30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2316 í B-deild Alþingistíðinda. (1735)

84. mál, aukaútsvör ríkisstofnana

Magnús Torfason:

Hv. þm. Str. (TrÞ) sagði, að aðalatriði málsins væri, að frv. kæmist í gegnum þingið. Jeg lít aftur á móti svo á, að það sje alls ekki aðalatriði. Aðalatriði þessa máls er það, hvort rjett sje, að ríkisstofnanir greiði útsvör til sveita og bæja eða ekki. Jeg veit ekki til þess, að það tíðkist í öðrum löndum, að ríkið borgi neitt útsvar til sveitar- eða bæjarsjóða. Ríkið aflar sjer tekna með ýmsu móti, og græði það á verslunarrekstri, þá fá bæjarfjelögin sinn hluta af þeim gróða. Græði t. d. ríkissjóður á þennan hátt eina miljón kr., fær Reykjavík af þeim gróða 400 þús. kr. í lækkun á sköttum, ef það er rjett, að hún greiði 40% af tekjum ríkissjóðs. Nú er fyrir hæstarjetti mál út af þessari skattskyldu ríkisverslananna, og sje jeg ekki, að það hafi neina verulega þýðingu að setja lög um þetta atriði nú á þessu ári, því að þótt hæstirjettur staðfesti dóm undirrjettar um það, að ríkisstofnanirnar sjeu að lögum skyldar að greiða útsvar, þá er ekki nema um eitt ár að ræða, sem slíkt þarf að þolast, því að Alþingi getur hvenær sem það vill sett lög um það, að ríkisstofnanirnar skuli ekki greiða útsvar. Mætti þá til næsta þings leita upplýsinga um slíka venju í útlöndum. Jeg verð því að endurtaka það, sem jeg sagði í upphafi, að jeg vil helst, að ekkert útsvar sje borgað. En jeg get þó, til þess að ekki þurfi að verða meira þref um málið, gengið inn á 5%, en alls ekki hærra gjald. Og verði frv. ekki breytt frá því, sem það kom frá hv. Ed., þá hlýt jeg að greiða atkvæði á móti því.