem hann leggur svo ríka áherslu á að koma þessum stofnunum fyrir kattarnef, að hann sjái ekki ástæðu til að breyta þeirri heimild, sem bærinn hefir til þess að leggja aukaútsvar á þær. En þó að svo kunni að vera, hygg jeg, að miklum meiri hluta þingmanna muni þykja ástæða til að breyta þeirri skipan. Og þær aðgerðir bæjarins gagnvart Eimskipafjelagi Íslands, sem getið hefir verið um, ættu að færa heim sanninn um, að ástæða er til að setja skorður við því, að útsvar ríkisstofnananna sje ekki ákveðið óhæfilega hátt. Þetta er ekki tekið af Reykjavík einni, heldur af öllu landinu, en það virðist skoðun hv. 3. þm. Reykv. (JakM), að Reykjavík eigi að sitja ein að þessu og hafa af tekjur eftir eigin geðþótta.